Dagskrá:
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Teknar fyrir athugasemdir HMS við tillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar en tillagan var í athugun hjá HMS fyrir auglýsingu skv. 3. mgr 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt fylgja uppfærð gögn Aðalskipulagsins þar sem brugðist hefur verið við athugasemdum HMS auk samantektar á atriðum í greinargerð sem tóku breytingum eftir yfirferð HMS.
Skipulagsnefnd gerir athugasemdir samkvæmt meðfylgjandi minnispunktum í greinargerð og yfirferð HMS og felur skipulagshönnuði að vinna úr þeim.
2. Oddi (áður Espigerði), Birkitröð, Kvos - Breytingartillaga á deiliskipulagi - E1706026
Tekin fyrir að nýju breytingartillaga á deiliskipulagi Odda (áður Espigerðis), Birkitraðar og Kvosar. Málið var seinast á dagskrá nefndarinnar 9. mars sl. þar sem lágu fyrir viðbrögð HMS eftir auglýsingu tillögunnar og var skipulagshönnuði falið að uppfæra skipulagsgögnin m.t.t. athugasemda HMS. Ný gögn frá skipulagshönnuði liggja nú fyrir auk minnisblaðs um sögu málsins.
Skipulagsnefnd frestar málinu og felur formanni nefndar og skipulagsfulltrúa að funda með landeiganda.
3. Tjarnaland land L187527 - umsókn um byggingarreit fyrir íbúðarhús - E2606005
Eigendur Tjarnalands lands L187527 sækja um byggingarreit fyrir 80-100 fermetra íbúðarhús á landareign sinni sbr. meðfylgjandi umsókn, afstöðumynd og uppdrátt. Umsókninni fylgir undirritað samþykki eigenda Ytri-Tjarna (L152835) og Tjarnagerðis (L152810) fyrir byggingaáformunum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um byggingarreit fyrir einbýlishús á Tjarnalandi landi L187527 verði vísað í grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir hagsmunaaðilar lýsa því skriflega yfir að þeir geri ekki athugasemd við áformin. Ef engar athugasemdir berast á grenndarkynningartímabili telst erindið samþykkt.
4. Jódísarstaðir land L202642 - Merkjalýsing - E2604044
Erindi vegna merkjalýsingar fyrir Jódísarstaði land, L202642. Í merkjalýsingunni er gerð grein fyrir hnitsettri afmörkun landspildunnar til samræmis við stofnskjal frá 23.09.2005 og meðfylgjandi uppdrátt.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og óskar eftir uppfærðu skjali með undirskriftum frá hlutaðeigandi aðilum.
5. Jódísartún - Merkjalýsing lóða - E2604045
Fyrir liggur merkjalýsing vegna lóða nr. 1-6 og 9-10 við Jódísartún. Í merkjalýsingunni er gerð grein fyrir afmörkun lóðanna til samræmis við stofnskjal og samþykkt deiliskipulag svæðisins
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og óskar eftir frekari upplýsingum um málið frá merkjalýsanda.
6. Ytri-Varðgjá - framkvæmdaleyfi vegna efnistöku - E2604047
Erindi frá Finni ehf. þar sem óskað er eftir heimild til 15.000 m³ efnistöku í Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár næstu 3 árin. Fyrir liggja gögn vegna framkvæmdarinnar, þ.m.t. umsagnir Fiskistofu og Veiðifélags Eyjafjarðarár.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og að óskað verði umsagnar náttúruverndastofnun, Umhverfis- og orkustofnunar og Óshólmanefndar um áformin áður en efnisleg afstaða er tekin til málsins.
7. Ytri-Varðgjá - deiliskipulag íbúðar- og þjónustusvæðis - E2605011
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing frá Landslagi ehf., dags. 7. maí 2026, vegna deiliskipulags í landi Ytri-Varðgjár neðan Veigastaðavegar. Deiliskipulagið tekur til um 10 ha svæðis þar sem gert er ráð fyrir íbúðarbyggð, orlofshúsum og starfsmannahúsum.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu enda sé það ekki í samræmi við núgildandi aðalskipulag og beinir til skipulagshönnuðar að óska aftur eftir skipulagsheimild í samræmi við nýtt aðalskipulag þegar það tekur gildi.
8. Hólmatröð 8 - fyrirspurn vegna byggingaráforma - E2606011
Fyrir fundinum liggur erindi frá Mjölni Tréverki vegna hönnunar húss að Hólmatröð 8. Óskað er eftir yfirferð og afstöðu skipulagsnefndar til fyrirliggjandi gagna, m.a. með tilliti til byggingarreits, hæðar húss og annarra atriða sem varða samræmi við gildandi deiliskipulag.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við erindið þar sem um óverulegt frávik frá deiliskipulagi sé að ræða skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal því fallið frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu.
9. Þjóðlendan Laugafell L237821 - afmörkun lóðar undir skálabyggingar - E2606017
Lögð fyrir merkjalýsing þar sem verið er að staðfesta afmörkun lóðar undir skálabyggingar á Laugafelli L172584. Laugafell L172584 er þegar til í fasteignaskrá og innan hennar eru skráðir 4 mannvirki/skálar. Með þessari merkjalýsingu er afmörkun hennar hnitsett en lóðin kemur úr þjóðlendunni Laugafelli L237821 og er 29.526,3 m² að stærð. Lóðin er samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Hálendismiðstöðvar í Laugafelli sem fylgir fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Nefndin leggur jafnframt til að staðfangi þjóðlendunnar Laugafells L237821 verði breytt i "Laugafell þjóðlenda" til þess að báðar fasteignir hafi ekki sömu staðföng.
10. Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í landi Teigs - E2410001
Teigur ehf. sækir um framlengingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi úr sandeyrum í Eyjafjarðará í landi Teigs L152808 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2025. Framkvæmdaleyfið gilti til 9. apríl 2026 og heimilaði efnistöku 20.000 m³ af sandi. Samkvæmt upplýsingum frá umsóknaraðila er búið að taka 8.992 m3 af því efni og því er óskað er eftir framlengingu leyfis til 20. júní 2027. Fylgigögn fyrra framkvæmdaleyfis eru með fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfið verði framlengt og að heimilt verði að taka það efni sem eftir á að taka miðað við fyrra framkvæmdaleyfi. Framkvæmdaleyfið skal það gilda til 20. júní 2027. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:20