Dagskrá:
1. Fjallskil 2025 - E2505019
Nefndin kom saman að undangengnum undirbúningi nefndarmanna. Farið var yfir og gengið frá gangnaseðlum sauðfjár fyrir haustið 2025. Heildarfjöldi fjár sem fjallskil eru lögð á eru 4648. Heildarfjöldi dagsverka er 398. Gangnaseðlar verða birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar og sendir til þeirra sem þess óska.
Fyrri göngur verða 4.-6. september.
Seinni göngur verða 19. og 21. september.
Dagsverk er metið á kr. 15.000.-
Hrossasmölun verður 3.október og stóðréttir 4.október.
Fjallskilanefnd samþykkir að endurnýja girðingu í réttarhólfi við Vallarrétt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00