Skipulagsnefnd

430. fundur 28. apríl 2025 kl. 08:00 - 09:45 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Benjamín Örn Davíðsson
  • Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Brúarland (ÍB 15) og Brúarland efra svæði (L) (SL), breytingar á skilgreiningu í ASK - 2501006
Kynning skipulagslýsingar á aðalskipulagsbreytingu fyrir Brúarland lauk 3. apríl sl. og bárust 11 erindi á kynningartímabilinu. Nefndin fjallar um innkomin erindi.
Skipulagsnefnd frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að ræða við skipulagshönnuð um framhaldið í samræmi við umræður á fundinum.
 
2. Landsnet - Kerfisáætlun 2025-2034 - Kynning umhverfismatsskýrslu - 2504011
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
 
Kerfisáætlun 2025-2034, nr. 0509/2025: Kynning umhverfismatsskýrslu (Umhverfismat áætlana)
Kerfisáætlun lögð fram til kynningar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við kerfisáætlun 2025-2034.
 
3. Deiliskipulag Hrafnagilshverfis - Óveruleg breyting vegna staðsetningu íbúða eldri borgara - 2504015
Fyrir skipulagsnefnd liggur ósk um deiliskipulagsbreytingu frá Eyjafjarðarsveit í þeim tilgangi að auka sveigjanleika á útfærslu íbúða fyrir eldri íbúa. Gerir núgildandi skipulag ráð fyrir að íbúðirnar verði í viðbyggingu við skólatröð 9-11 en eftir breytingu verði að auki heimilt að útfæra bygginguna sem sjálfstæða einingu. Þá verði heimilt að reisa tengibyggingu eða yfirbyggðan gangstíg milli bygginganna verði það raunin. Áfram verði gert ráð fyrir allt að tólf íbúðum á þremur hæðum með aðkomu frá Hólmatröð (götu E) og einu bílastæði per íbúð.
Breytingin er ekki talin hafa veruleg áhrif á aðliggjandi nágranna þar sem hæð húsnæðis og fjöldi íbúða helst óbreytt og er því óskað eftir að farið sé með breytinguna sem óverulega.
Skipulagsnefnd telur einsýnt að áformin skerði í engu hagsmuni nágranna sbr. gr. 5.8.4 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 enda helst hæð húsnæðis og fjöldi íbúða óbreytt. Skipulagsnefnd leggur því til við sveitarstjórn að erindið sé samþykkir sem óverulegt frávik frá deiliskipulagi.
 
4. Bakkatröð 52 - Smáhýsi, leyfi fyrir fjarlægðarmörkum - 2008011
Fyrir fundinum liggur erindi sem frestað var á 331. fundi skipulagsnefndar frá 31. ágúst 2020, frá Helga Má Pálssyni, lóðarhafa Bakkatraðar 52, þar sem óskað er samþykkis nágranna vegna smáhýsis sem hann vill byggja 0,5 m frá lóðarmörkum. Í gr. 2.3.5. g í byggingarreglugerð segir að byggja megi smáhýsi allt að 15 fm að stærð í 3,0 m fjarlægð frá lóðarmörkum, en með samþykki nágranna ef smáhýsið stendur nær lóðarmörkum en það. Erindinu fylgir uppdráttur frá Jónasi Vigfússyni dags. 2019-10-26.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skúrinn verði styttur eða færður þannig að hann sé ekki nær innri brún gangstéttar en 2 metrar.
 
5. Stekkjarhóll lnr 234754 - umsókn um byggingu heilsárshúss 2024 - 2402011
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi vegna íbúðarlóðar í landi Stekkjarhóls. dags. 8. apríl 2025.
Benjamín Örn Davíðsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að ræða við skipulagshönnuð um framhaldið í samræmi við umræður á fundinum.
 
6. Brúnagerði 15 L208303 - óveruleg breyting á deiliskipulagi v.hreinsivirkis - 2503041
Fyrir fundinum liggur erindi fyrir hönd lóðarhafa að Brúnagerði 15 L208303, sem frestað var á 429. fundi nefndarinnar þann 7. apríl, þar sem eftir því er leitað að heimilað verði að sett sé niður hreinsivirki innan lóðarinnar þrátt fyrir að skv. gildandi deiliskipulagi sé ætlað að tengja lóðina við sameiginlegt hreinsivirki fyrir skipulagssvæðið.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr 44.gr sömu skipulagslaga.
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45
 
Getum við bætt efni síðunnar?