Dagskrá:
1. Umhverfisverðlaun 2025 - E2504006
Til fundar mættu viðtakendur Umhverfisverðlauna fyrir árið 2025 þar sem afhending viðurkenningarinnar fór fram.
Verðlaunin voru veitt bæði fyrir einstakling og atvinnurekstur.
Í hópi atvinnureksturs var það Aðalsteinn Stefnisson sem tók við viðurkenningunni fyrir Hótel North þar sem hann hefur staðið að metnaðarfullri uppbyggingu á undanförnum árum.
Í hópi einstaklinga voru það þau Stefán Árnason og Vaka Jónsdóttir sem tóku á móti viðurkenningunni vegna sérlega fallegs og snyrtilegs umhverfis sem þau hafa skapað á fjölda árum í Smáralundi.
2. Sorphirða - útboð 2026 - E2601018
Sveitarstjórn samþykkti á 668. fundi sínum að hefja undirbúning á vinnu við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu og vísaði vinnunni til Atvinnu- og umhverfisnefndar. Sveitarstjóra var falið að vera nefndinni innan handar í vinnunni og hefur unnið drög að útboðsgögnum.
Nefndin tekur drögin og þær forsendur sem þar koma fram til umræðu.
Nefndin ræðir áherslur og tekur saman minnisblað. Stefnt á fund 16. febrúar klukkan 17:00 með núverandi þjónustuaðila til að heyra hvaða áskoranir og umbætur eru mögulega miðað við núverandi ástand.
3. Varmadælur - styrkir til uppsetningar - E2602009
Atvinnu- og umhverfisnefnd fer yfir stöðu á styrkjum til varmadæla í sveitarfélaginu og undirbýr næstu skref í kynningarátaki varðandi verkefnið.
Ákveðið er að halda kynningarfund um varmadælulausnir fyrir þá aðila í sveitarfélaginu sem eru utan afhendingarsvæðis hitaveitu. Fundurinn verður fjarfundur og nánari tímasetning kynnt þegar skipulag fundar liggur fyrir.
4. Kolefnisspor - E2510026
Nefndin heldur áfram umræðu um kolefnisspor sveitarfélagsins en kallað hafði verið eftir upplýsingum frá Land- og skóg en staðan þar er sú að ekki er mögulegt að draga út einstök svæði útúr lofslagsbókhaldinu stofnunarinnar eins og er.
Fyrir fundinum liggur þó ábending frá Land- og skóg þar sem nálgast megi nokkrar vefsjár og tölulegar upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar https://island.is/s/land-og-skogur/landupplysingar.
Nefndin skoðar umfang skógræktar í sveitarfélaginu út frá gögnum Lands- og Skógar.
Heildarsvæði skógræktar í Eyjafjarðarsveit er um 1.470 hektarar. Reiknast að binding þeirra skóga miðað við meðal bindingu í skógrækt sé um 11.500 tonn á ári eða tæp 10 tonn á íbúa.
5. Skógræktarfélag Eyfirðinga samningur 2026-2027 - E2602004
Sveitarstjórn óskaði eftir við sveitarstjóra að uppfæra drög að samningi við Skógræktarfélag Eyfirðinga og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
Fyrir fundinum liggja drög af samningnum.
Lagt fram til kynningar.
6. SSNE - Loftlagsstefna Norðurlands eystra - E2601032
Á 79. stjórnarfundi SSNE, sem haldinn var 8. janúar s.l., voru meðfylgjandi drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra lögð fram, en starfshópur SSNE um sameiginlega loftslagsstefnu landshlutans hefur nú lokið störfum. Stjórn samþykkti að drögin yrðu send til umfjöllunar í sveitarstjórnum innan SSNE og óskaði eftir því að athugasemdir eða ábendingar varðandi drögin berist í síðasta lagi þann 4.mars næstkomandi.
Lagt fram til kynningar og fulltrúa sveitarfélagsins í nefndinni þakkað sérstaklega fyrir gott starf.
7. Norðurá bs. - Urðaður úrgangur 2025 - E2601017
Lögð er fram til kynningar samantekt Norðurár á urðuðu magni í Stekkarvík á árinu 2025.
Nefndin óskar eftir að fyrirkomulag á dýrahræsgámi verði skoðað og finna út hvort mögulegt sé að stækka gáminn eða einfalda notkun hans fyrir bændur.
Óskað er eftir að þjónustuaðili komi á næsta fund til að skoða fyrirkomulag þjónustunnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:10