Skipulagsnefnd

455. fundur 14. september 2026 kl. 08:30 - 11:10 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Dagný Linda Kristjánsdóttir
  • Reynir Sverrir Sverrisson
  • Heiðdís Pétursdóttir
  • Friðrik Karlsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Fyrir fundinum liggur uppfærð tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár L152799, dags. 9. september 2026, unnin af Landslagi ehf. Gert er ráð fyrir 15 nýjum íbúðarlóðum á um 9 ha svæði ofan Veigastaðavegar, auk lóða núverandi húsa að Syðri-Varðgjá og Brekkulæk.
Tillagan var kynnt á vinnslustigi skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust 8 umsagnir. Sveitarstjórn tók málið síðast fyrir 18. júní 2026 og fól skipulagshönnuði að hafa hliðsjón af umsögnunum.
Skipulagsnefnd fjallaði um málið og felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum áfram til skipulagshönnuðar. Afgreiðslu frestað.
 
2. Erindi vegna breytinga á farvegi Eyjafjarðarár á móti Grund - E2609030
Tekið fyrir erindi frá Ljósaborg ehf. vegna framkvæmda í Eyjafjarðará sem hafa leitt til breytinga á farvegi hennar.
Skipulagsnefnd bendir á að ekki er efnistökusvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar á umræddu framkvæmdasvæði og ekki er í gildi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að fara fram á það við framkvæmdaraðila að kvísl árinnar sem hefur verið lokað verði opnuð aftur svo áin geti runnið aftur eftir fyrri farvegi. Skipulagsfulltrúi hefur rætt við hlutaðeiganda sem hefur brugðist við og opnað kvíslina að hluta, einnig er skipulagsfulltrúa falið að fylgjast áfram með málinu.
 
3. Þórustaðir 2 L152852 - fyrirspurn um breytta landnotkun í endurskoðun aðalskipulags - E2609026
Teknar fyrir tillögur frá eigendum Þórustaða 2 L152852 um breytta landnotkun á jörðinni við endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar. Tillögurnar voru upphaflega sendar í lok síðasta árs en hafa ekki verið teknar til umfjöllunar fyrr en nú.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að áform um uppbyggingu íbúðar- og frístundabyggðar á Þórustöðum 2 verði hafnað enda hefur það verið stefna í gildandi og endurskoðuðu aðalskipulagi að beina uppbyggingu á þegar skilgreind íbúðar- og frístundasvæði sem eru talin uppfylla þörf um uppbyggingu á skipulagstímabilinu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að 9,4 ha svæðið sem sótt er um að landnotkun verði breytt úr landbúnaðarsvæði í skógræktar- og landgræðslusvæði verði samþykkt.
Skipulagsnefnd leggur jafnframt til að beiðni um að 19,3 ha svæði í Þórustaðamýri verði breytt úr landnotkunarflokknum óbyggð svæði (ÓB4) yfir í landbúnaðarsvæði til kartöfluræktar verði samþykkt.
Skipulagshönnuði Aðalskipulagsins er falið að breyta tillögunni eftir auglýsingu miðað við ofangreint.
 
4. Grænahlíð L152615 - umsókn um efnistöku af svæði E4 - E2608037
Dalanaut ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku 20.000 m³ af efni til eigin nota af efnistökusvæði E4 í Aðalskipulagi sbr. meðfylgjandi umsókn og kort af svæðinu.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt til efnistöku 20.000 m³ af efni á svæði E4 úr áreyrum Eyjafjarðarár. Sem minnst verði unnið í sjálfum farvegi árinnar og slíkt ekki heimilað frá byrjun maí til loka október. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi þegar umbeðnar umsagnir liggja fyrir.
 
