Skipulagsnefnd

447. fundur 23. febrúar 2026 kl. 08:00 - 09:40 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
  • Benjamín Örn Davíðsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Fyrir fundinum liggur uppfærð tillaga að deiliskipulagi fyrir flugskýli á Melgerðismelum. Málið var áður tekið fyrir á 662. fundi og í kjölfarið var skipulagslýsing kynnt á tímabilinu 13. ágúst-10. september 2025. Athugasemdir sem bárust við kynninguna hafa verið hafðar til hliðsjónar við mótun tillögunnar. Nú liggja fyrir uppfærð gögn þar sem m.a. er fjallað nánar um veitumál á skipulagssvæðinu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fela skipulagshönnuði að uppfæra tillöguna í samræmi við umræður á fundinum. Í framhaldinu verður vinnslutillagan kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
2. Jódísarstaðir L202642 - DSK breyting og merkjalýsing vegna lóða 7 og 8 - E2509037
Lögð fram merkjalýsing unnin af Guðmundi H. Gunnarssyni dags. 29.11.2025 þar sem verið er að breyta afmörkun lóðanna Jódísartúns 7 og 8 í samræmi við óverulega deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var af sveitarfélaginu 20.11.2025.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við að merkjalýsingin eigi sér stað og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Nefndin bendir þó á að skjalið sjálft sé formgallað í ljósi þess að búið sé að rita nýtt landnúmer inn á það án þess að fjarlægja hið ranga og fá nýjar undirskriftir.
 
3. Borgarhóll III (L2320776) - ósk um byggingarreit - E2602005
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að skilgreindur verði byggingarreitur í landi Borgarhóls III (L2320776) vegna fyrirhugaðrar byggingar sumarhúss/íbúðarhúss.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem það samræmist ekki gildandi aðalskipulagi. Samkvæmt skilmálum aðalskipulags er ekki heimilt að veita meira en þrjár byggingarlóðir á hverri bújörð án deiliskipulags. Ef jörð er skipt upp fylgja ekki nýjar heimildir nema jarðarhlutar séu að lágmarki 30ha. Gildandi aðalskipulag gerir ekki ráð fyrir að stofnuð séu ný íbúða- eða frístundasvæði.
 
4. Afmörkun á lóðinni Sólveigarstaðir (L152597) - Merkjalýsing - E2602006
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni, dags. 21.08.2025, þar sem afmörkun lóðarinnar Sólveigarstaðir (L152597) er hnitsett
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
5. Ölduhverfi - ósk um breytingu á deiliskipulagi - E2602008
Erindi frá Ölduhverfi ehf um breytingu á deiliskipulagi sem tekur til raðhúsa við Bogöldu 8-18. Breytingin felur í sér að tveimur raðhúsalengjum með þremur íbúðum hvor (R1) verði breytt í fjórar íbúðir hvor (R3), samtals fjölgun um tvær íbúðir.
Linda Margrét Sigurðardóttir víkur af fundi undir þessum fundarlið.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindið sem óverulega deiliskipulagsbreytingu skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3.mgr. 44.gr. sömu skipulagslaga. Skipulagsnefnd bendir jafnframt á að breytingin eigi ekki að leiða til aukningar á heildarfjölda íbúða á skipulagssvæðinu og það þurfi að taka tillit til þess annar staðar á skipulaginu.
 
6. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Espihóll efnistaka - E2602003
Tekin fyrir framkvæmdaleyfisumsókn dags. 29.01.2026 þar sem Svana Ósk Rúnarsdóttir sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 25.000 m3 efnistöku úr malarkambi á jörðinni Espihóli.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags.
 
7. Vegagerðin - leiðbeiningar um gerð samgöngumats - E2602014
Vegagerðin kynnir nýútgefnar leiðbeiningar um gerð samgöngumats en tilgangur þess er m.a. að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa þeirra á umferð og samgönguinnviði.
Lagt fram og kynnt.
 
8. Óshólmanefnd - fundargerð 4.02.2026 - E2602013
Fundargerð Óshólmanefndar dags. 4. febrúar 2026 lögð fram til kynningar.
Skipulagsnefnd þakkar ábendingar Óshólmanefndar en horft verður til þeirra í áframhaldandi vinnu.
 
9. Ytri-Hóll 3c - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - E2602017
Sigfús Hreiðarsson sækir um stöðuleyfi fyrir tjaldhýsi á jörðinni Ytri-Hól 3C (L226462) sbr afstöðumynd. Um er að ræða tjald sem reist yrði milli tveggja gáma sem þegar eru á staðnum sem yrði notað undir hundaþjálfun og fylgja myndir af sambærilegum tjaldhýsum erindinu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi fyrir tjaldhýsi á Ytri-Hól 3c. Stöðuleyfið gildir í eitt ár. Erindinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
 
10. Fyrirspurn vegna gerðar vegslóða í landi Tjarna L152812 - E2512022
Fyrir fundinum liggur umsókn um framkvæmdaleyfi til gerðar vegslóða í landi Tjarna (L152812), dagsett 16.02.2026. Fyrirhugaður vegslóði er um 2,9 km langur inn með Eyjafjarðará að austanverðu, frá Glerá og til móts við Hafrá. Jafnframt er sótt um efnistöku á 3.000 rúmmetrum af efni úr námu E27 sem ætlunin er að nýta til gerðar vegslóðans. Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 12. janúar sl. þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við erindið.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir gerð vegslóða í landi Tjarna og efnistöku á 3.000 rúmmetrum af efni úr námu E27 í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Lögð er áhersla á góðan frágang við gerð vegslóðans og á efnistökusvæðinu. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
 
11. Kroppur land L179875 - umsókn um sandtöku úr Eyjafjarðará - E2602028
Landeigendur Kropps lands L179875 sækja um heimild til að taka 300 rúmmetra af sandi úr Eyjafjarðará skv. meðfylgjandi afstöðumynd. Sandurinn yrði notaður til viðhalds reiðvegar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við sandtökuna enda er um að ræða minniháttar sandtöku landeiganda til eigin nota.
 
12. Sigtún - Umsókn um byggingarheimild - E2601001
Byggingarfulltrúa hefur borist byggingarleyfisumsókn frá Aðalbjörgu Þórólfsdóttur þar sem hún sækir um byggingu vélaskemmu á jörðinni Sigtúni L152764 sbr. meðfylgjandi aðaluppdrætti. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu og óskar byggingarfulltrúi umsagnar nefndarinnar um áformin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki sé gerð athugasemd við byggingu vélaskemmu á jörðinni Sigtúni þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun og byggðamynstur. Lagt er til að fallið sé frá grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem byggingaráformin varða ekki aðra en landeigendur og sveitarfélagið. Lögð er áhersla á að fyrir liggi staðfesting allra eigenda jarðarinnar um að þeir samþykki byggingaráformin áður en framkvæmdaleyfi er gefið út.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40
Getum við bætt efni síðunnar?