Kvenfélagskvöldkaffi - Allar kvenfélagskonur velkomnar og líka þær sem vilja verða kvenfélagskonur

Allar kvenfélagskonur eru hvattar til að skrá sig og taka þátt í Kvenfélagskvöldkaffi KÍ
Skráningarsíðan er hér. Ath. það er nauðsynlegt að skrá sig fyrir happdrættið ;-)

Það verður opið hús í Félagsborg frá kl. 19 miðvikudaginn 30. september og heitt á könnunni.
Engin kvöð að hafa eitthvað með sér en þær sem vilja hafa eitthvað til að maula er frjálst að hafa eitthvað með sér.

Hlökkum til að sjá sem flestar kvenfélagskonur í Eyjafjarðarsveit úr kvenfélögunum þremur og þær sem ekki eru í félagi en eru að hugsa sig um mega gjarnan koma og vera með okkur.

Samvinnunefnd kvenfélaganna þriggja IHA (Iðunn, Hjálpin og Aldan).