Dagskrá:
1. Grísará 1 (F2158643) - Umsókn um breytingu á staðfangi - E2510005
Fyrir fundinum liggur beiðni frá landeigendum Grísarár I, þar sem óskað er eftir að breyta staðfangi fasteignarinnar í Sólarhæð
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang fasteignarinnar Grísarár I verði breytt í Sólarhæð í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
2. Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús - E2411007
Á fundi nefndarinnar 20.05.2025 var fjallað um breytingu á aðal- og deiliskipulagi á Leifsstöðum, ásamt tilkynningu til Skipulagsstofnunar vegna matsskyldu framkvæmda sbr. 1. viðauka laga nr. 111/2021. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og niðurstaða Skipulagsstofnunnar varðandi umhverfismat. Skipulagsstofnun birti ákvörðun sína um matsskyldu þann 25. september 2025, er það niðurstaða stofnunarinnar að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana, og sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna vinnslutillögu að aðal- og deiliskipulagi fyrir opnu húsi og leggur til við sveitarstjórn að tillögurnar verði auglýstar skv. 31. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
3. Anna María Richardsdóttir - Gamla þinghúsið - E2510006
Fyrir liggur erindi frá Önnu Richardsdóttur, þar sem hún leggur fram hugmynd um að nýta gamla þinghúsið sem menningarmiðstöð með vinnustofum og gistiaðstöðu fyrir listafólk.
Lagt fram til kynningar og erindinu vísað til sveitarstjórnar.
4. Torfur - L152816 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir malartöku - E2502020
Erindi dags. 13.10.25 þar sem landeigendur Torfna sækja um stækkun á malartökusvæði. Um ræðir 35.000 m3 á 2,5 ha.
Benjamín Örn Davíðsson vék af fundi við þennan lið.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í vinnslu endurskoðunar aðalskipulags.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:45