Skipulagsnefnd

445. fundur 26. janúar 2026 kl. 08:00 - 10:50 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
  • Benjamín Örn Davíðsson var fjarverandi en fundinn sat Fjóla Kim Björnsdóttir
  • Anna Guðmundsdóttir var fjarverandi en fundinn sat Dagný Linda Kristjánsdóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Tekin upp að nýju beiðni um heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá sem frestað var á fundi nefndarinnar 12. janúar sl. og óskað eftir fundi með málshefjendum. Ómar Ívarsson, skipulagshönnuður, kemur fyrir fundinn.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingu verði vísað í kynningarferli samkvæmt 40.gr skipulagslaga 123/2010.
 
2. Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi - E2310005
Aðal- og deiliskipulagstillaga fyrir athafnasvæði á Bakkaflöt var auglýst skv. 31. og 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 17. janúar sl. 10 umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar nefndarinnar.
Samtals bárust 8 athugasemdir á auglýsingartíma deiliskipulags Bakkaflatar:
 
1. Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun telur að svæðið sem framkvæmdin nær til sé hvorki á náttúruverndarsvæðum né á svæðum sem njóta sérstakrar verndar. Stofnunin áformar því að veita ekki umsögn varðandi verkefnið.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
2. Minjastofnun Íslands
Minjastofnun Íslands hefur ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi eða nýtt deiliskipulag.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
3. Rarik
Staðsetning spennistöðvar hentar ágætlega ef um léttan iðnað eða raforkunotkun er að ræða. Ef að stórnotandi kemur inn á svæðið þarf að endurskoða staðsetningu spennistöðvar.
Rarik óskar eftir að haft verði samband tímanlega varðandi framkvæmdir.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
4. Náttúrufræðistofnun
Um er að ræða umfangsmikil áform sem fela í sér margvíslega starfsemi á svæði sem í dag er ekki ósnortið en er hins vegar við bakka Eyjafjarðarár og því viðkvæmt svæði í ýmsum skilningi. Töluvert álag er nú þegar á Eyjafjarðará og lífríki hennar vegna nýlegra vegaframkvæmda, efnistöku úr áreyrum, nábýli við bílaumferð og ýmsa starfsemi. Huga þarf vandlega að ákvörðunartöku sem eykur hættu á frekara álagi. Tryggja þarf að ástand vatnshlots Eyjafjarðarár rýrni ekki. Mengunarvarnir þurfa því að vera öflugar og forðast ætti með öllu að flytja mjög mengandi efni inn á svæðið. Þá ætti ekki að raska frekar bökkum Eyjafjarðarár og t.d. þarf að skipuleggja efnistökusvæði með tilliti til þess. Efnistaka úr virkum árfarvegum er alltaf óæskileg vegna neikvæðra áhrifa á lífríki. Jákvætt er að fyrirhugað er endurmat á áhrifum efnistöku á farvegsbreytingum og lífríki svæðanna á 5 ára fresti. Þó svæðið sé þegar raskað og lítið eftir af náttúrulegu votlendi getur svæðið engu að síður verið búsvæði fyrir fugla og annað lífríki. Æskilegt væri að gera úttekt á fuglalífi svo hægt væri að leggja mat á umhverfisáhrif tillögunnar. Aukin starfsemi á svæðinu getur raskað búsvæðum fugla en einnig valdið margvíslegri truflun á aðliggjandi svæðum s.s. á búsvæðum fugla við árbakkann. Leggja þarf mat á hver áhrif á lífríki Eyjafjarðarár geta orðið, sér í lagi laxfiska. Tryggja þarf að með haugsetningu og annarri starfsemi aukist ekki hætta á að framandi ágengari plöntutegundir dreifist frekar um svæðið og er jákvætt að lóðarhöfum verði skylt að fjarlægja alaskalúpínu og skógarkerfil.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
Í skipulagsskilmálum kemur fram að óheimilt sé að nota byggingarefni sem geta haft í för með sér útskolun skaðlegra efna í vatn, s.s. þungmálma. Einnig eru ákvæði um hreinsun ofanvatns með það í huga að hlífa vistkerfi Eyjafjarðarár eins og kostur er. Skipulagsnefnd tekur undir að lágmarka ætti rask á bökkum Eyjafjarðarár og hyggst skipuleggja vinnslu efnistökusvæðis sérstaklega og með tilliti til þess. Eins og kemur fram í umhverfismatsskýrslu tillögunnar telur nefndin að vegna smæðar skipulagssvæðis í hlutfalli við óbyggð svæði í kring verði áhrif skipulagsins á líf á landi óveruleg.
 
5. Norðurorka
Yfirfall á hitaveitu frá borholu HN-10 á vinnslusvæði Norðurorku í Botni liggur sunnan við skipulagssvæðið. Lögnin endar í skurði með stefnu N-S eftir skipulagssvæðinu. Ekki rennur vatn að jafnaði í gegnum lögnina en það gerist þó á nokkurra ára fresti. Finna þarf leið til að þetta vatn skili sér í Eyjafjarðará.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn en telur hana ekki hafa áhrif á skipulagsvinnuna. Lagt er til að hönnun svæðisins taki mið af athugasemdinni.
 
6. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
7. Vegagerðin
Vegagerðin vísar í umsögn frá tillögu á vinnslustigi.
Gæta þarf að jarðvegsmanir valdi ekki snjósöfnun á vegi[LF1.1]. Göngustígar eru sýndir til austurs út af skipulagssvæðinu í átt að Eyjafjarðarbraut vestri. Ekki er gert ráð fyrir stígum í framhaldi af þeim. Skoða þarf hvernig stígum verður háttað á milli skipulagssvæðis og Hrafnagilshverfis. Staðsetning nýrra vegamóta við þjóðveg eru samþykkt samkvæmt framlögðu deiliskipulagi. Hanna þarf vegamót í samráði við Vegagerðina.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn og leggur til að hönnun og umfang jarðvegsmana verði gerð með það í huga að ekki verði snjósöfnun á þjóðvegi. Nefndin bendir á að göngustígarnir liggja út af svæðinu til norð vesturs en ekki austurs. Lagt er til að göngu- og hjólastígur á milli skipulagssvæðis og Hrafnagilshverfis verði fundinn farvegur og skilgreindur í aðalskipulagi með tilliti til umferðar.
 
8. Akureyrarbær
Akureyrarbær gerir ekki athugasemdir.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
9 athugasemdir bárust á auglýsingatímabili við aðalskipulag Bakkaflatar:
 
1. Minjastofnun
Minjastofnun Íslands hefur ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi eða nýtt deiliskipulag.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
2. Rarik
Rarik gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
3. Norðurorka
Yfirfall á hitaveitu frá borholu HN-10 á vinnslusvæði Norðurorku á Botni liggur væntanlega að hluta til innan skipulagssvæðisins eða á suðurmörkum þess. Lögnin endar í skurði. Ekki rennur vatn að jafnaði í gegnum lögnina er það gerist á nokkurra ára fresti. Sjá þarf til þess að þetta vatn skili sér í Eyjafjarðará. Engin vatnslögn er nálægt skipulagssvæðinu og þarf að leggja lögn frá Hrafnagilshverfinu að skipulagssvæðinu.
Norðurorka áréttar að ef færa þarf veitulagnir fellur sá kostnaður á þann er óskar breytinganna.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn en telur hana ekki hafa áhrif á skipulagsvinnuna. Lagt er til að hönnun svæðisins taki mið af athugasemdinni.
 
4. Svalbarðsstrandarhreppur 
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps gerir ekki athugasemd við framlagða skipulagstillögu.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
5. Náttúruverndarstofnun
Bent er á vistgerðir sem njóta sérstakrar verndar gæti verið að finna á skipulagssvæðinu en töluverð óvissa er í viðmiðunarmælikvarða vistgerðakortlagningar. Fuglalíf þessara vistgerða er ríkulegt af mó- og vaðfuglum.
Stofnunin bendir á að ef óvissa er um áhrif á umhverfið, eða mat á áhrifum kallar á frekari rannsóknir á síðari stigum skal gerð grein fyrir því í aðalskipulagstillögunni. Mófuglar eiga undir högg að sækja vegna búsvæðaeyðinga. Stofnunin bendir á góða samantekt forstöðumanns Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi um hvernig skal taka tillit til mófugla á varptíma og bera sig að við framkvæmdir. Stofnunin telur mikilvægt að þetta komi fram í tillögunni og sömuleiðis hvaða leiðir verði farnar til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum á ofangreindar vistgerðir og búsvæði fuglanna. Bent er á vegna nálægðar við Eyjafjarðará sé mikilvægt að settir séu skýrir skilmálar til verndar hennar í samræmi við lög um stjórn vatnamála nr. 36/2011 og hindra frekari rýrnun vatnsgæða. Stofnunin bendir á að leitast skuli við að viðhalda náttúrulegum bakkagróðri við ár og stöðuvötn og haga mannvirkjum og framkvæmdum þannig að sem minnst röskun verði á bökkum og næsta umhverfi vatnsins.
Svar: skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
Í tillögu vegna aðalskipulagsbreytingar kemur fram að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar séu talin hófleg að því gefnu að ítrustu varúðar sé gætt við framkvæmdir og rekstur. Í deiliskipulagstillögu kemur fram að bakkagróður mun haldast lítt raskaður á 50 m breiðum kafla meðfram ánni.
 
6. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra
Fjallað er um afgirta lóð fyrir gámasvæði. Sú starfsemi er að mati HNE móttökustöð fyrir úrgang sbr. skilgreiningu í lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Móttökustöðvar eru háðar starfsleyfi Heilbrigðisnefndar skv. lögum nr. 7/1998 og reglugerð nr. 550/2018.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
 
7. Náttúrufræðistofnun
Um er að ræða umfangsmikil áform sem fela í sér margvíslega starfsemi á svæði sem í dag er ekki ósnortið en er hins vegar við bakka Eyjafjarðarár og því viðkvæmt svæði í ýmsum skilningi.
Töluvert álag er nú þegar á Eyjafjarðará og lífríki hennar vegna nýlegra vegaframkvæmda, efnistöku úr áreyrum, nábýli við bílaumferð og ýmsa starfsemi. Huga þarf vandlega að ákvörðunartöku sem eykur hættu á frekara álagi. Tryggja þarf að ástand vatnshlots Eyjafjarðarár rýrni ekki. Mengunarvarnir þurfa því að vera öflugar og forðast ætti með öllu að flytja mjög mengandi efni inn á svæðið. Þá ætti ekki að raska frekar bökkum Eyjafjarðarár og t.d. þarf að skipuleggja efnistökusvæði með tilliti til þess. Efnistaka úr virkum árfarvegum er alltaf óæskileg vegna neikvæðra áhrifa á lífríki. Jákvætt er að fyrirhugað er endurmat á áhrifum efnistöku á farvegsbreytingum og lífríki svæðanna á 5 ára fresti. Þó svæðið sé þegar raskað og lítið eftir af náttúrulegu votlendi getur svæðið engu að síður verið búsvæði fyrir fugla og annað lífríki. Æskilegt væri að gera úttekt á fuglalífi svo hægt væri að leggja mat á umhverfisáhrif tillögunnar. Aukin starfsemi á svæðinu getur raskað búsvæðum fugla en einnig valdið margvíslegri truflun á aðliggjandi svæðum s.s. á búsvæðum fugla við árbakkann. Leggja þarf mat á hver áhrif á lífríki Eyjafjarðarár geta orðið, sér í lagi laxfiska. Tryggja þarf að með haugsetningu og annarri starfsemi aukist ekki hætta á að framandi ágengari plöntutegundir dreifist frekar um svæðið og er jákvætt að lóðarhöfum verði skylt að fjarlægja alaskalúpínu og skógarkerfil.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
Í tillögu vegna aðalskipulagsbreytingar kemur fram að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar séu talin hófleg að því gefnu að ítrustu varúðar sé gætt við framkvæmdir og rekstur. Einnig er lagt til að haft verði samráð við Fiskistofu til að meta möguleg áhrif framkvæmda.
 
8. Vegagerðin
Meta þarf hvort efnistaka á nyrðri hluta E14B muni hafa í för með sér hættu á rofi á Eyjafjaðarbraut vestri.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
Nefndin bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi er E14b ekki til á umræddu svæði. Hinsvegar er almennt tekið tillit til aðstæðna, til dæmis varðandi rofhættu vega, við útgáfu framkvæmdaleyfis.
 
9. Akureyrarbær
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar gerir ekki athugasemdir við breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030.
Svar: Skipulagsnefnd þakkar innsenda umsögn.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýstum aðal- og deiliskipulagstillögum verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslu nefndarinnar á athugasemdum og að svo breyttar tillögur verði samþykktar skv. 32. gr. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta gildistöku skipulagsins þegar uppfærð gögn berast.
 
3. Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis - E2601024
N10b ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundinni haugsetningu á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Sótt er um leyfi til 3 mánaða fyrir geymslu og vinnslu fyrir allt að 1000 m3 af efni sem nota á að mestu við framkvæmd á byggingu hótels við Skógarböð og aðrar framkvæmdir í landi Ytri-Varðgjár. Að efnisvinnslu lokinni verður tanganum skilað í því ástandi sem hann var áður en framkvæmdir hófust.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt að fenginni jákvæðri umsögn Vegagerðarinnar og að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfið þegar umsögnin liggur fyrir. Efnistaka á svæðinu er óheimil.
 
4. Hrafnagil (L152646) - umsókn um sandtöku úr Eyjafjarðará - E2601026
Jón Elvar Hjörleifsson sækir um framkvæmdaleyfi til að taka 49.999 rúmmetra af sandi úr Eyjafjarðará neðan við aðalveginn í landi Hrafnagils skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað enda er ekki skilgreint efnistökusvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar á umræddu svæði. Nefndin bendir á að í vinnslu sé aðalskipulagbreyting sem heimilar 50.000 m3 á skipulagstímabilinu á efnistökusvæðinu sem er sameiginlegt aðliggjandi landareign. Æskilegt er að landeigendur geri samkomulag um nýtingu heimildarinnar þegar hún liggur fyrir.
 
5. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - fundargerð 18. - E2601015
Fyrir fundinum liggur fundargerð 18. fundar Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar 2022-2026 dags. 17.12.25 auk kostnaðaráætlunar 2026.
Lagt fram og kynnt
 
6. Flokkun landbúnaðarlands - endurskoðun aðalskipulags 2023 - E2309010
Minnisblað vegna flokkunar landbúnaðarlands lagt fram.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar er að vinna enduskoðun forsenda fyrir Eyjafjarðarsveit vegna flokkunnar landbúnaðarlands sem fram koma í skýrslu Eflu og Lands og skógar.
Nálgun um flokkun landbúnaðarlands rædd og vísað í áframhaldandi vinnu aðalskipulags.
 
7. Endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar - Munkaþverá malarnám - E2601036
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókninni um efnistöku verði vísað í endurskoðun aðalskipulags.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50
 
Getum við bætt efni síðunnar?