Dagskrá:
1. Framkvæmdir ársins 2026 - E2602001
Farið yfir tímalínu framkvæmda ársins.
2. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Framkvæmdaráð fer yfir kostnaðaruppgjör á framkvæmdum við nýjan leikskóla.
Sveitarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna áfram með uppgjörið.
3. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Framkvæmdaráð ræðir loftræstimál í íþróttahúsi og viðbyggingu þess en upp hafa komið ýmis mál sem þarfnast umræðu og úrlausna í tengslum við það.
Í minnisblaði Verkís kemur fram að mikilvægt sé að endurnýja núverandi loftræstisamstæður íþróttahúss þar sem þær eru komnar til ára sinna og erfiðara aðgengi sé orðið að varahlutum. Þá þurfi óhjákvæmilega að breyta lagnaleiðum sem læsast munu inni með nýjum framkvæmdum.
Loftræsting í íþróttasal í dag samanstendur af 4-5 aðskildum kerfum sem ekki vinna saman og er því mikilvægt að endurskoða kerfið í heild sinni og horfa á heildstæða lausn.
Með sameiningu lausnanna verður loftræstisamstæða líkamsræktar staðsett í kjallara íþróttamiðstöðvar. Við það bætist 13 fermetra rými við líkamstæktaraðstöðuna sem annars var tilgreint sem rými undir loftræstisamstæðu.
Framkvæmdaráð samþykkir tillögu að endurskoðun loftræstingarinnar.
4. Hopp Akureyri - Hrafnagilshverfi - E2602032
Hopp Akureyri hefur spurst fyrir um það hvort áhugi sé fyrir hendi til að þjónusta þeirra nái í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdaráð tekur jákvætt í hugmyndir að aukinni fjölbreytni sem felst í fararskjótum Hopp milli Hrafnagilshverfis og Akureyrarbæjar og beinir erindinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Framkvæmdaráð leggur áherslu á að ef af þjónustunni verður þá sé rík áhersla lögð á að Hopp hjól séu eingöngu skilin eftir á afmörkuðum stöðum og fjarlægð fljótt þegar þau eru rafmagnslaus eða utan þjónustu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30