Dagskrá:
1. Fjallskil 2026 - E2607027
Farið var yfir framkvæmd fjallskila árið 2026 og rætt um reynslu af framkvæmd þeirra.
Fjallskilanefnd mun hafa framkomnar ábendingar og umræður fundarins til hliðsjónar við undirbúning fjallskila árið 2027.
Fjallskilanefnd telur ljóst að endurskoða þurfi gjaldskrá vegna hrossa á fjalli og hækka þurfi gjald vegna þeirra ekki síst vegna viðhalds á réttum. Jafnframt telur nefndin mikilvægt að bæta skráningu og eftirfylgni með fjölda hrossa sem eru á fjalli hverju sinni, þannig að gjaldtaka og utanumhald byggi á réttum upplýsingum.
2. Girðingamál í kringum Sigtún - E2608004
Lagt fram erindi frá Steinari Hauki, Sigtúnum, vegna sauðfjár á túnum og landi við Sigtún.
Fjallskilanefnd ræddi stöðu girðinga á svæðinu og þær leiðir sem komið gætu til úrbóta í þeim efnum.
Nefndin vísar málinu til sveitarstjórnar og hvetur til þess að boðað verði til fundar með öllum sauðfjárbændum í Eyjafjarðarsveit. Á fundinum verði farið yfir stöðu fjallskila og stöðu girðingamála.
3. Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar - E2610020
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að hefja heildstæða endurskoðun á nefndaskipan sveitarfélagsins, heitum nefnda og erindisbréfum þeirra. Markmið vinnunnar er að skýra verksvið og ábyrgð nefnda, samræma verkaskiptingu og uppfæra erindisbréf með hliðsjón af gildandi lögum og núverandi starfsemi sveitarfélagsins.
Í tengslum við þá vinnu er lagt til umræðu hlutverk og verksvið fjallskilanefndar og hvort tilefni sé til breytinga á núverandi fyrirkomulagi eða erindisbréfi nefndarinnar.
Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri kynnti vinnu að endurskoðun á samþykktum, nefndaskipan, heitum nefnda og erindisbréfum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30