Dagskrá:
1. Torfufell land T3 L190307 - Umsókn um breytingu á staðfangi - E2511033
Erindi dagsett 22. nóvember 2025 þar sem eigendur Torfufells Lands T3 (L190307) óska eftir breytingu á staðfangi. Nýtt staðfang yrði Nátthagi
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang fasteignarinnar Torfufells Lands T3 verði breytt í Nátthagi í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
2. Áttan L152853 afmörkun lóðar - Merkjalýsing - E2512006
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni dags. 16.10.2025 þar sem verið er að hnitsetja afmörkun lóðarinnar Áttunnar (L152853).
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024
3. Finnastaðir og Árbær L152594 skipting jarða - Merkjalýsing - E2512007
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni sem varðar Finnastaði og Árbæ L152594. Í merkjalýsingunni er jörðunum skipt upp í tvær aðskildar jarðir með nýjum merkjum þvert í gegnum núverandi land.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024
4. Ábending vegna endurskoðunar Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar - E2512009
Fyrir fundinum liggur ábending frá Þóru Sólveigu Bergsteinsdóttur og Erwin van der Werve í sambandi við endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.
Ábendingum vísað til vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags.
5. Merkigil - Umsókn um byggingarreit - E2601021
Fyrir fundinum liggur erindi frá Kristínu S. Hermannsdóttur og Sæmundi Sigtryggssyni þar sem þau sækja um byggingarreit fyrir um það bil 180-240 fermetra íbúðarhúsi á einni hæði í landi Merkigils land númer L152724
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsækjanda verði heimilt að byggja íbúðarhús á umbeðnum reit enda samræmist það aðalskipulagi með tilliti til fjölda íbúðarhúsa á viðkomandi jörð og er skynsamlega staðsett með tilliti til landbúnaðar á svæðinu.
6. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Fyrir fundinum liggur erindi dags. 06.01.26 frá landeigendum Syðri-Varðgjár (L152799) þar sem þeir óska eftir heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag fyrir 9 ha óbyggt íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár ofan Veigastaðavegar þar sem gert yrði ráð fyrir 15-17 íbúðarhúsum. Jafnframt fylgir skipulagslýsing unnin af Landslagi ehf. og er óskað eftir því að hún verði afgreidd í lögbundið ferli.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu og óskar eftir fundi með landeiganda og skipulagshönnuði.
8. Brúarland (ÍB 15) - breytingar á skilgreiningu í ASK og greinargerð DSK - E2501006
Fyrir fundinum liggja viðbrögð Skipulagsstofnunar, dags. 10. desember 2025, við tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Brúarlands (ÍB-15).
Lagt fram til kynningar. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að hafa umsjón með áframhaldandi vinnslu málsins þegar rammahluti aðalskipulags hefur öðlast gild í samræmi við fyrri ákvörðun sveitarstjórnar.
9. Vegagerðin - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Akursvegar 2 nr. 8403-01 og Brúarlandsvegar nr. 8485-01 af vegaskrá - E2508008
Fyrir fundinum liggur tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Akursvegar 2 nr. 8403-01 og Brúarlandsvegar nr. 8485-01 af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar.
10. Húsnæðisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 - E2512019
Fyrir fundinum liggur núverandi húsnæðisáætlun 2025 og er óskað eftir ábendingum nefndarinnar um hvort eitthvað sérstakt þurfi að hafa til hliðsjónar eða taka tillit til við endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir árið 2026.
Skipulagsnefnd tekur umræðu um stefnumótun í húsnæðisáætlun og óskar eftir uppfærðum drögum í samræmi við umræður á fundi.
11. Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812 - E2512022
Fyrir fundinum liggur erindi dagsett 11.12.2025 þar sem landeigandi sendir inn fyrirspurn um að gera vegslóða í landi Tjarna í Eyjafjarðarsveit.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið.
12. Háaborg 2 (L174046) - beiðni um stækkun skógræktarsvæðis - E2512024
Eigandi Háuborgar 2 sækir um framkvæmdaleyfi til stækkunar skógræktarsvæðis á jörðinni. Um er að ræða rúmlega 11 hektara stækkun sbr. meðfylgjandi loftmynd og yrði svæðið girt á kostnað landeiganda.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki sé gerð athugasemd við umsóknina. Stækkun svæðis verði færð inn á aðalskipulag í þeirri vinnu. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um staðsetningu girðingar.
13. Bakkaflöt - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar (1. áfangi) - E2601008
Fyrir fundinum liggur umsókn Eyjafjarðarsveitar, dags. 06.01.2026, um framkvæmdaleyfi vegna 1. áfanga gatnagerðar á nýju athafnarsvæði á Bakkaflöt.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
14. Hótel við Skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar - E2509010
Fyrir fundinum liggur uppfærð breyting á deiliskipulagi Skógarbaða og hótels þar sem brugðist hefur verið við athugasemdum sveitarfélagsins. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 1. desember 2025.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu í grenndarkynningu skv. 44. gr. laganna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10