Dagskrá fundarins:
1) Umsókn um framkvæmdaleyfi – tímabundin haugsetning og vinnsla efnis
8. E2601024 - Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis.
2) Umsögn um Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps.
3) Yfirlit yfir stöðu mála sem tekin hafa verið fyrir í nefndinni á kjörtímabilinu
Afgreiðsla nefndarinnar – fundarsamþykkt:
1) Óshólmanefnd vísar í fyrri umsögn sína 4. febrúar 2026 . Þar segir: “Tanginn vestan Eyjafjarðarbrautar er á náttúruverndarsvæði og tilheyrir hverfisverndinni. Tanginn er ekki hugsaður sem efnisgeymsla eða vinnusvæði með tilheyrandi vélaumferð.”
Óshólmanefndin lagðist ekki gegn því afmarkaða erindi sem þarna kom fram þar sem ljóst var að framkvæmdir við Skógarböðin og væntanlegt hótel hefðu í för með sér rask sem einhversstaðar þyrfti að staðsetja. Þessi leyfistími er liðinn og nú er óskað eftir tveggja til þriggja mánaða framlengingu sem nær fram yfir varp- og ungatíma sem er afar óæskilegt. En af sömu ástæðu og fyrr mun nefndin ekki leggjast gegn þessarri afmörkuðu framlengingu enda verði fyllsta öryggis gætt varðandi hugsanlega mengun og reynt að lágmarka truflun á fuglalífið. Nefndin leggur ríka áherslu á að ekki verði um frekari framlengingar að ræða heldur verði gengið frá tanganum í síðasta lagi í lok ágústmánaðar eins og hann var áður en vinna á honum hófst. Bent er á að yfirborð tangans var óslétt með steinhnullungum og fremst á honum hóll eða hæð. Þar leituðu ýmsir andfuglar vars á öllum árstímum og æskilegt að frágangur verði með svipuðu sniði.
2) Skipulagsfulltrúi hefur óskað eftir umsögn Óshólmanefndar um endurskoðað Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps. Óshólmanefnd telur að skipulagið sé utan verksviðs nefndarinnar og því ekki tilefni til umsagnar.
Yfirlit yfir stöðu mála sem tekin hafa verið fyrir í nefndinni á kjörtímabilinu
Fundur 30. nóv. 2022
Umræða um hvort friðlýsa ætti hluta óshólmasvæðisins
Umsögn vegna beiðni um landfyllingu á hverfisverndarsvæðinu í Hvammi
Óshólmanefndin óskar eftir því að leitað verði álits Náttúrufræðistofnunar varðandi það hvort æskilegt væri að auka rennsli í austustu kvísl Eyjafjarðarár
Rætt um efnisgeymslu á hverfisverdarsvæðinu
Bent á að enn vantar upplýsingaskilti við aðkomuleiðir að hverfisverndarsvæðinu
Vangaveltur um hvort haft í vestustu kvísl Eyjafjarðarár þar sem Hólasandslína þverar ána geti haft neikvæð áhrif á vatnsstöðu
Kynning á yfirliti yfir hvort og hversu oft fuglar hafa lent á flugvélum í aðflugi eða brottför af flugvelli
Fundur 4. apríl 2023
Rætt um þröskuld í Brunná til að endurheimta þá vatnsstöðu á flæðunum sem var fyrir lengingu flugbrautar 2008. Enn vantar upp á gefin loforð þar um.
Fundur 28. júní 2023
Umsögn um tillögu að deiliskipulagi og breytingu á Aðalskipulagi vegna hótels í Varðgjárlandi
Mörk hverfisverndarsvæðis við Eyjafjarðarbraut eystri ekki rétt á korti, á að ná alveg að vegi.
Umræða um landfyllingu í Hvammi
Þröskuldur í Brunná, hvar er málið statt hjá Akureyrarbæ?
Fundur 5. júlí 2023
Umsögn vegna fyrirhugaðs hótels í Varðgjárlandi
Aftur rædd mörk hverfisverndar við Eyjafjarðarbraut eystri.
Fyrirspurn til Esveitar varðandi vatnsrennsli í austustu kvísl Eyjafjarðarár.
Fundur 16. okt 2024
ÓK gerði grein fyrir skoðunarferð með Landsneti á legu og frágangi Hólasandslínu
Umsögn um deiliskipulag flugvallar
Umsögn um deiliskipulag vegna baðstaðar í landi Ytri-Varðgjár
Umsögn um þróun íbúðarbyggðar í Vaðlaheiði
Ítrekuð fyrirspurn til Esveitar varðandi sérfræðiálit um vatnsstöðu í austustu kvísl Eyjafjarðarár og einnig um endurheimt vatnsstöðu á Hvamms- og Kjarnaflæðum
Fundur 4. mars 2025
Skilyrðum fyrir umumsögn Óshólmanefndar um landfyllingu í Hvammslandi ekki fylgt eftir í afgreiðslu sveitarstjórnar
Þröskuldur í Brunná lækkaður af einhverjum án umræðu
Fundur 22. mars 2025
Vettvangsferð að Brunná, þröskuldur mun lægri en áður, vatnsstaða ekki ásættan-leg, óskað eftir að Esveit og Akureyrarbær geri varanlegt samkomulag um hæðina.
