Skipulagsnefnd

452. fundur 08. júní 2026 kl. 09:00 - 12:20 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Dagný Linda Kristjánsdóttir
  • Reynir Sverrir Sverrisson
  • Friðrik Karlsson
  • Heiðdís Pétursdóttir
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson Skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Grænahlíð L152615 - umsókn um byggingarreit fyrir fjós - E2603024
Tekin fyrir að nýju umsókn Dalanauts ehf. um byggingarreit fyrir um 4000 fermetra fjós á jörðinni Grænuhlíð. Erindið var seinast á dagskrá sveitarstjórnar 26. mars sl. þar sem óskað var umsagnar Vegagerðarinnar vegna fjarlægðar byggingar frá vegi og Veðurstofu Íslands vegna ofanflóðamats. Umbeðin gögn liggja nú fyrir.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að byggingarreitur undir fjós á jörðinni Grænuhlíð sé samþykktur enda eru ekki gerðar athugasemdir við staðsetningu hans í umsögnum Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands. Þó er tekið undir tilmæli Veðurstofunnar um lengingu varnargarðs eða bygging og nánasta umhverfi verði hannað með skriðuhættu í huga.
 
2. Ofanflóðaúttekt - Veðurstofa Íslands - E2501010
Lögð er fram til kynningar skýrsla Veðurstofunnar vegna ofanflóðaúttektar í Eyjafjarðarsveit. Sveitarstjórn hefur fengið hana til kynningar og vísar skýrslunni til skipulagsnefndar og í vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins. Í aðalskipulaginu skal vísa í skýrsluna þannig að mið sé tekið af henni við staðsetningu mannvirkja og gerð deiliskipulaga í framtíðinni og eftir atvikum óskað staðbundins mats þar sem þörf er talin á samkvæmt skýrslunni.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd tekur undir fyrri bókun sveitarstjórnar um málið og leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að koma skýrslunni til skipulagshönnuða Aðalskipulags sveitarfélagsins og að vísað verði í hana í aðalskipulaginu þannig að mið sé tekið af henni við staðsetningu mannvirkja og gerð deiliskipulaga í framtíðinni og eftir atvikum óskað staðbundins mats þar sem þörf er talin á samkvæmt skýrslunni.
 
3. Ytri-Varðgjá 2 og 3 - Merkjalýsing vegna afmörkunar lóða - E2604041
Lögð er fram merkjalýsing vegna afmörkunar nýrra lóða úr Ytri-Varðgjá 2, L232364, og Ytri-Varðgjá 3, L152838. Með merkjalýsingunni eru afmarkaðar 15 íbúðarlóðir og eru þær hluti af og í samræmi við auglýst deiliskipulag íbúðarsvæðis á Ytri-Varðgjár, dags. 19.06.2025, auk nýrrar fráveitulóðar. Samþykkt deiliskipulag fylgir fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 enda er hún í samræmi við deiliskipulag íbúðarsvæðis Ytri-Varðgjár sem öðlaðist gildi 03.07.2025.
 
4. Bakkaflöt 1-9 - merkjalýsing og stofnun lóða - E2605027
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing vegna stofnunar lóða úr Bakkaflöt L235554. Með merkjalýsingunni eru afmarkaðar og stofnaðar lóðirnar Bakkaflöt 1-9, í samræmi við deiliskipulag Bakkaflatar sem fylgir jafnframt fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 enda er hún í samræmi við deiliskipulag athafnasvæðis á Bakkaflöt sem öðlaðist gildi 05.05.2026.
 
5. Hrafnagilsskóli - umsókn um bráðabirgðar viðbyggingu - E2605047
Eyjafjarðarsveit sækir um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðarviðbyggingu við Hrafnagilsskóla sbr. meðfylgjandi erindi og afstöðumynd. Um er að ræða gámaeiningar sem staðsettar verða sunnan við núverandi byggingu yngsta stigs og er gert ráð fyrir að byggingarnar víki þegar framkvæmdum við skóla og íþróttamiðstöð lýkur.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt þar sem um er að ræða tímabundna byggingu. Um er að ræða óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal því fallið frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu. Jafnframt áréttar skipulagsnefnd að gámarnir verði fjarlægðir eins fljótt og unnt er.
 
