Fjallskilanefnd

52. fundur 26. ágúst 2026 kl. 08:30 - 10:00 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Beate Stormo
  • Reynir Sverrir Sverrisson
  • Ragnar Jónsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Beate Stormo formaður
 
Dagskrá:
 
1. Hrossasmölun 2026 - E2608038
Nefndin kom saman að undangengnum undirbúningi nefndarmanna og fór yfir gangnaseðla vegna hrossasmölunar.
Farið var yfir og gengið frá gangnaseðlum hrossa fyrir haustið 2026.
 
Heildarfjöldi hrossa sem fjallskil eru lögð á eru 667.
Heildarfjöldi dagsverka er 31.
 
Gangnaseðlar verða birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Hrossasmölun 2026 verður 2. október og stóðréttir 3. október.
 
Árið 2027 verður hrossasmölun 1. október og stóðréttir 2.október.
 
Fjallskilanefnd áréttar að upplýsingar um fjölda hrossa á afrétt er verulega ábótavant og þarf að bæta úr. Mikilvægt er að eigendur hrossa og/eða umráðamenn geri grein fjölda hrossa á fjalli.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
 
Getum við bætt efni síðunnar?