Dagskrá:
1. Foreldrafélag Hrafnagilsskóla - Umferðarhraði í Hrafnatröð og úrbætur - E2610002
Lagt fram erindi frá stjórn foreldrafélags Hrafnagilsskóla þar sem vakin er athygli á umferðarhraða á Hrafnatröð, frá ytri gatnamótum Bakkatraðar að gatnamótum Skólatraðar. Óskað er eftir að gripið verði til aðgerða til að draga úr umferðarhraða á svæðinu, meðal annars með hraðahindrunum eða öðrum viðeigandi úrbótum, með það að markmiði að tryggja 30 km hámarkshraða og auka öryggi barna á svæðinu.
Framkvæmdaráð tekur vel í hugmyndir stjórnar foreldrafélagsins um að draga úr umferðarhraða í Hrafnatröð. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
2. Skólanefnd - Merkingar skólanna og umhverfis þeirra - E2610030
Lagt fram erindi frá skólanefnd Eyjafjarðarsveitar vegna merkinga og lýsingar við Hrafnagilsskóla og Krummakot. Skólanefnd leggur til að merkingar við innganga og aðkomu að skólunum frá Hrafnatröð verði bættar og jafnframt að lýsing í kringum skólana verði yfirfarin og bætt eftir þörfum.
Framkvæmdaráð tekur undir að bæta þarf merkingar fyrir Hrafnagilsskóla og Krummakot og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram. Áfram er unnið að bættri lýsingu.
3. Snjómokstur á vegum Eyjafjarðarsveitar - E2111007
Farið yfir verklag Eyjafjarðarsveitar við snjómokstur utan þéttbýlis, þar á meðal forgangsröðun, framkvæmd og samskipti vegna þjónustunnar. Hallgrímur Ævarsson verkstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Framkvæmdaráð felur forstöðumanni eignasjóðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Fyrir næsta fund framkvæmdaráðs verði búið að taka saman upplýsingar um málið.
4. Framkvæmdir ársins 2027 - E2610031
Farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir Eyjafjarðarsveitar á árinu 2027 og forgangsröðun þeirra við gerð fjárfestingaráætlunar.
Megináhersla ársins verður á viðbyggingu við Hrafnagilsskóla og gert er ráð fyrir að aðrar fjárfestingar verði takmarkaðar og þeim forgangsraðað með hliðsjón af fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins.
Framkvæmdaráð mun fara yfir fyrirliggjandi tillögur að framkvæmdum og viðhaldsverkefnum og leggja tillögu að fjárfestingaráætlun ársins 2027 fyrir sveitarstjórn.
Framkvæmdaráð samþykkir framlagða fjárfestingaráætlun fyrir árið 2027 og 2028-2030 fyrir sitt leyti og vísar henni til sveitarstjórnar til samþykktar.
5. Staða byggingaframkvæmda við Hrafnagilsskóla - E2608021
Farið yfir stöðu byggingarframkvæmda við Hrafnagilsskóla.
Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri fór yfir stöðu byggingaframkvæmda við Hrafnagilsskóla.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00