Dagskrá:
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Fyrir fundinum liggja gögn vinnslutillögu að endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2025-2037. Ómar Ívarsson frá Landslagi ehf. kemur á fundinn og kynnir tillöguna. Jafnframt verður rætt um frekari yfirferð á landnotkunarflokkum og efnistökusvæðum.
Skipulagsnefnd fór yfir athugasemdir sínar við vinnslutillöguna og felur skipulagshönnuði að uppfæra hana í samræmi við athugasemdir nefndarinnar. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærðri vinnslutillögu verði vísað í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Tillagan verður kynnt á opnum íbúafundi og verður dagsetning fundar auglýst síðar.
2. Austurhlíð L152567 - beiðni um breytta landnotkun - E2601037
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að landnotkun jarðarinnar Austurhlíðar (L152567) verði breytt úr athafnarsvæði í verslunar- og þjónustustarfsemi, með heimild fyrir ferðaþjónustu og orlofshús.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að beiðni um breytta landnotkun Austurhlíðar (L152567) verði vísað í endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.
3. Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús - E2411007
Fyrir fundinum liggur umsögn Skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Leifsstaða II fyrir auglýsingu skv. 3.mgr. 30. gr skipulagslaga 123/2010.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra tillögu að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við athugun Skipulagsstofnunar. Að því loknu verði tillagan auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Fyrir fundinum liggur uppfærð tillaga að deiliskipulagi fyrir flugskýli á Melgerðismelum. Málið var áður tekið fyrir á 662. fundi og í kjölfarið var skipulagslýsing kynnt á tímabilinu 13. ágúst-10. september 2025. Athugasemdir sem bárust við kynninguna hafa verið hafðar til hliðsjónar við mótun tillögunnar. Nú liggja fyrir uppfærð gögn þar sem m.a. er fjallað nánar um veitumál á skipulagssvæðinu.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslunni vegna tímaskorts.
5. Borgarhóll III (L2320776) - ósk um byggingarreit - E2602005
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að skilgreindur verði byggingarreitur í landi Borgarhóls III (L2320776) vegna fyrirhugaðrar byggingar sumarhúss/íbúðarhúss.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslunni vegna tímaskorts.
6. Merkjalýsing - Afmörkun á lóðinni Sólveigarstaðir (L152597) - E2602006
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni, dags. 21.08.2025, þar sem afmörkun lóðarinnar Sólveigarstaðir (L152597) er hnitsett
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslunni vegna tímaskorts.
7. Ölduhverfi - ósk um breytingu á deiliskipulagi - E2602008
Fyrir fundinum liggur erindi frá Ölduhverfi ehf um breytingu á deiliskipulagi sem tekur til raðhúsa við Bogöldu 8-18. Breytingin felur í sér að tveimur raðhúsalengjum með þremur íbúðum hvor (R1) verði breytt í fjórar íbúðir hvor (R3), samtals fjölgun um tvær íbúðir.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslunni vegna tímaskorts.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50