Skipulagsnefnd

436. fundur 25. ágúst 2025 kl. 08:00 - 09:20 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Benjamín Örn Davíðsson
  • Fjóla Kim Björnsdóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:
1. Umsagnarbeiðni v. Orlofshús og hótel á Leifsstöðum - Kynning matsáætlunar - E2508002
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
Orlofshús og hótel á Leifsstöðum, nr. 1033/2025: Kynning matsáætlunar (Mat á umhverfisáhrifum)
Skipulagsnefnd hefur farið yfir erindi Skipulagsstofnunar, nr. 1033/2025, um matsáætlun vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar Orlofshús og hótel á Leifsstöðum.
Skipulagsnefnd telur að greinagerð skipulags sé fullnægjandi hvað varðar umhverfisáhrif og því ekki þörf á frekara umhverfismati framkvæmda. Framkvæmdin er háð framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi hjá Eyjafjarðarsveit.

2. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Varðgjárlón hækkun vatnsyfirborðs - E2506054
Fyrir fundinum liggur umsögn Náttúruverndarstofnunar vegna umsóknar N10b um framkvæmdaleyfi í þeim tilgangi að koma fyrir þrepi í ræsi við Þjóðveg 1 úr lóni sem myndaðist þegar Eyjafjarðarbraut eystri var lögð.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um umsókn N10b ehf. um framkvæmdaleyfi vegna hækkunar vatnsyfirborðs í Varðgjárlóni við Skógarböð með því að koma fyrir þröskuldi í ræsi við Þjóðveg 1.
Skipulagsnefnd hefur kynnt sér umsögn Náttúruverndarstofnunar, dags. 6. ágúst 2025, sem tekur fram að framkvæmdin felur ekki í sér verulega röskun lands eða gróðurs heldur fyrst og fremst hækkun vatnsyfirborðs tjarnar um allt að 15 cm.
Skipulagsnefnd lítur svo á að landeigandi hafi sýnt fram á að hagsmunir af framkvæmdinni vegi þyngra en möguleg áhrif þess. Felur framkvæmdin meðal annars í sér það markmið að vernda andarunga fyrir ágangi máva sem tína andarungana upp þegar vatnsstaða tjarnarinnar er lægri og þornar að hluta til upp á fjöru. Þá liggja ekki fyrir vísbendingar um að hækkunin hafi neikvæð áhrif nærsvæði tjarnarinnar sem ekki mun stækka að ummáli.
Skipulagsnefnd telur ljóst að umfang framkvæmdarinnar sé takmarkað og áhrifin afturkræf ef til framtíðar verður ákveðið að fjarlægja þröskuldinn.
Með vísan til framangreinds og 61. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd leggur
skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni.

3. Umhverfis- og orkustofnun - Umsókn um rannsóknarleyfi á vatnasviði Eyjafjarðarár - E2507006
Arctic Hydro ehf. Sækir um leyfi til rannsókna á afmörkuðum hluta vatnasviðs Eyjafjarðarár innarlega í Eyjafjarðardal í Eyjafjarðarsveit í Eyjafirði, með tilliti til fýsileika og hagkvæmni rennslisvirkjunar í Eyjafjarðará.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki sé gerð athugasemd við að Arctic Hydro ehf. fái leyfi til rannsóknar á umræddu svæði.

4. Vegagerðin - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Akursvegar 2 nr. 8403-01 og Brúarlandsvegar nr. 8485-01 af vegaskrá - E2508008
Fyrir fundinum liggur tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Akursvegar 2 nr. 8403-01 og Brúarlandsvegar nr. 8485-01 af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar.
Skipulagsnefnd bendir á að lögheimili er á Akri og er því ekki eðlilegt að taka veg nr 8403-01 af Vegskrá. Skipulagsfulltrúa falið að koma þeirri ábendingu til Vegagerðarinnar.

5. Umsagnarbeiðni, Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag - Lýsing - E2508010
Svalbarðsstrandarhreppur hefur óskað eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
Svalbarðsstrandarhreppur, Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag, nr. 1123/2025:
Lýsing (Nýtt deiliskipulag)
Kynningartími er frá 13.8.2025 til 10.9.2025.
Skipulagsnefnd bendir á að mikilvægt sé að samskipti séu milli landeigenda og skipulagshönnuða varðandi mögulegar vegtengingar á milli skipulagssvæða til norðurs og suðurs bæði varðandi aksturs- og gönguleiðir utan Veigastaðavegar. Að öðru leiti leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við lýsingu á nýju deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Vaðlaborgum B sem tekur mið af rammahluta aðalskipulags sveitarfélaganna um uppbyggingu byggðar í Vaðlaheiði.

6. Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos - Breytingartillaga á deiliskipulagi - E1706026
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Odda (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos. Tillagan var áður auglýst með athugasemdafresti frá 8. febrúar 2021 til 1. apríl 2021 en sökum þess að ár leið frá því að tillagan var auglýst áður en auglýsing um gildistöku var birt í B deild Stjórnartíðinda, þurfti að auglýsa tillöguna að nýju.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti þann 26. febrúar 2025 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Leifsstaðabrúnum, Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos
Skipulagsnefnd hefur farið yfir innkomnar athugasemdir sem bárust við endurauglýsingu tillögunnar. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingar verði gerðar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum og að skipulagsfulltrúa verði falið að sjá um gildistöku tillögunnar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

7. Héraðsreiðleið RH7 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - E2508019
Reiðveganefnd hestamannafélagsins Funa óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðleið um Brúnir eða staðfestingu á að fyrra framkvæmdaleyfi taki yfir þessa framkvæmd. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins þar til búið er að kynna framkvæmdina fyrir landeigendum og þeim hefur verið gefið færi á að koma með ábendingar varðandi legu reiðleiðarinnar. Málið verður tekið aftur fyrir á næsta fundi skipulagsnefndar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:20

Getum við bætt efni síðunnar?