Dagskrá:
Almenn mál
1. E2511013 - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sveitarstjórn tók málið fyrir á 666. fundi sínum, þakkaði ábendingu Öldungaráðs og samþykkti samhljóða að gert verði ráð fyrir heilsueflandi heimsóknum til eldri borgara 80 ára og eldri sem ekki hljóta heimaþjónustu eða heimahjúkrun líkt og þjónustan á vegum ríkisins gerði áður ráð fyrir. Fjárhagsáætlun geri ráð fyrir 300.000kr.- vegna verkefnisins og verður það fjármagnað af fjárframlagi Heilsueflandi sveitarfélags.
Umræður um framkvæmd heilsueflandi heimsókna á vegum HSN.
Eva Snæbjarnardóttir frá HSN sat fundinn undir þessum lið.
2. E2604006 - Heilsueflandi heimsóknir
Umræður um útfærslur og mögulega framkvæmd heilsueflandi heimsókna í Eyjafjarðarsveit. Öldungaráð lýsir yfir mikilli ánægju með að sveitarfélagið taki upp heilsueflandi heimsóknir og telur mikilvægt að uppbygging verkefnisins verði með svipuðum hætti og gert var hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN).
Öldungaráð leggur jafnframt áherslu á að í samningagerð við verktaka verði lögð sérstök áhersla á hvatningu til aukinnar virkni, veitingu skýrra og aðgengilegra upplýsinga um þátttökumöguleika og þjónustu, sem og eftirfylgni með einstaklingum eftir heimsóknir til að styðja við áframhaldandi þátttöku og vellíðan. Jafnframt er mikilvægt að þjónustan sé sniðin að þörfum hvers og eins og stuðli að sjálfstæði og bættri lífsgæðum eldri íbúa sveitarfélagsins.
Eva Snæbjarnardóttir frá HSN sat fundinn undir þessum lið.
3. E2511018 - Starfsemi Kristnesspítala
Oddviti upplýsir fundarmenn um þróun málsins frá síðasta fundi.
Öldungaráð tekur undir þær áhyggjur sem sveitarstjórn hefur lýst varðandi ástand eigna ríkisins á Kristnesspítala og hvetur til þess að málinu verði fylgt fast eftir.
Öldungaráð telur afar mikilvægt að ríkið hefji þegar í stað vinnu við að finna lausnir á ástandi eignanna að Kristnesi og styður vilja sveitarstjórnar til að koma að þeirri vinnu og aðstoða við úrlausn málsins. Jafnframt tekur öldungaráð undir þá beiðni sveitarstjórnar að óskað verði tafarlaust eftir fundi með fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra um stöðuna, enda um verulegt hagsmunamál fyrir sveitarfélagið, íbúa þess og landshlutan allan.
4. E2604007 - FEBE - Ósk um fjárframlag vegna framreiðslu veitinga í félagsstarfinu á þriðjudögum
Öldungaráð þakkar erindi stjórnar Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit og undirstrikar mikilvægi félagsstarfsins fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins, bæði með tilliti til félagslegra tengsla, virkni og almennrar vellíðanar.
Öldungaráð tekur jákvætt í erindið og telur eðlilegt að leitað verði skynsamlegrar og sjálfbærrar lausnar á málinu. Beinir öldungaráð því til sveitarstjórnar að skoða með hvaða hætti væri hægt að styðja við verkefnið, í samráði við félagið, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi öflugt og aðgengilegt félagsstarf fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45