Framkvæmdaráð

169. fundur 13. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:55 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Sigurður Ingi Friðleifsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
  • Davíð Ragnar Ágústsson forstöðumaður eignasjóðs
Fundargerð ritaði: Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
 
Dagskrá:
 
1. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Framkvæmdaráð fer yfir kostnað við leikskólann Krummakot.
Framkvæmdaráð fer yfir kostnaðartölur vegna byggingar á leikskóla og leikskólalóðar.
Brynjólfur Árnason mætti til fundar undir þessum fundarlið.
 
2. Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi - E2310005
Framkvæmdaráð skoðar mögulegt lóðarverð á athafnalóðum við Bakkaflöt.
Framkvæmdaráð fer yfir áætlaðan kostnað við gatnagerð á Bakkaflöt.
Sveitarstjóra falið að vinna minnisblað í samræmi við umræður á fundinum með tillögum af lóðarverði og leggja fram fyrir sveitarstjórn.
 
3. Hestamannafélagið Funi - Beiðni um auka fjárframlag - E2505025
Hestamannafélagið óskar eftir endurbótum á heimreið að Melgerðismelum.
Sveitarstjóra falið að leita eftir verðum í endurbætur á heimreiðinni að Melgerðismelum.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:55
Getum við bætt efni síðunnar?