Dagskrá:
1. Staða byggingaframkvæmda við Hrafnagilsskóla - E2608021
Sveitarstjóri fór yfir stöðu byggingaframkvæmda við Hrafnagilsskóla.
Framkvæmdaráð felur sveitarstjóra að vinna að nýrri verkáætlun fyrir viðbyggingu Hrafnagilsskóla í tengslum við fjárhagsáætlunargerð.
2. Verðkönnun snjómokstur Hrafnagilshverfi - E2609061
Lögð fram tilboð frá verktökum í Eyjafjarðarsveit í snjómokstur í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdaráð yfirfór tilboð sem bárust í snjómokstur í Hrafnagilshverfi.
Sveitastjóra falið að ræða við verktaka í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir sveitarstjórn að því loknu.
3. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Undirbúningur fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.
Framkvæmdaráð óskar eftir tillögum frá forstöðumönnum sveitarfélagsins vegna vinnu við fjárhagsáætlunargerð ársins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00