Dagskrá:
1. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 - Auglýsing tillögu - E2508021
Akureyrarbær Óskar umsagnar Eyjafjarðarsveitar vegna breytinga á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, nr. 1317/2024: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi)
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við auglýsta tillögu Akureyrarbæjar að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, nr. 1317/2024.
2. Skáldsstaðir 3 L232130 - Frístundarhús - Skipulagsmál - E2508005
Fyrir fundi liggur umsókn frá Kolbrúnu Elfarsdóttur þar sem hún sækir um leyfi fyrir frístudahúsi á lóðinni Skáldsstaðir 3, Eyjafjarðarsveit. erindinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar þar sem óskað var eftir umsögn veðurstofu sem liggur nú fyrir. Erindinu fylgja uppdrættir frá Emil Þór Guðmundssyni ásamt umsögn veðurstofu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
3. Hótel við skógarböðin - Fyrirspurn varðandi staðsetningu hreinsistöðvar - E2509010
Fyrir fundi liggur fyrirspurn frá eigendum Skógarbaðanna þar sem þau vilja kanna hug Sveitafélagsins á breyttri staðsetningu hreinsistöðvar fyrir hótelið og skógarböðin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimilað verði að fara af stað með skipulagsbreytingu vegna nýrrar staðsetningar á hreinsivirki.
4. Ytri-Varðgjá - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð - E2509011
Fyrir fundi liggur beiðni landeigenda Ytri-Varðgjá um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar. Meðfylgjandi eru upprættir eftir Helga Má Pálsson frá Eflu.
Skipulagsnefnd bendir landeiganda og hönnuðum á að halda sig við viðmið Vegagerðarinnar varðandi langhalla vega, óskað eftir uppfærðum hönnunargögnum með þessi sjónarmið að leiðarljósi.
5. Ytri-Varðgjá - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu - E2509012
Fyrir fundi liggur beiðni frá Landslag ehf. f.h eigenda Ytri-Varðgjár þar sem óskað er eftir heimild til að vinna breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Ytri-Varðgjá sem öðlaðist gildi 3. júlí 2025.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna tilfærslu hreinsistöðvar þar sem því var hafnað á fyrra stigi skipulagsferlis. Þó verði heimilt að fara í vinnu við óverulega breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Ytri-Varðgjá vegna áfangaskiptingar.
6. Deiliskipulag Hrafnagilshverfis - Laugartröð 4 - E2411042
Umræðum um skipulag á lóðinni að Laugartröð 4 var frestað í deiliskipulagsferli Hrafnagilshverfis þar sem ekki náðist samkomulag um nýtingu hennar. Með flutningi leikskólans í nýtt húsnæði er kominn tími til að endurskoða deiliskipulagið og skilgreina framtíðarhlutverk lóðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að í núverandi endurskoðun á aðalskipulagi verði reiturinn endurskilgreindur. Þannig fái hann að hluta skilgreiningu opins svæðis og að hluta skilgreiningu samfélagsþjónustu.
7. Deiliskipulag Hrafnagilshverfis - Óveruleg breyting vegna lóðar að Skólatröð 13 - E2509015
Fyrir skipulagsnefnd liggur ósk um deiliskipulagsbreytingu frá Eyjafjarðarsveit í þeim tilgangi að minnka lóð sveitarfélagsins að Skólatröð 13. Við breytinguna er gert ráð fyrir að lagnir svæðisins sem áður voru innan lóðar séu fyrir utan lóð.
Breytingin er ekki talin hafa veruleg áhrif á aðliggjandi nágranna þar sem lóðin og svæðið umlyggjandi hana á umræddu svæði sem breytingin nær til er í eigu sveitarfélagsins sjálfs.
Óskað er að farið verði með málið sem óverulegt frávik frá deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd telur einsýnt að áformin skerði í engu hagsmuni nágranna sbr. gr. 5.8.4 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 enda sé lóðin og aðliggjandi land sem breytingin nær til í eigu umsækjanda sjálfs. Skipulagsnefnd leggur því til við sveitarstjórn að erindið sé samþykkir sem óverulegt frávik frá deiliskipulagi.
8. Héraðsreiðleið RH7 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - E2508019
Fyrir liggur umsókn Reiðveganefndar hestamannafélagsins Funa um framkvæmdaleyfi fyrir reiðleið um Brúnir. Málinu var frestað þar til landeigendum hafði verið gefinn kostur á að koma með ábendingar. Ábendingar hafa borist munnlega frá landeiganda að Brúnum en landeigandi að Laugarlandi mun skila svari síðar.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins þar til svar Kirkjunnar liggur fyrir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:45