Framkvæmdaráð

171. fundur 17. ágúst 2026 kl. 11:00 - 14:10 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
  • Davíð Ragnar Ágústsson forstöðumaður eignarsjóðs
Fundargerð ritaði: Hermann Ingi Gunnarsson oddviti
 
Dagskrá:
 
1. Staða byggingaframkvæmda við Hrafnagilsskóla - E2608021
Jón Stefánsson byggingarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Farið yfir stöðu framkvæmda við nýbyggingu við Hrafnagilsskóla.
 
2. Staða framkvæmda 2026 - E2606012
Davíð Ágústsson forstöðumaður eignasjóðs fór yfir stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu sumarið 2026.
 
3. Reiðvegur-Brúnir - E2608022
Fyrir liggur erindi frá reiðveganefnd Funa þar sem óskað er eftir að Eyjafjarðarsveit taki á sig viðbótarkostnað vegna breyttrar útfærslu reiðleiðar frá Eyjafjarðarbraut Eystri að hitaveituvegi. Áætlaður kostnaður er 2?5 m.kr.
 
Erindið er lagt fyrir framkvæmdaráð til umfjöllunar.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að veittur verði aukastyrkur upp á 2 m.kr. til reiðvegagerðar á árinu 2026 vegna sérstakra aðstæðna.
 
4. Umsókn um uppsetningu hraðhleðslustöðva - E2604027
Umræður um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Hrafnagilshverfi.
Sveitarstjóra er falið að afla frekari gagna og leggja fyrir framkvæmdaráð að nýju.
 
5. Ástandsskoðun og framtíð gamla Þinghússins - E2608020
Lagt er fram erindi um ástand gamla þinghússins. Fyrstu niðurstöður ástandsmats liggja fyrir og benda til þess að þörf sé á frekari skoðun og úrbótum áður en tekin verður ákvörðun um næstu skref varðandi húsnæðið. Endanleg skýrsla er í vinnslu.
Sveitarstjóri fór yfir málið.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:10
Getum við bætt efni síðunnar?