Skipulagsnefnd

448. fundur 09. mars 2026 kl. 08:00 - 10:10 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Vinnslutillaga endurskoðaðs Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar var kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 19.02 til 05.03 2026. Opinn íbúafundur var haldinn 25. febrúar síðastliðinn. 12 umsagnir bárust við kynninguna og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum skipulagsnefndar við gerð Aðalskipulagstillögu. Aðalskipulagstillagan verði síðan tekin aftur fyrir nefndina.
 
2. Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar - E2509010
Grenndarkynningu óverulegrar deiliskipulagsbreytingar Skógarbaða og hótels vegna staðsetningar hreinsistöðvar lauk 27. febrúar sl. og bárust 5 umsagnir við breytinguna.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu málsins verði frestað þar sem ábendingar bárust á grenndarkynningartíma og þörf er á uppfærðum gögnum áður en endanleg afstaða er tekin. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir uppfærðum gögnum frá skipulagshönnuði með hliðsjón af framkomnum umsögnum. Málið verður tekið fyrir að nýju þegar gögn hafa borist og grenndarkynnt að nýju skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
3. Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos - Breytingartillaga á deiliskipulagi - E1706026
Fyrir fundinum liggja viðbrögð Skipulagsstofnunar vegna breytingar á deiliskipulagi Odda (áður Espigerðis), Birkitraðar og Kvosar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga. Málið var seinast á dagskrá nefndarinnar 17.11.25.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til uppfærð skipulagsgögn liggja fyrir sem taka mið af athugasemdum Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
4. Hólshús - beiðni um breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis - E2602045
Lóðarhafi Vörðuhóls (L203110) óskar eftir heimild til að breyta deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Hólshúsa sbr. meðfylgjandi erindi frá Landslagi dags. 27.02.26. Breytingin snýst um byggingarmagn lóðarinnar Vörðuhóls. Gildandi deiliskipulag fylgir fundargögnum til glöggvunar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir breytingarblaði deiliskipulagsbreytingarinnar og fullnusta deiliskipulagsbreytinguna þegar öll gögn liggja fyrir.
 
5. Vökuland III - Umsókn um byggingarheimild - E2602030
Byggingarfulltrúa hefur borist umsókn um byggingarleyfi frá Ævari Guðmundssyni fyrir hönd eigenda Vökulands III (L226520) þar sem sótt er um að byggja um 30 fermetra viðbyggingu við suðurhlið íbúðarhússins sbr. meðfylgjandi umsókn og aðaluppdrætti. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið og óskar byggingarfulltrúi því umsagnar nefndarinnar um áformin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
 
6. Sölvastaðir - umsókn um byggingarreit fyrir starfsmannahús - E2603004
Fyrir fundinum liggur umsókn fyrir hönd Sölvastaða ehf. um að breyta deiliskipulagi Sölvastaða svínabús sbr, meðfylgjandi erindi og uppdrátt deiliskipulagsbreytingarinnar, dags. 04.03.26. Breytingin felst í því að bætt yrði við 1971 fm lóð fyrir starfsmannahús sunnan lóðar svínabús og þar skilgreindur byggingarreitur þar sem heimilt yrði að byggja starfsmannahús með grunnfleti allt að 170 fm. Starfsmannahúsið sem um ræðir var áður hluti af leikskóla Eyjafjarðarsveitar. Hreinsivirki fráveitu yrði austan lóðar.
Gildandi greinargerð deiliskipulagsins fylgir með til glöggvunar.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að ræða við skipulagshönnuð um útfærslu lóðar.
 
7. Húsnæðisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 - E2512019
Fyrir fundinum liggja uppfærð drög að húsnæðisáætlun fyrir árið 2026, unnin í framhaldi af umfjöllun skipulagsnefndar á fundi 12.01.2026 og sveitarstjórnar 15.01.2026.
Lagt fram til kynningar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10
Getum við bætt efni síðunnar?