Þriðjudagur í íþróttaviku

Þriðjudagur í íþróttaviku býður upp á fjölbreytta möguleika á hreyfingu.
Þannig verður opinn tími í Ringo á þriðjudagsmorguninn og eftir hádegið verða opnir tímar hjá Gaia hofinu á Leifsstaðabrúnum og hjá Vökulandi Wellness. Þar þarf að bóka pláss á netfanginu info@vokulandwellness.is.
Á þriðjudagskvöldið er svo opinn tími í knattspyrnu unglinga og karla á vegum UMF Samherja. 

Frítt er í sund alla daga íþróttavikunnar.