Framkvæmdaráð

167. fundur 29. janúar 2026 kl. 10:00 - 11:10 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Sigurður Ingi Friðleifsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Davíð Ragnar Ágústsson forstöðumaður eignasjóðs
Fundargerð ritaði: Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
 
Dagskrá:
 
1. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Framkvæmdaráð fer yfir stöðu framkvæmda.
Á framkvæmdastigi kom í ljós að mögulegt er að nýta stiga upp í stúku sem aðgangsleið að líkamsræktarsaðstöðu. Hafa teikningar og framkvæmdir verið aðlagaðar að því. Með því fæst betri nýting á rými innan húss og til verður vallarhús og geymsla fyrir úti íþróttasvæði. Stigi sem áætlaður var viðkomandi rými fellur út og er því áætlað að breytingin leiði til kostnaðarlækkunar.
 
2. Íbúðir fyrir eldri íbúa - E2503025
Forsvarsmenn KEA koma til samtals vegna mögulegrar byggingar fyrir eldri íbúa.
Forsvarsmenn KEA fóru yfir hugmyndir sínar og munu skila erindi til sveitarstjórnar í framhaldinu svo hægt sé að taka afstöðu til þeirra.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:10
 
Getum við bætt efni síðunnar?