Atvinnu- og umhverfisnefnd

22. fundur 30. september 2026 kl. 16:30 - 18:30 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Kristján Hermann Tryggvason
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Andrea Þórey Hjaltadóttir
  • Valur Ásmundsson
  • Sigurður Ingi Friðleifsson
  • Aðalsteinn Hallgrímsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Inga Vala Gísladóttir formaður
 
Dagskrá:
 
1. Erindisbréf atvinnu- og umhverfisnefnd - E2208003
Erindisbréf atvinnu- og umhverfisnefndar tekið til umfjöllunar. Farið yfir hlutverk, verkefni og starfshætti nefndarinnar með hliðsjón af núverandi starfsemi og þeim málaflokkum sem undir nefndina heyra.
Sigurður Ingi Friðleifsson er kosinn varaformaður og Valur Ásmundsson er kosinn ritari nefndarinnar.
 
Lagt fram til kynningar.
 
2. Sorphirða - útboð 2026 - E2601018
Sveitarstjóri fer yfir stöðu fyrirhugaðs útboðs á sorphirðu í Eyjafjarðarsveit. Jafnframt hefur verið rætt óformlega við önnur sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu um möguleika á sameiginlegu útboði á sorphirðu.
Nefndin felur sveitarstjóra að kanna möguleika á sameiginlegu útboði á sorphirðu í samstarfi við önnur sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu og leggja fyrir nefndina að nýju.
 
3. Norðurá bs. - Urðaður úrgangur fyrri hluta 2026 - E2609031
Lagt fram til kynningar yfirlit frá Norðurá bs. um magn urðaðs úrgangs á fyrri hluta árs 2026.
Nefndin gerir athugasemd við breytta framsetningu samantektanna, þar sem upplýsingar eru ekki lengur sundurliðaðar eftir sveitarfélögum á Norðurlandi eystra. Nefndin telur breytinguna vera afturför, enda mikilvægt að sveitarfélög hafi aðgang að skýrum og samanburðarhæfum upplýsingum um magn og þróun úrgangs í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Nefndin hvetur til þess að leitað verði leiða til að bæta upplýsingagjöf frá flutningsaðilum þannig að unnt verði að taka upp fyrri sundurliðun að nýju.
 
4. Náttúruverndarstofnun - Samningur um refaveiðar 2026-2028 - E2606034
Lagt fram til kynningar samningur við Náttúruverndarstofnun vegna refaveiða 2026-2028.
Atvinnu- og umhverfisnefnd felur sveitarstjóra að kalla eftir tjónatilkynningum í tengslum við veiðiskýrslugerð til Náttúruverndarstofnunar.
 
5. Gunnbjörn Rúnar Ketilsson - Óskar eftir því að Bakkatröð verði vistgata - E2609019
Árið 2024 barst erindi frá Gunnbirni Rúnari Ketilssyni, íbúa í Bakkatröð, þar sem óskað var eftir að Bakkatröð yrði skilgreind sem vistgata og hámarkshraði færður niður í 15 km/klst. Málið var tekið til umfjöllunar í tengslum við umferðaröryggismál sveitarfélagsins en ekki var tekin ákvörðun um að skilgreina götuna sem vistgötu.
 
Erindið er nú tekið að nýju til umfjöllunar hjá atvinnu- og umhverfisnefnd, meðal annars með hliðsjón af fyrirhugaðri endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Eyjafjarðarsveitar.
Nefndin þakkar fyrir erindið og tekur undir með bréfritara að ná þarf umferðarhraðanum niður í Bakkatröð.
 
Nefndin er ekki hlynnt því að Bakkatröð verði skilgreind sem vistgata að svo stöddu, en telur mikilvægt að gripið verði til aðgerða til að draga úr umferðarhraða og bæta umferðaröryggi í götunni. Nefndin leggur því til að komið verði fyrir hraðatakmarkandi lausnum í Bakkatröð og vísar málinu sveitarstjórnar.
 
6. Lífrænir pokar - E2609013
Fyrirkomulag við söfnun lífræns úrgangs tekið fyrir, með áherslu á hvort Eyjafjarðarsveit eigi að útvega íbúum lífræna poka fyrir matar- og eldhúsúrgang.
Nefndin felur sveitarstjóra að ræða við fulltrúa Hjálparsveitarinnar Dalbjörgu um möguleikann að taka að sér verkefnið sem fjáröflun.
 
7. Guðný Valborg Guðmundsdóttir - Umsókn um leyfi til búfjárhalds - endur - E2607020
Sveitarstjóra falið að fara yfir málið og leggja fyrir nefndina að nýju.
 
8. Guðný Valborg Guðmundsdóttir - Umsókn um leyfi til búfjárhalds - hænur - E2608001
Sveitarstjóra falið að fara yfir málið og leggja fyrir nefndina að nýju.
 
9. Fundaáætlun - E2609036
Farið yfir fyrirkomulag funda atvinnu- og umhverfisnefndar og drög að fundaáætlun nefndarinnar fyrir komandi tímabil.
Lögð fram tillaga að fundaáætlun Atvinnu- og umhverfisnefndar fyrir komandi starfsár.
Lagt er til að nefndin fundi á mánudögum kl. 16:15.
 
26. október
9. nóvember
30. nóvember
 
Nefndin samþykkir fundaáætlun fram að áramótum eins og hún liggur fyrir, með fyrirvara um breytingar eftir þörfum.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30
Getum við bætt efni síðunnar?