Marísól og leitin að gleðinni er frumsamið barnaverk eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttir með frumsamdri tónlist eftir Eirík Bóasson.
Verkið er hugljúf jólasaga um hana Marísól sem er 10 ára stelpa sem er mjög leið yfir komandi jólum, því pabbi hennar sem er sjómaður þarf að vinna yfir jólin.
Þegar hún er sofnuð á þorláksmessukvöld þá vaknar uppáhalds bangsinn hennar, hann Viktor, til lífsins og fer með hana í ferðalag til að leita að gleðinni.
Þau hitta allskonar fólk á leið sinni, sem hafa öll mismunandi sýn á hvar gleðina er að finna en þegar á heildina er litið þá leynist gleðin í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir aðra og kemur líklega ávallt frá hjartanu.´
Allar nánari upplýsingar og miðasala eru á tix.is, á feisbúkksíðu Freyvangsleikhússins eða í síma 857-5598.
