Jóga í Hjartanu fram að páskum

Nýtt jóganámskeið Litlu yogastofunnar fimmtudaginn 26. febrúar. Um er að ræða fimm skipti - rólegt flæði við allra hæfi. Innifalið í námskeiðinu er einn jóga nidra tími ef vill.
🌟 Fimmtudaginn 26. janúar
✨ Miðvikudaginn 4. mars - hægt að mæta í jóga nidra í framhaldinu, kl. 18:15-19:15
🌟Fimmtudaginn 12. mars
🌟Fimmtudaginn 19. mars
🌟 Fimmtudaginn 26. mars
💛 Hver tími er 75 mínútur svo það mun gefast góður tími fyrir leidda djúpslökun í lok hvers tíma. Námskeiðið verður í Hjartanu í Hrafnagilsskóla.
💛 Tímarnir henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Dýnur og annað sem þarf í iðkunina verða á staðnum.
Námskeiðsgjaldið er 12 000 kr. Einnig hægt að mæta í staka tíma fyrir 2 500 kr. tímann.
✍🏻 Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið: ingileif@bjarkir.net
-------
💫 Miðvikudaginn 4. mars býðst þeim sem skrá sig á námskeiðið að mæta endurgjaldslaust í yoga nidra. Það er opinn tími.
💛 Jóga nidra er leidd hugleiðsla milli svefns og vöku. Í þessu ástandi næst slökun þar sem hugur og líkami ná djúpri og nærandi hvíld.
💛 Við byrjum tímann með léttri liðkun líkamans. Síðan leggjast iðkendur undir teppi með púða sér til stuðnings og eru leidd inn í djúpa slöku