Dagskrá:
1. Fjallskil 2026 - E2607027
Nefndin kom saman að undangengnum undirbúningi nefndarmanna. Farið var yfir og gengið frá gangnaseðlum sauðfjár fyrir haustið 2026. Heildarfjöldi fjár sem fjallskil eru lögð á eru 4755. Heildarfjöldi dagsverka er 383. Gangnaseðlar verða birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar og sendir til þeirra sem þess óska.
Fyrri göngur verða 3.-5. september.
Seinni göngur verða 18.-20. september.
Dagsverk er metið á kr. 20.000.-
Hrossasmölun verður 2.október og stóðréttir 3.október.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45