Skipulagsnefnd

450. fundur 13. apríl 2026 kl. 08:00 - 10:35 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
  • Benjamín Örn Davíðsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Borgarhóll III - umsókn um byggingarreit - E2603039
Tekin fyrir umsókn frá Fræhnútum ehf. um byggingarreit fyrir íbúðarhús/sumarhús í landi Borgarhóls III (L218453) sem byggir á nýjum upplýsingum.
 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um byggingarreit fyrir sumarhús/íbúðarhús á Borgarhóli III (L218453) verði samþykkt enda er heildarfjöldi íbúðar- og frístundahúsa á upprunajörðinni undir þeim þremur húsum sem heimilt er að byggja samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Bent er á að með afgreiðslunni eru byggingarheimildir jarðarinnar full nýttar samkvæmt gildandi aðalskipulagi.
 
2. Norðurorka - hita- og vatnsveita í Vaðlaheiði - E2604001
Fyrir fundinum liggur samantekt á umsögnum Norðurorku um hita- og vatnsveitu í Vaðlaheiði.
Lagt fram til kynningar.
 
3. Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi - E2310005
Viðbrögð HMS vegna yfirferðar stofnunarinnar á deiliskipulagi Bakkaflatar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lögð fram. Jafnframt fylgja uppfærð deiliskipulagsgögn frá Lilium teiknistofu þar sem brugðist hefur verið við ábendingum HMS. Aðalskipulagsbreytingin vegna Bakkaflatar var staðfest 7. apríl sl.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að svo uppfært deiliskipulag verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda hefur verið brugðist við athugaemdum HMS, þ.m.t. athugasemd um fjarlægð byggingarreita frá vegum og eru þeir nú ekki innan við 50 m. frá stofn- og tengivegum. Skipulagsfulltrúa er falið að auglýsa deiliskipulagið í B-deild Stjórnartíðinda enda hefur Aðalskipulagsbreyting Bakkaflatar þegar öðlast gildi.
 
4. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Tekin til umfjöllunar tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár frá Landslagi ehf. dags. 30.03.26 en við útfærslu tillögunnar voru hafðar til hliðsjónar umsagnir sem bárust við kynningu skipulagslýsingarinnar.
Skipulagsnefnd felur skipulagshönnuði að fella út textann um kjallara í kafla 4.2 þar sem það er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að svo breyttri deiliskipulagstillögu verði vísað í kynningu skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
5. Núpá og Þormóðsstaðaá - beiðni um breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsaflsvirkjana - E2604002
Erindi frá Arctic Hydro hf. sem áformar að reisa allt að 7,0 MW vatnsaflsvirkjun í Núpá og allt að 3,0 MW vatnsaflsvirkjun í Þormóðsstaðaá í Sölvadal. Framkvæmdin krefst breytinga á Aðalskipulagi og er óskað eftir því að sveitarfélagið hefji vinnu við breytinguna. Erindinu fylgir uppdráttur sem sýnir afstöðu helstu mannvirkja skv. frumhönnun.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að málsaðila verði heimilað að vinna skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem verði síðan lögð fyrir nefndina.
 
6. Þverá - framkvæmdaleyfisumsókn vegna efnistöku 2026 - E2602027
Sótt er um efnistöku úr Þverá í Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða einskiptisaðgerð til að ná upp efni og dýpka árfarveginn aftur en að sögn landeiganda er grunnvatnsstaða orðin mjög há á svæðinu í kring og veruleg hætta orðin á að áin brjóti sig út úr farveginum bæði til suðurs og norðurs.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu og kallar eftir umsögn Vegagerðarinnar.
 
7. Ytri-Varðgjá L232519 - framkvæmdaleyfisumsókn vegna aðkomuvegar að landspildu - E2604004
N10b ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð aðkomuvegar að landspildu sinni Ytri-Varðgjá 3 L152838 vestan Veigastaðavegar (vegnr. 828) sbr. meðfylgjandi afstöðumynd.
Skipulagsnefnd kallar eftir að umsögn Vegagerðarinnar liggi fyrir. Afgreiðslu frestað.
Frestað
 
8. Ytri-Varðgjá L232519 - framkvæmdaleyfisumsókn tímabundinnar haugsetningar malarefnis sunnan bæjarstæðis - E2604003
N10b ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundinni haugsetningu á allt að 1000 m3 af malarefni sunnan bæjarstæðis að Ytri-Varðgjá en efnið á að nota að mestu við framkvæmdir á byggingu hótels við Skógarböð auk annarra framkvæmda í landi Ytri-Varðgjár.
Umsóknin fellur innan þegar útgefins framkvæmdaleyfis fyrir gatnagerð á deiliskipulögðu íbúðarsvæði Ytri-Varðgjár sem gildir til 30.nóvember 2026.
 
9. Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis - E2601024
N10b ehf. sækir um framlengingu til 2-3 mánaða á framkvæmdaleyfi til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Núverandi framkvæmdaleyfi, sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar sl., rennur út 15. apríl nk.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfið til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri verði framlengt til 15. júlí 2026. Efnistaka á svæðinu er óheimil. Rík áhersla er lögð á að tanganum verði skilað að tímabilinu loknu í því ástandi sem hann var áður en framkvæmdir hófust. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
 
10. Ytri-Varðgjá - umsókn um stöðuleyfi fyrir skemmu - E2403029
N10b ehf. sækir um framlengingu til eins árs á stöðuleyfi fyrir 450 fm skemmu á plani við Ytri-Varðgjá en byggingin er nýtt við fyrirhugaðar framkvæmdir á jörðinni. Fyrra stöðuleyfi var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 2. maí 2024.
Skipulaganefnd leggur til við sveitarstjórn að framlenging stöðuleyfis fyrir 450 fm skemmu á plani við Ytri-Varðgjá verði veitt til eins árs og vísar erindinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
 
11. Flokkun landbúnaðarlands - endurskoðun aðalskipulags 2023 - E2309010
Skipulagsnefnd samþykkir að nýta forsendur tillagna frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar um landhalla í vinnu við flokkun landbúnaðarlands í sveitarfélaginu.
 
Flokkur 1 verði með landhalla 0-8%
Flokkur 2 verði með landhalla 8-12%
Flokkur 3 verði með landhalla yfir 12%
 
Sveitarstjóri heldur áfram með málið í samvinnu við Eflu á þessum forsendum.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:35
Getum við bætt efni síðunnar?