Dagskrá:
1. Nátthagi - Umsókn um byggingarheimild - E2604014
Erindi dagsett 13.04.2026 þar sem Jón Hlynur Sigurðsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir breytingu á hluta minkabús yfir í frístundarhús á lóðinni Nátthagi, Eyjafjarðarsveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Kára Magnússon.
Skipulagsnefnd bendir á að erindið hefur þegar verið samþykkt árið 2022 af bæði skipulagsnefnd og sveitarstjórn undir máli númer 2206003.
2. Öngulsstaðir 2 L152863 - merkjalýsing vegna nýrrar lóðar - E2604018
Landeigendur Öngulsstaða 2 sækja um að fá að stofna lóð á jörðinni sem fengi staðfangið Öngulsstaðir 6. Jafnframt er sótt um afmörkun spildu úr landi Öngulsstaða 2 sem á að sameinast lóðinni Öngulsstaðir L221874.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt leggur nefndin til að lóðin fái staðfangið Öngulsstaðir 6.
3. Hranastaðir L152652 - afmörkun lóðar undir hænsnahús - E2604021
Landeigendur Hranastaða L152652 sækja um stofnun 11.760,8 fm lóðar undir hænsnahús á jörðinni skv. merkjalýsingu unna af Hákoni Jenssyni dags. 30.03.2026. Sótt er um að nýja lóðin fái staðfangið Þorbjargarhagi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt leggur nefndin til að lóðin fái staðfangið Þorbjargarhagi.
4. Umsókn um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Eyjafjarðarsveit - E2604027
Erindi frá Instavolt Iceland ehf. þar sem óskað er eftir afnotum af bílastæðum í Eyjafjarðarsveit til uppsetningar og reksturs hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla.
Skipulagsnefnd bendir á að á skipulagi er gert ráð fyrir hraðhleðslustöð við Laugarborg. Erindinu að öðru leiti vísað til sveitarstjórnar.
5. Reykhús - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku 2024 - E2405027
Páll Ingvarsson sækir um framlengingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Reykhúsa (E24C) sem gefið var út 31. maí 2024 og gildir til 15. maí 2026. Fyrra leyfi heimilaði efnistöku 15.000 rúmmetra af sandi en eftir á að taka 6000 rúmmetra. Sótt er um að framlengja framkvæmdaleyfið til áramóta 2026-2027 og fylgja gögn fyrri framkvæmdaleyfisumsóknar fundargögnum.
Anna Guðmundsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlengingu á gildistíma framkvæmdaleyfis til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Reykhúsa (E24C) til 31. desember 2026, á grundvelli fyrirliggjandi gagna, enda hafi ekki orðið breytingar á umfangi eða forsendum framkvæmdarinnar frá útgáfu leyfis þann 31. maí 2024.
6. Ytri-Varðgjá - staðsetning gámasvæðis og framkvæmdir - E2604034
Fyrir fundinum liggur erindi frá eigendum Ekru, dags. 20. apríl 2026, þar sem óskað er eftir endurskoðun á staðsetningu gámasvæðis á Ytri-Varðgjá og gerðar athugasemdir við framkvæmdir á svæðinu.
Skipulagsnefnd telur ekki tilefni til að endurskoða staðsetningu fyrir grenndargáma og bendir á að ekki er um að ræða gámasvæði. Lögð er áhersla á að frágangur við svæðið sé snyrtilegur, það sé afmarkað með gróðri og skjólveggjum.
7. Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús - E2411007
Fyrir fundinum liggja umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma tillagna að breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Leifsstaði II vegna uppbyggingar á svæðinu. Tillögurnar voru auglýstar frá 3. mars til 17. apríl 2026 skv. skipulagslögum nr. 123/2010. Innkomnar umsagnir og athugasemdir eru lagðar fram fyrir nefndina.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir framlagðar umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma tillagnanna.
