Óshólmanefnd

21. fundur 04. febrúar 2026 kl. 17:00 - 18:20 Bústólpi ehf. Akureyri
Nefndarmenn
  • Emilía Baldursdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Jóhann Reynir Eysteinsson
  • Ólafur Kjartansson
Starfsmenn
  • Hermann Jóhannesson frá Isavia
Fundargerð ritaði: Hómgeir Karlsson


Dagskrá fundarins:
1) Erindi vegna haugsetningar og efnisvinnslu á tanga á hverfisverndarsvæðinu vestan Eyjafjarðarbrautar.
“E2601024 - Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis”

2) Erindi varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna hreinsistöðvar við Skógarböðin og hótel.
“Skógarböðin (Ytri-Varðgjá, baðstaður og hótel) - deiliskipulagsbreyting vegna hreinsistöðvar nr. 0090/2026: Grenndarkynning (Óveruleg breyting á deiliskipulagi)”.

3) Önnur mál.


Afgreiðsla nefndarinnar – fundarsamþykkt:
1) Tanginn vestan Eyjafjarðarbrautar er á náttúruverndarsvæði og tilheyrir hverfisverndinni. Tanginn er ekki hugsaður sem efnisgeymsla eða vinnusvæði með tilheyrandi vélaumferð. En þar sem framkvæmdir við Skógarböðin og væntanlegt hótel hafa í för með sér rask af þessu tagi sem einhversstaðar þarf að staðsetja leggst Óshólmanefndin ekki gegn þessu afmarkaða erindi enda verði fyllsta öryggis gætt varðandi hugsanlega mengun. Að þessum leyfistíma liðnum þ.e. apríl 2026, verði gengið frá tanganum í samráði við náttúrufræðistofnun (eins og hann var áður en efni var sett þar og unnið) og hann varðveittur þannig til framtíðar.

2) Ný staðsetning fyrirhugaðrar hreinsistöðvar fyrir Skógarböð og hótel er ekki á hverfisverndarsvæðinu en hún er engu að síður á náttúruverndarsvæði sem er mjög mikilvægt fuglum. Þarna er gert ráð fyrir 125 fermetra landfyllingu við lónið til viðbótar því sem orðið er. Framkvæmdin hlýtur óhjákvæmilega að valda röskun á botnseti lónsins og lífríki. Óshólmanefndin hefur ekki fengið nein gögn með rökstuðningi fyrir því að þessi breyting sé nauðsynleg eða æskileg vegna náttúruverndar. Ekki heldur rökstuðning fyrir því að veita affalli frá hreinsistöðinni inn á hverfisverndarsvæðið vestan Eyjafjarðarbrautar, svæði sem heyrir undir náttúruverndarlög. Þarna koma leirur upp úr á fjöru og mikið er um fugla sbr. ítrekaðar fuglatalningar (Fuglar á Leirunni fyrir botni Eyjafjarðar 2004, Fuglalíf í óshólmum Eyjafjarðarár 2000, 2010 og 2020). Á flóði fara hins vegar allar leirur á kaf þannig að samfelld blanda árvatns og sjávar nær frá Eyjafjarðarbraut eystri að flugvallarsvæðinu. Mengun á einum stað á þessu svæði gæti því borist um allar leirurnar.

Sjávarföllin valda því að affallið mun alltaf dreifast um leirurnar með aðfallstraumnum undir brúna ef affallsrörið endar sunnan Leiruvegarins Ekki hefur fengist svar við því hversu langt til vesturs rörið ætti að ná, þ.e. hvort það næði fram í árfarveginn sjálfan við Leirubrúna sem mundi auka líkur á að affallið rynni til sjávar.

Þótt þriggja þrepa hreinsun eigi að skila tiltölulega hreinu affalli þá geta alltaf orðið óhöpp, bilanir eða önnur frávik og það kemur ekki fram hvaða trygging er gefin fyrir því að óhreinsað skolp renni ekki inn á leirurnar þegar hreinsun liggur niðri vegna rekstrarviðhalds eða bilana.

Óshólmanefndin mælir því gegn þessarri deiliskipulagsbreytingu og telur afar óæskilegt að byggð verði skólphreinsistöð á náttúruverndarsvæði og getur ekki samþykkt að affallinu þaðan yrði dælt yfir á einar dýrmætustu leirur landsins og jafnvel á heimsvísu.

Jóhann Reynir óskaði að bókað yrði að hann legðist ekki gegn færslu hreinsistöðvarinnar sjálfrar, en tekur undir með nefndinni að frárennslislögnin frá henni eigi að fara norður fyrir Leiruveginn eins og fyrra deiliskipulag kvað á um.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:20

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?