6. Sveinsbær - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - E2606006
Jólagarðurinn ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir um 70 fermetra hús á lóð Sveinsbæjar L208354 á meðan unnið er að undirbúningi við framtíðarstaðsetningu hússins.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi fyrir húsinu til 12 mánaða á lóð Sveinsbæs L208354 sbr. meðfylgjandi afstöðumynd og vísar umsókninni til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
 
7. Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - E2411037
Deiliskipulagstillaga fyrir flugskýli á Melgerðismelum var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 1. apríl til 15. maí sl. og bárust 8 umsangir sem eru nú til umfjöllunar nefndarinnar.
 
Minjastofnun Íslands
Umsögn:
Engar menningarminjar sáust á svæðinu við úttekt minjavarðar þann 9. september 2025 og gerir Minjastofnun ekki athugasemd við fyrirhugað deiliskipulag.
Viðbrögð:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni
 
Slökkvilið Akureyrar
Umsögn:
Slökkvilið Akureyrar bendir á að ekki er gerð fullnægjandi grein fyrir vatnsöflun vegna slökkvistarfs innan skipulagssvæðisins.
Í kafla 2.5.1 er fjallað um neysluvatn, en ekki kemur fram hvort vatnsveita svæðisins uppfylli kröfur um afköst, rennsli og þrýsting sem nauðsynleg eru við slökkvistarf. Einnig er nauðsynlegt að hafa í huga fjarlægð frá slökkvistöð. Með hliðsjón af fyrirhugaðri uppbyggingu flugskýla, þar sem gera má ráð fyrir geymslu loftfara, eldsneytis, olíu og annars eldfims búnaðar, er mikilvægt að slökkvivatn sé tryggt með fullnægjandi hætti.
Slökkviliðið gerir eftirfarandi athugasemdir og kröfur:
- Gerð verði grein fyrir brunavatnsþörf svæðisins á grundvelli áhættumats.
- Staðfest verði að vatnsveita hafi nægjanlega afkastagetu (rennslismagn og þrýsting) til slökkvistarfs.
- Skilgreind verði staðsetning brunahana eða annarra vatnstökustaða á skipulagsuppdrætti.
- Tryggt verði að aðgengi slökkviliðs að vatnstökustöðum og byggingum uppfylli kröfur gildandi byggingarreglugerðar.
- Ef vatnsveita uppfyllir ekki kröfur skal gera ráð fyrir sérstöku slökkvivatnsforðabúri (t.d. vatnstanki eða sambærilegri lausn).
Slökkvilið Akureyrar telur nauðsynlegt að ofangreind atriði verði skýrð og tryggð áður en deiliskipulagið verður samþykkt, þannig að brunavarnir á svæðinu verði fullnægjandi í samræmi við lög um brunavarnir nr. 75/2000 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Viðbrögð:
Eftirfarandi skilmálum verður bætt við í kafla 2.6 Brunavarnir:
- Áður en til framkvæmda kemur skal gera áhættumat fyrir svæðið m.t.t. brunavatnsþörf.
- Ekki verður hafin uppbygging á svæðinu fyrr en ljóst er hvort vatnsöflun sé nægjanlega til slökkvistarfs á svæðinu.
- Bætt er við að brunahanar verði staðsettir meðfram aðkomuveginum Flugslóð.
- Bætt er við að tryggja skuli aðgengi slökkviliðs að vatnstökustöðum.
- Bætt við þið þeim skilmálum að ef vatnsveita uppfyllir ekki kröfur til slökkvistarfs verður fundinn viðunandi lausn fyrir slökkvivatnsforðabúr.
 
Samgöngustofa
Umsögn:
Við yfirferð gagna er bent á að í greinargerðinni kemur ekki fram hver fjarlægð fyrirhugaðra flugskýla er frá flugbraut eða lendingarsvæði flugvallarins á Melgerðismelum. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar til að unnt sé að meta hvort fyrirhuguð mannvirki samræmist öryggiskröfum flugstarfsemi.
Jafnframt er í skipulagsgögnum tilgreint að hámarkshæð flugskýla geti orðið allt að 6,5 m frá aðalgólfi. Hins vegar er ekki gerð grein fyrir því hvort sú hæð fari inn á skilgreint hindranasvæði eða hindranaflöt flugvallarins. Nauðsynlegt er að sýnt sé fram á að fyrirhuguð mannvirki samræmist þeim hindranatakmörkunum sem gilda vegna flugstarfsemi og að þau hafi ekki neikvæð áhrif á flugöryggi.
Viðbrögð:
Á sniði í kafla 2.4 í greinagerð deiliskipulags má sjá að fyrirhuguð flugskýli eru 75m frá öryggissvæði flugbrautarinnar og að fyrirhuguð flugskýli eru langt neðan hindranasvæðis flugvallarins.
Umfjöllun um þetta í kafla 2.4 verður gerð skýrari en þess utan krefst athugasemd ekki breytinga á tillögunni.
 
