Lukkupakkar, kökubasar og kaffihúsastemning í Laugarborg

Lukkupakkar, kökubasar og kaffihúsastemning í Laugarborg 28. nóvember í tilefni af „Opnar dyr“ í Eyjafjarðarsveit.

Kvenfélagið Iðunn verður með opið upp á gátt í Laugarborg kl. 13:00-17:00. Það verður notaleg kaffihúsastemning og lágstemmd jólatónlist.

Gómsætar vöfflur með rjóma, súkkulaðiglassúr og heimagerðum sultum.
Kökubasar – þar sem borðin munu svigna undan kræsingum og góðgæti.

Komið og gerið góð kaup. Allur ágóði rennur í hjálparsjóð Iðunnar.