Dagskrá:
Almenn mál
1. E2202017 - Erindisbréf Öldungaráðs
Lagt fram til kynningar erindisbréf öldungaráðs Eyjafjarðarsveitar.
Stjórnskipuleg staða: Öldungaráð heyrir undir sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og er ráðgefandi um málefni og hagsmuni eldra fólks í sveitarfélaginu.
Lagagrundvöllur: Skipan ráðsins byggir á 6. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra og 2. mgr. 38. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Skipan: Ráðið er skipað sjö fulltrúum og jafn mörgum til vara. Sveitarstjórn kýs hluta fulltrúa (þrjá fulltrúa og jafn marga til vara), ásamt fulltrúum frá félagi eldri borgara og Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN).
Hlutverk, ráðið á að tryggja að: Aldraðir fái nauðsynlega þjónustu, fjalla um málefni eins og gjaldskrár. Skipulag heimaþjónustu/heilsueflandi heimsókna og vera sveitarstjórn til ráðgjafar um hagsmuni eldri íbúa.
Lagt fram til kynningar.
2. E2605039 - Skipan í nefndir og ráð 2026-2030
Sveitarstjórn skipaði á 681. fundi sínum í öldungaráð Eyjafjarðarsveitar 2026-2030:
Aðalfulltrúar Eyjafjarðarsveitar:
Halldór S. Guðmundsson formaður
Berglind Kristinsdóttir
Linda Lárusdóttir
Aðalfulltrúar FEBE:
Kristín Thorberg
Hulda Magnea Jónsdóttir
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
Varafulltrúar Eyjafjarðarsveitar:
Hermann Ingi Gunnarsson
Inga Vala Gísladóttir
Sigríður Bjarnadóttir
Varafulltrúar FEBE:
Hansína María Haraldsdóttir
Bergljót Sigurðardóttir
Fyrir hönd HSN situr í ráðinu Eva Björg Guðmundsdóttir.
Lagt fram til kynningar. Óskað eftir tilnefningu þriðja varamanns félags eldri borgara, jafnframt verður leitað eftir varamanni fyrir fulltrúa HSN.
3. E2610047 - Framkvæmd Íþróttaviku Evrópu
Lagt fram minnisblað um þátttöku Eyjafjarðarsveitar í íþróttaviku Evrópu sem haldin var 23. - 30. september.
Karl Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi sat fundinn undir þessum lið og kynnti framkvæmd íþróttaviku Evrópu í Eyjafjarðarsveit. Umræður um þetta efni vörðuðu meðal annars lýðheilsumál almennt og sóknartækifæri í að efla íþróttaviku Evrópu með frekara samstarfi. Stefnt er að því að Karl komi aftur á fund ráðsins á vormánuðum.
4. E2610020 - Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar
Sveitarstjórn samþykkti á 685. fundi sínuma að hefja endurskoðun á samþykktum, nefndaskipan, heitum nefnda og erindisbréfum. Sveitarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra var falið að vinna undirbúningsvinnu og leggja fram til umræðu í sveitarstjórn. Um er að ræða heildstæða endurskoðun á nefndaskipan Eyjafjarðarsveitar, heitum nefnda og erindisbréfum þeirra. Markmið endurskoðunarinnar er að skýra verksvið og ábyrgð nefnda, samræma verkaskiptingu og uppfæra erindisbréf með hliðsjón af gildandi lögum og núverandi starfsemi sveitarfélagsins. Jafnframt verði skipurit sveitarfélagsins uppfært í samræmi við niðurstöður endurskoðunarinnar.
Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri kynnti vinnu að endurskoðun á samþykktum, nefndaskipan, heitum nefnda og erindisbréfum.
5. E2611001 - Umræður um starfsáætlun öldungaráðs 2026-2030
Drög af starfsáætlun öldungaráðs lögð fram til kynningar.
Öldungaráð Eyjafjarðarsveitar samþykkir samhljóða að vinna út frá eftir fjórum áherslusviðum á kjörtímabilinu 2026-2030:
1. Heilsa og virk öldrun.
2. Aðgengi og þjónusta.
3. Húsnæði og aldursvænt umhverfi.
4. Stafræn þátttaka og upplýsingamiðlun.
Á starfsárinu 2026-2027 verði lögð sérstök áhersla á stöðugreiningu á högum eldri íbúa, samráð við íbúa og gerð tillagna um forgangsverkefni kjörtímabilsins.
Formanni öldungaráðs er falið að leggja fram ítarlegri útfærslu á tillögu að einstökum þáttum starfsáætlunarinnar á næsta fundi ráðsins.
6. E2410018 - Önnur mál öldungaráðs
Umræður um önnur mál.
Ráðið felur formanni öldungaráðs og fulltrúa félags FEBE að senda inn grein í Eyvind um starfssemi og samstarfsverkefni öldungaráðs. Jafnframt felur ráðið skrifstofu- og fjármálastjóra að gera drög að almennum upplýsingabækling fyrir eldri borgara í Eyjafjarðarsveit og aðra íbúa sveitarfélagsins sem hægt væri að dreifa með Eyvindi í desember.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00