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Umsögn:
HNE telur að í tillögunni hafi verið tekið tillit til athugasemda eftirlitsins varðandi nýja reglugerð um fráveitur og skólphreinsun, olíuskiljur og mengunarvarnir. Að því virtu gerir HNE engar athugasemdir við fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu eins og hún er fram sett.
Viðbrögð:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni
 
Svifflugfélag Akureryar
Umsögn:
Ef byggja á bogaskýli allt að 400 fermetrum þá er hámarkshæð að 6.5 metrum takmarkandi á breidd skýlis en hækkun í 7.5 eða 8 metra væri nægilegt.
Hér er orðalag úr tillögunni: "Þakform skal vera mænisþak eða bogadregið þak, vegghæð að hámarki 4,0 m og mænishæð eða hæsta hæð á bogaþaki frá aðalgólfi að hámarki 6,5 m." Má túlka þetta þannig að heimilt sé að byggja bogaskýli eða er kvöðin sú að veggir séu lóðréttir?
Flugvöllurinn og svæðið í kringum hann er afgirt og lokað með hliði þegar enginn er á svæðinu og þeir aðilar fá aðgang sem hafa gilt erindi á svæðið.
Þeir aðilar eru þá aðallega starfsmenn Isavia og félagar í klúbbunum sem stunda starfsemi á svæðinu eins og Vélflugfélag Akureyrar, Svifflugfélag Akureyrar og Flugmódelfélag Akureyrar.
Stofnað var sérstakt félag Flugklúbbur Íslands 1988 um rekstur svæðisins og sameiginlegs klúbbhúss "Flugstöð Þórunnar Hyrnu" sem öll félögin og hagsmunaaðilar á svæðinu eru aðilar að.
Það er góður andi á svæðinu og gott samstarf er á milli allra aðila sem þar stunda sín flug sport og við viljum halda því þannig.
Mikilvægt er að þeir aðilar sem hafa aðgang að svæðinu skilji umgengnisreglur í kringum flugvelli.
Ég tel það brýnt að kvöð sé á flugskýlum byggt á þessum 6 lóðum að þau séu aðallega ætluð í flugtengda starfsemi.
Viðbrögð:
Lagt er til að hámarkshæð verði hækkuð úr 6,5m í 7,5m en þrátt fyrir slíka hækkun eru flugskýlin fjarri því að fara inn á hindranasvæði flugvallarins.
Ekki er krafa að veggir séu lóðréttir ef byggt er flugskýli með bogaþaki og verða skilmálar hvað það varðar gerðir skýrari.
Eðli málsins samkvæmt eru flugskýli ætluð fyrir flugtengda starfsemi og því er ekki talin þörf á að setja kvöð um að svo sé.
 
Norðurorka
Umsögn:
Norðurorka gerir engar athugasemdir.
Viðbrögð:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni
 
Vegagerðin
Umsögn:
Vegagerðin hefur farið yfir tillögu að deiliskipulagi fyrir Melgerðismela flugskýli
sem barst í gegn um Skipulagsgátt 1.4.2026.
Skipulagssvæðið liggur ekki að vegum á vegaskrá. Deiliskipulagið mun hafa
mjög takmarkað áhrif á umferð um þjóðvegi eða umferðaröryggi. Vegageriðn
gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Viðbrögð:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni
 
Flugklúbbur Íslands
Umsögn:
Það er ósk okkar að þegar skipulagið fyrir flugskýlin hefur verið samþykkt í Sveitastjórn Eyjafjarðar, hvort möguleiki sé að hefja sem fyrst framkvæmdir við lagningu rafstrengs á svæðið. Áætlað er að fá straum úr tengikassa sem er vestan við þjóðbrautina við veg upp að Melbrekku. Það bráð vantar öruggt rafframboð fyrir flugvallarsvæðið og tengikassi við Hyrnu (aðstöðuhús flugklúbbana ) gæti verið 1. áfangi í þessu verkefni.
Viðbrögð:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni
 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra deiliskipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna athugasemda. Að lokinni uppfærslu verði tillagan send til HMS til staðfestingar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er skipulagsfulltrúa falið að fullnusta gildistöku skipulagsins í kjölfarið. Skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að skoða þurfi útfærslu og tilkostnað við vatnsöflun á svæðinu áður en lóðum er úthlutað.
 
8. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Deiliskipulagstillaga fyrir nýtt íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) var kynnt skv. 4 mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var umsagnarfrestur til 13. maí sl. 8 umsagnir bárust um tillöguna og eru þær nú til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Sérstaklega er bent á umsögn Minjastofnunar Íslands um að setja kvaðir í skipulagið um að fornleifarannsóknir fari fram áður en framkvæmdir hefjast og umsögn Vegagerðarinnar vegna tenginga við Veigastaðaveg. Skipulagsnefnd bendir á að veghalli aðkomuvegar má vera 12% og húsagatna 9%. Mælst er til að vegtenging við Smáralæk verði nýtt fyrir skipulagssvæðið. Skipulagshönnuði er jafnframt falið að vinna tillöguna og hönnun aðkomu inn á skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina. Uppfærð tillaga verði síðan lögð fyrir nefndina að nýju.
 
9. Vaglir L152818 - Umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku - E2503020
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Vagla L152818 á svæði E25B. Erindið var seinast á dagskrá nefndarinnar 24. mars 2025 þar sem því var frestað og óskað eftir frekari gögnum frá landeiganda sem liggja nú fyrir. Óskað er eftir heimild til að taka 40.000 rúmmetra af sandi á fjögurra ára tímabili eða 10.000 rúmmetra á ári. Umsókninni fylgja umsagnir Fiskirannsókna ehf., Veiðifélags Eyjafjarðarár og Fiskistofu auk minnisblaðs frá Verkís um mat á núverandi aðstæðum á efnistökusvæðinu.
Í minnisblaði Verkís kemur fram að metið sé að aðstæður hafi batnað á efnistökusvæðinu frá því að fyrri efnistöku lauk og að áframhaldandi takmörkuð efnistaka á svæðinu geti talist forsvaranleg sé hún unnin innan skilgreinds svæðis, með eðlilegu verklagi og með viðeigandi frágangi og eftirfylgni. Ekki er lagst gegn framkvæmdinni í umsögnum Fiskistofu, Veiðifélags Eyjafjarðarár og Fiskirannsókna ehf.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku 10.000 rúmmetra af efni á ári í tvö ár á efnistökusvæði E25B í Eyjafjarðará í landi Vagla. Nefndin telur mikilvægt að framkvæmdin taki mið af þróun svæðisins hverju sinni og að forðast skuli óhóflega og staðbundna ofdýpkun innan farvegar, sbr. umsögn Verkís. Þá skal fara fram seiðamæling fyrir og eftir framkvæmdir, áhrifin skulu metin með loftmyndum og veiðibókum og allt rask á farvegi árinnar skal fara fram á tímabilinu 1. desember til 15. júní sbr. umsögn Fiskirannsókna ehf. Framkvæmdir skulu jafnframt stöðvaðar á veiðitímabili Eyjafjarðarár og snyrtilega skal gengið um svæðið á framkvæmdatíma og jafnframt að framkvæmdum loknum. Ganga þarf úr skugga um hvort einhverjar lagnir séu fyrir á svæðinu.
Áður en framkvæmdarleyfi verður gefið út þarf að liggja fyrir samkomulag milli landeigenda um nýtingu efnistökusvæða E25A og E25B sbr. Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030.
Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
 
10. Fellshlíð - Umsókn um byggingarheimild - E2605049
Eigendur Fellshlíðar L152593 sækja um byggingarreit fyrir viðbyggingu norðvestan við núverandi fjós.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að byggingarreitur fyrir viðbyggingu við núverandi fjós á Fellshlíð verði samþykktur. Þar sem erindið er ekki talið varða hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:20
 
 
Getum við bætt efni síðunnar?