Atvinnu- og umhverfisnefnd

23. fundur 16. nóvember 2026 kl. 16:15 - 19:15 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Kristján Hermann Tryggvasson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Andrea Þórey Hjaltadóttir
  • Valur Ásmundsson
  • Sigurður Ingi Friðleifsson
  • Aðalsteinn Hallgrímsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
 
Dagskrá:
 
1. Snjómokstur á vegum Eyjafjarðarsveitar - E2111007
Farið yfir fyrirkomulag snjómoksturs á vegum Eyjafjarðarsveitar, þar á meðal skipulag þjónustunnar, forgangsröðun og framkvæmd.
 
Hallgrímur Ævarsson verkstjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Atvinnu- og umhverfisnefnd felur sveitarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra að uppfæra minnisblaðið „Vetrarþjónusta í Eyjafjarðarsveit“ frá árinu 2019 með hliðsjón af núverandi fyrirkomulagi og þeim sjónarmiðum sem fram komu á fundinum. Uppfært minnisblað verði lagt fyrir nefndina að nýju.
 
2. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Skrifstofu- og fjármálastjóri kynnir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Atvinnu- og umhverfisnefnd leggur til að almennar gjaldskrár innan málaflokksins hækki um 2,5% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar en gjaldskrá sorphirðu verði tekin til sérstakrar skoðunar fyrir seinni umræðu í sveitarstjórn.
 
3. Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar - E2610020
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að hefja heildstæða endurskoðun á stjórnskipulagi sveitarfélagsins, nefndaskipan, heitum nefnda og erindisbréfum þeirra.
 
Markmið endurskoðunarinnar er að skýra verksvið og ábyrgð nefnda, samræma verkaskiptingu og uppfæra erindisbréf með hliðsjón af núverandi starfsemi sveitarfélagsins og gildandi regluverki.
Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri kynnti vinnu að endurskoðun á samþykktum, nefndaskipan, heitum nefnda og erindisbréfum.
 
4. Dýraleifagámur - staða og fyrirkomulag - E2611006
Farið yfir núverandi fyrirkomulag vegna dýraleifagáms í Eyjafjarðarsveit og rætt um aðgengi, nýtingu og rekstur þjónustunnar.
Lagt fram minnisblað skrifstofu- og fjármálastjóra vegna dýraleifagáms. Atvinnu- og umhverfisnefnd leggur til að gjaldskrá dýraleifagáms haldi áfram að endurspegla raunkostnað.
 
5. Melgerðismelar - E2611008
Lagt fram yfirlit yfir núverandi leigutaka lands í eigu Eyjafjarðarsveitar við Melgerðismela.
 
Atvinnu- og umhverfisnefnd fer yfir núverandi leigusamninga, nýtingu landsins og þau álitaefni sem tengjast framtíðarfyrirkomulagi og nýtingu svæðisins.
Atvinnu og umhverfisnefnd felur sveitarstjóra að taka saman frekari upplýsingar um lönd og leigusamninga á Melgerðismelum og leggja fyrir nefndina að nýju.
 
6. Sorphirða - útboð 2026 - E2601018
Farið yfir stöðu undirbúnings að útboði sorphirðuþjónustu árið 2026 og helstu forsendur fyrir nýju fyrirkomulagi. Rætt um umfang þjónustunnar, fyrirkomulag söfnunar og önnur atriði sem æskilegt er að hafa til hliðsjónar við gerð útboðsgagna.
Sveitarstjóra var falið á síðasta fundi nefndarinnar að kanna með samstarf við nágrannasveitarfélög um hugsanlegt útboð. Hafa Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppur líst yfir áhuga á slíku samstarfi.
Atvinnu og umhverfisnefnd er sammála um að fara í slíkt samstarf og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
 
7. Beitarmál og hagaganga hrossa - E2611016
Umræður um beitarmál og hagagöngu hrossa í Eyjafjarðarsveit.
Atvinnu og umhverfisnefnd ræddi beitarmál og hagagöngu hrossa í Eyjafjarðarsveit. Nefndin er sammála um að fá Fjallskilanefnd til sameiginlegs fundar um málið.
 
8. Land og jarðir í eigu Eyjafjarðarsveitar - E2611009
Lagt fram yfirlit yfir land og jarðir í eigu Eyjafjarðarsveitar.
 
Atvinnu- og umhverfisnefnd fer yfir núverandi nýtingu eigna sveitarfélagsins og ræðir möguleika til frekari nýtingar þeirra með hliðsjón af atvinnuþróun, landnýtingu og umhverfissjónarmiðum.
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir land í eigu Eyjafjarðarsveitar.
 
9. Umferðaröryggisáætlun - E2405022
Lögð fram til kynningar umferðaröryggisáætlun Eyjafjarðarsveitar.
Lögð fram umferðaröryggisáætlun Eyjafjarðarsveitar til kynningar fyrir nýja nefndarmenn. Sveitarstjóra falið að ræða við Vegagerð um úrbætur sem koma fram í áætluninni.
 
10. Foreldrafélag Hrafnagilsskóla - Umferðarhraði í Hrafnatröð og úrbætur - E2610002
Lagt fram erindi frá stjórn foreldrafélags Hrafnagilsskóla vegna umferðarhraða á Hrafnatröð, frá ytri gatnamótum Bakkatraðar að gatnamótum Skólatraðar.
 
Í erindinu er óskað eftir að gripið verði til aðgerða til að draga úr umferðarhraða á svæðinu og tryggja 30 km/klst. hámarkshraða, meðal annars með hraðahindrunum eða öðrum viðeigandi úrbótum, með það að markmiði að auka umferðaröryggi barna á svæðinu.
Atvinnu og umhverfisnefnd þakkar erindið. Komin er hraðahindrun á Hrafnatröð en unnið er líka að frekari útfærslum til að bæta öryggi í umferðinni á Hrafnagili.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15
Getum við bætt efni síðunnar?