Skipulagsnefnd

449. fundur 23. mars 2026 kl. 08:00 - 09:35 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson var fjarverandi en fundinn sat Dagný Linda Kristjánsdóttir
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Fjóla Kim Björnsdóttir
  • Benjamín Örn Davíðsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Tekin til umfjöllunar áform landeigenda sem bárust við kynningu vinnslutillögu endurskoðunar aðalskipulags. Jafnframt liggur fyrir álit Náttúrufræðistofnunar vegna hugmynda um nýtt efnistökusvæði í austari kvísl Eyjafjarðarár og umsögn HMS um vinnslutillöguna dags. 20 mars 2026.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum og viðbrögðum HMS við gerð aðalskipulagstillögu. Aðalskipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð tillaga liggur fyrir.
 
2. Sölvastaðir - umsókn um byggingarreit fyrir starfsmannahús - E2603004
Tekin fyrir að nýju umsókn Sölvastaða ehf. um að breyta deiliskipulagi Sölvastaða svínabús vegna áforma um að bæta við byggingarreit fyrir starfsmannahús innan skipulagssvæðisins.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingartillögu á deiliskipulagi verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
 
3. Háaborg 2 L174046 - umsókn um stofnun lögbýlis - E2603009
Óðinn Ásgeirsson óskar umsagnar sveitarfélagsins um umsókn hans til Atvinnuvegaráðuneytis um stofnun lögbýlis að Háuborg 2 (L174046) sbr. meðfylgjandi skjöl.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt sé jákvæð umsögn vegna umsóknar um stofnun lögbýlis á Háuborg 2 L174046 enda telur nefndin að jörðin uppfylli skilgreiningu 7. mgr. 2. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og skilyrði Atvinnuvegaráðuneytis um að vera skráð lögbýli.
 
4. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Kynningu vinnslutillögu nýs deiliskipulags fyrir flugskýli á Melgerðismelum lauk 18. mars sl. 8 umsagnir bárust við tillöguna og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði sé falið að hafa innkomnar umsagnir ISAVIA og Samgöngustofu til hliðsjónar varðandi hindrunarflöt flugbrautar og fjarlægð flugskýla við flugbraut við mótun skipulagstillögu. Svo breytt skipulagstillaga verði síðan auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
 
5. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Kynningu skipulagslýsingar vegna deiliskipulags íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá lauk 18. mars sl. og bárust 6 umsagnir sem eru nú til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði sé falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Hafa þarf samráð við Vegagerðina vegna hönnunar aðkomu á skipulagssvæðið og einnig er bent á umsögn HMS um fjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá stofn- og tengivegum. Skipulagstillagan verði síðan lögð fyrir nefndina að nýju.
 
6. Grænahlíð L152615 - umsókn um byggingarreit fyrir fjós - E2603024
Dalanaut ehf. sækir um byggingarreit fyrir um 4000 fermetra fjósbyggingu á jörðinni Grænuhlíð norðan við núverandi fjós sbr. meðfylgjandi afstöðumynd frá Ívari Ragnarssyni dags. 17.03.26
Skipulagsnefnd bendir umsækjanda á að hann þarf að sækja undanþágu frá Vegagerðinni, sem veghaldara, vegna fjarlægðar frá tengivegi. Að öðrum kosti þarf að færa bygginguna lengra en 50 metra frá miðlínu vegar.
 
Afgreiðslu erindis frestað.
Frestað
 
7. Breyting á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-3030 vegna Blöndulínu 3 - umsagnarbeiðni - E2404000
Akureyrarbær óskar umsagnar sveitarfélagsins um breytingu á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030 vegna Blöndulínu 3 sem er nú í auglýsingu skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga og er umsagnarfrestur til 23. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
 
8. Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 - umsagnarbeiðni - E2505032
Svalbarðsstrandarhreppur óskar umsagnar sveitarfélagsins um endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps sem er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 29. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
 
9. Endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 - Umsagnarbeiðni - E2512013
Hörgársveit óskar umsagnar sveitarfélagsins um endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar sem er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 30. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:35
 
Getum við bætt efni síðunnar?