Framkvæmdaráð

172. fundur 31. ágúst 2026 kl. 11:00 - 14:00 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
  • Davíð Ragnar Ágústsson forstöðumaður eignasjóðs
Fundargerð ritaði: Hermann Ingi Gunnarsson oddviti
 
Dagskrá:
 
1. Snjómokstur í Hrafnagilshverfi - E2608050
Farið yfir fyrirkomulag snjómoksturs og vetrarþjónustu í Hrafnagilshverfi fyrir komandi vetur.
Framkvæmdaráð samþykkir að farið verði í verðkönnun meðal verktaka í Eyjafjarðarsveit á snjómokstri í Hrafnagilshverfi fyrir komandi vetur. Sveitarstjóra er falið að vera í samskiptum við verktaka fyrir 15. september. Niðurstöður verða lagðar fyrir framkvæmdaráð að nýju.
 
2. Staða byggingaframkvæmda við Hrafnagilsskóla - E2608021
Farið yfir stöðu framkvæmda við nýbyggingu Hrafnagilsskóla og framvindu verksins frá síðasta fundi framkvæmdaráðs.
 
3. Staða framkvæmda 2026 - E2606012
Davíð Ragnar Ágústsson forstöðumaður eignasjóðs og Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri fóru yfir stöðu framkvæmda og fjárfestinga sveitarfélagsins á árinu 2026.
Lagt fram til kynningar.
 
4. Bakkaflöt lóðir - E2604015
Farið yfir stöðu lóða á Bakkaflöt og næstu skref varðandi úthlutun og uppbyggingu svæðisins. Sveitarstjórn samþykkti í apríl að lóðirnar yrðu boðnar út og seldar hæstbjóðendum að teknu tilliti til samþykkts lágmarksverðs og voru lóðirnar í kjölfarið auglýstar til sölu.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir framkvæmdaráð að nýju.
 
5. Ástandsskoðun og framtíð gamla Þinghússins - E2608020
Farið yfir stöðu málsins og næstu skref varðandi húsnæðið. Á síðasta fundi voru kynnt fyrstu drög ástandsmats gamla Þinghússins, en ástandsskýrsla EFLU liggur nú fyrir.
 
Undir þessum lið komu Íris Ósk og Sólrún Arney frá Hrafney meðgöngu- og fjölskyldusetri á fundinn til að ræða erindi þeirra um mögulega notkun á gamla Þinghúsinu.
Framkvæmdaráð hefur farið yfir skýrslu EFLU um ástand Þinghússins. Ljóst er að fara þarf í umfangsmikið viðhald á húsinu til framtíðar litið ásamt því að breyta þarf innra skipulagi þess til að hýsa aðra starfsemi og verða þær breytingar afar kostnaðarsamar. Þá þarf að horfa til þess að staðsetning þess á núverandi lóð kemur til með að hamla verulega nýtingu á henni. Framkvæmdaráð vísar því til sveitarstjórnar að skoðað verði vel með að húsið víki og farið verði í hugmyndasamkeppni meðal íbúa um nýtingu og skipulag lóðarinnar til framtíðar sem nýtist samfélaginu sem best.
 
Jafnframt líst Framkvæmdaráði vel á framkomnar hugmyndir Hrafneyjar meðgöngu- og fjölskylduseturs um uppbyggingu á starfssemi í sveitarfélaginu og felur sveitarstjóra að skoða hugmyndir þeirra frekar og leggja fyrir ráðið að nýju.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00
 
 
Getum við bætt efni síðunnar?