Vikulegir jógatímar í Hjartanu í Hrafnagilsskóla

Fyrsta jóganámskeið vetrarins hófst fimmtudaginn 1. október kl. 17:00. Um er að ræða sex skipti - rólegt flæði við allra hæfi. 
🌟 Fimmtudagana 1., 8., 15., 22. og 29. október auk 5. nóvember.
⏰ 17:00-18:15
💛 Hver tími er 75 mínútur svo það mun gefast góður tími fyrir leidda djúpslökun í lok hvers tíma. Námskeiðið verður í Hjartanu í Hrafnagilsskóla.
💛 Tímarnir henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Dýnur og annað sem þarf í iðkunina verða á staðnum.
Námskeiðsgjaldið er 13 000 kr. Einnig hægt að mæta í staka tíma fyrir 2500 kr. tímann.
✍🏻 Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið: ingileif@bjarkir.net