Dagskrá:
Almenn mál
1. E2611001 - Starfsáætlun öldungaráðs 2026-2030
Lögð fram til umræðu drög að starfsáætlun Öldungaráðs Eyjafjarðarsveitar fyrir tímabilið 2026-2030.
Drögin byggja á þeim fjórum megináherslum sem ráðið samþykkti á fundi sínum 5. nóvember 2026: heilsu og virkri öldrun, aðgengi og þjónustu, húsnæði og aldursvænu umhverfi og stafrænni þátttöku og upplýsingamiðlun.
Ráðið fer yfir drögin og ræðir áherslur, forgangsverkefni og næstu skref við mótun starfsáætlunarinnar.
Öldungaráð fór yfir fyrirliggjandi drög að starfsáætlun. Drögin verða kynnt fyrir Félagi eldri borgara í Eyjafjarðarsveit og sveitarstjórn og lögð fyrir ráðið til afgreiðslu á næsta fundi.
Öldungaráð leggur til við sveitarstjórn að gert verði ráð fyrir fjármunum í heilsueflandi heimsóknir í fjárhagsáætlun ársins 2027.
2. E2611027 - Lífið í sveitinni 60 - Bæklingur til eldra fólks
Lögð fram drög að bæklingnum „Lífið í Eyjafjarðarsveit“ sem ætlað er eldra fólki og aðstandendum í Eyjafjarðarsveit yfirlit yfir þjónustu, réttindi, félagsstarf og önnur úrræði sem standa til boða.
Öldungaráð fór yfir drögin og ræddi efni bæklingsins, framsetningu og dreifingu samhliða Eyvindi í desember.
Lagt fram til kynningar.
3. E2512003 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti
Lagðar fram til kynningar reglur Eyjafjarðarsveitar um afslátt af fasteignaskatti.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00