Nefndin bendir á að eðli og umfang umsagna og athugasemda á fyrri stigum skipulagsferlisins, við lýsingu og kynningu, gaf ekki tilefni til annars en að halda áfram með skipulagsferlið enda var að hluta brugðist við þeim ábendingum sem bárust. Þrátt fyrir að tillögurnar hafi ekki tekið verulegum eða íþyngjandi breytingum frá kynningu á vinnslustigi og skipulagslýsingu er fjöldi athugasemda nú meiri og eðli þeirra annað.
Skipulagsnefnd telur mikilvægt að framkomnar umsagnir og athugasemdir verði yfirfarnar ítarlega áður en endanleg afstaða er tekin til málsins.
Nefndin frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við skipulagshönnuð, þ.m.t. að taka saman svör og tillögu að viðbrögðum við framkomnar umsagnir og athugasemdir.
Málið verður lagt fyrir að nýju þegar sú vinna liggur fyrir.
8. Hólmatröð 12 - Umsókn um byggingarleyfi - E2604035
Erindi dagsett 22.04.2026 þar sem JS Trésmíði ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir raðhúsi á lóðinni Hólmatröð 12 í Eyjafjarðarsveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Vigfús Halldórsson. Samkvæmt framlögðum gögnum fer fyrirhugað byggingarmagn 57,1 m² umfram heimilt byggingarmagn á lóðinni.
Skipulagnefnd telur að um óverulegt frávik sé að ræða og ekki sé talin þörf á breytingu á deiliskipulagi með vísan í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
9. Hótel við Skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar - E2509010
Uppfærð tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna staðsetningar hreinsistöðvar fyrir Ytri-Varðgjá, baðstað og hótel lögð fram. Breytingin var upphaflega grenndarkynnt í byrjun árs þar sem bárust athugasemdir og var skipulagshönnuði falið að uppfæra breytingartillöguna með tilliti til þeirra. Hönnuður hefur nú fundað með fulltrúa Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sem hefur samþykkt fyrirliggjandi breytingartillögu fyrir hönd HNE.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi breytingartillögu á deiliskipulagi Ytri-Varðgjár, baðstaðar og hótels, vegna staðsetningar hreinsistöðvar, sé samþykkt enda hafi verið brugðist við kröfum frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra varðandi hreinsistöðina með tilliti til viðtakans Eyjafjarðarár á svæðinu.
10. Kaupangssvæðið - ásýnd byggðar og aðalskipulag - E2604037
Erindi þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Kaupangssvæðisins, annars vegar um afmörkun byggingarsvæða og hins vegar um ákvæði er varða ásýnd, byggingarstíl og yfirbragð byggðar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að áformum um stækkun á íbúðarsvæði sé hafnað enda er framboð íbúðarsvæða á skipulagi nú þegar umfram þörf samkvæmt húsnæðisáætlun.
Skipulagsnefnd leggur einnig til við sveitarstjórn að erindinu varðandi byggingarstíl sé hafnað enda séu þessar kvaðir almennt ekki settar í aðalskipulag og þá eigi svæðið við eignir fleiri aðila.
11. Þverá - framkvæmdaleyfisumsókn vegna efnistöku 2026 - E2602027
Sótt er um efnistöku úr Þverá í Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða einskiptisaðgerð til að ná upp efni og dýpka árfarveginn aftur en að sögn landeiganda er grunnvatnsstaða orðin mjög há á svæðinu í kring og veruleg hætta orðin á að áin brjóti sig út úr farveginum bæði til suðurs og norðurs.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 450. fundi sínum og frestaði erindinu meðan kallað var eftir umsögn Vegagerðarinnar sem nú liggur fyrir.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi verði samþykkt í landi Þverár. Þá verði tekið mið af umsögn Vegagerðarinnar við útgáfu framkvæmdaleyfisins þar sem ekki verði farið upp fyrir svæði númer tvö og að fylgst verði með þróun farvegar við stokk á vegi 829-01. Efnistökuaðili verði ábyrgur fyrir að bregðast við ef breyting verður á farveginum við stokkinn sem rekja má til efnistökunnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15