Fundur 4. febrúar 2026
Efnisgeymsla og vinnsla á tanganum vestan Eyjafjarðarbrautar - tímabundið leyfi
Breyting á skipulagi vegna hreinsistöðvar fyrir Skógarböðin og væntanlegt hótel, Óshólmanefnd leggst gegn breytingunni með rökstuðningi
Fundur 27. apríl 2026
Umsögn um Aðalskipulag Svalbarðsstrandar
Framlenging á leyfi fyrir efnisgeymslu og vinnslu á tanganum vestan Eyjafjarðar-brautar og frágangur í lokin
Farið yfir mál sem unnin hafa verið á kjörtímabilinu, hverjum er enn ólokið og hvernig önnur hafa unnist.
Afgreiðsla mála og staða þeirra við lok kjörtímabils:
Friðlýsing hluta Óshólmasvæðis - ekki verið tekin afstaða til þess
Landfylling í Hvammi - heimiluð á þurrasta hluta, skilyrði fyrir umsögn Óshólmanefndar ekki látin fylgja með afgreiðslu sveitarstjórnar.
Aðgerðir til að auka vatnsrennsli í austustu kvísl Eyjafjarðarár. Efnisnáma sett inn á nýtt Aðalskipulag í vinnslu en í nýrri umsögn Náttúrufræðistofnunar, 18. mars 2026, koma fram ábendingar um að hugsanleg náma sé inni á mikilvægu fuglasvæði, hverfisverndarsvæði og á C hluta náttúruminjaskrár og að gera þurfi nánari grein fyrir af hverju þurfi að jafna vatnsbúskapinn milli kvísla og jafnframt meta hver áhrifin yrðu á vistkerfi og gróðurfar.
Upplýsngaskilti við aðkomuleiðir að hverfisverndarsvæðinu. Sett var upp skilti við austurenda gömlu þverbrautar vorið 2019 en það fjarlægt aftur að ósk landeiganda. Ekkert frekar gert í þessu síðan.
Haft í vestustu kvísl Eyjafjarðarár yfir Hólasandslínu, mistök í frágangi, ekki verið skoðað hvort gæti aukið flóðahættu inn á flugvallarsvæðið.
Vatnsstaða á Kjarna- og Hvammsflæðum og þröskuldur í Brunná. Mikið rætt og skoðað öll árin, ekki samstaða um hversu hár þröskuldur eigi að vera í Brunnánni. Ljóst að vatnshæð á flæðunum er ekki sú sama og var fyrir lengingu flugbrautar og fuglalíf ekkert líkt því sem var. Óvíst hvort frekari úrbætur fáist.
Mörk hverfisverndarsvæðis við Eyjafjarðarbraut eystri ekki rétt merkt á korti en rétt í texta Aðalskipulags þ.e. hverfisverndarsvæðið nær alveg að vegi.
Tímabundið leyfi fyrir efnisgeymslu og vinnslu á tanganum vestan Eyjafjarðarbrautar eystri veitt í febrúar 2026 fram í miðjan apríl. Óskað eftir framlengingu í 2-3 mánuði, Óshólmanefnd leggst ekki gegn því þótt leyfið nái yfir varp- og ungatíma sem er afaar óheppilegt en leggur áherslu á að ekki verði fleiri framlengingar.
Umsagnir:
Um deiliskipulag og breytingu á Aðalskipulagi vegna hótels í Varðgjárlandi. Óshólmanefnd ítrekar ánægju sína með jákvæða þætti tilllagnanna en leggur áherslu á að allra leiða verði leitað við lokahönnun allra mannvirkjanna til að lágmarka neikvæð áhrif á umhverfið og þá sérstaklega hvað varðar leirur og grynningar í lóninu. Einnig að þess verði gætt að fuglar eigi greiða umferðarleið með unga frá varpstað í skóginum út í lónið.
Um deiliskipulag flugvallar. Óshólmanefnd benti á, með rökstuddri greinargerð, að ekki hefði enn verið staðið við endurheimt fyrri vatnsstöðu á Kjarna- og Hvammsflæðum eins og loforð voru gefin um þegar leyfi fékkst til að lengja flugbrautina og setja upp aðflugsljós með tilheyrandi vegagerð
Um deiliskipulag vegna baðstaðar í landi Ytri-Varðgjár. Óshólmanefndin ítrekar fyrri afstöðu sína, framkvæmdirnar ganga gegn náttúruverndarlögum bæði hvað varðar landfyllingu og fjarlægð byggingareits frá vatnsbakka. Lögð áhersla á að reynt verði að lágmarka neikvæð áhrif framkvæmdanna á vistkerfið.
Um þróun íbúðarbyggðar í Vaðlaheiði. Ítrekuð ábending um að kort sem fylgir tilögunni sýnir ekki rétta afmörkun hverfisverndarsvæðisins við Eyjafjarðarbraut eystri, en hverfisverndin nær alveg að vegi eins og fram kemur í texta aðalskipu-lags.
Um breytingu á skipulagi vegna hreinsistöðvar fyrir Skógarböðin og væntanlegt hótel, Óshólmanefnd leggst gegn breytingunni með ítarlegum rökstuðningi
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.18:10