5. Ytri-Varðgjá - framkvæmdaleyfi vegna efnistöku - E2604047
Fyrir fundinum liggur að nýju umsókn Finns ehf. um framkvæmdaleyfi til 15.000 m³ efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár. Málið var síðast til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar 18. júní 2026, þar sem afgreiðslu erindisins var frestað og skipulagsfulltrúa falið að óska umsagna Náttúruverndarstofnunar, Umhverfis- og orkustofnunar og Óshólmanefndar. Erindið var í kjölfarið grenndarkynnt á tímabilinu 15. júlí til 31. ágúst 2026 og bárust alls fimm umsagnir á kynningartímanum sem nú liggja fyrir til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi til 15.000 m³ af efni úr Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár verði hafnað. Framkvæmdasvæðið er innan svæðis nr. 510 á náttúruminjaskrá og á hverfisverndarsvæði. Leirurnar njóta sérstakrar verndar samkvæmt 61. gr. náttúruverndarlaga, nr. 60/2013 og skv. þeim ber að forðast að raska vistkerfum nema brýna nauðsyn beri til. Skipulagsnefnd vísar því til sveitarstjórnar að farið verði í heildstæða endurskoðun á takmörkunum á efnistöku á svæðinu í ljósi breytinga á svæðinu.
 
6. Lækkun hraða á Knarrarbergs- og Leifsstaðavegi - E2609028
Fjallað um hugmyndir sveitarfélagsins um að lækka hámarkshraða úr 70 km/klst í 50 km/klst á Knarrarbergsvegi, frá gatnamótum Veigastaðavegar, og Leifsstaðavegi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fara fram á við Vegagerðina að hámarkshraði verði lækkaður úr 70 í 50 km/klst á Knarrarbergsvegi og Leifstaðarvegi.
 
7. Leifsstaðir land 13a - beiðni um breytta skráningu úr frístundalóð í íbúðarlóð - E2608023
Fyrir fundinum liggur erindi frá eigendum Leifsstaða lands 13a, L197131, þar sem óskað er eftir að skráningu lóðarinnar verði breytt úr frístundalóð í íbúðarlóð. Erindið er lagt fram með vísan til fyrirhugaðrar þróunar byggðar á svæðinu samkvæmt rammahluta aðalskipulags fyrir Vaðlaheiði.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins. Nefndin telur mikilvægt að áður en afstaða er tekin til breytingar á landnotkun einstakra lóða innan svæðisins verði farið yfir forsendur fyrir heildstæðri uppbyggingu væntanlegs íbúðarsvæðis ÍB39 í samræmi við rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði. Sérstaklega þarf að skoða fyrirkomulag samgangna, vegtenginga, veitukerfa, fráveitu og annarra innviða auk þess hvernig staðið verði að stofnun og hlutverki félags lóðarhafa samkvæmt stefnu skipulagsins.
 
Nefndin felur Sveitarstjóra, oddvita og skipulagsfulltrúa að eiga viðræður við landeigendur og lóðarhafa á svæðinu um mögulega framtíðarsýn og hvort tilefni sé til að vinna sameiginlegt deiliskipulag fyrir landnotkunarreitinn í heild áður en teknar verða ákvarðanir um breytingar á landnotkun einstakra lóða. Málið verði lagt fyrir nefndina að nýju að þeim viðræðum loknum.
 
8. Leifsstaðabrúnir 13 - Ósk um breytta skráningu fasteignar - E2609016
Lagt fram erindi dags. 26.07.2026 frá eigendum Leifsstaðabrúna 13 L199179 þar sem þeir óska eftir því að skráningu fasteigna á lóðinni verði breytt þannig að sumarhúsalóðin verði skráð sem íbúðarhúsalóð og sumarhúsið á lóðinni skráð sem íbúðarhús.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins. Nefndin telur mikilvægt að áður en afstaða er tekin til breytingar á landnotkun einstakra lóða innan svæðisins verði farið yfir forsendur fyrir heildstæðri uppbyggingu væntanlegs íbúðarsvæðis ÍB39 í samræmi við rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði. Sérstaklega þarf að skoða fyrirkomulag samgangna, vegtenginga, veitukerfa, fráveitu og annarra innviða auk þess hvernig staðið verði að stofnun og hlutverki félags lóðarhafa samkvæmt stefnu skipulagsins.
 
Nefndin felur sveitarstjóra, oddvita og skipulagsfulltrúa að eiga viðræður við landeigendur og lóðarhafa á svæðinu um mögulega framtíðarsýn og hvort tilefni sé til að vinna sameiginlegt deiliskipulag fyrir landnotkunarreitinn í heild áður en teknar verða ákvarðanir um breytingar á landnotkun einstakra lóða. Málið verði lagt fyrir nefndina að nýju að þeim viðræðum loknum.
 
9. Jódísartún - Merkjalýsing lóða - E2604045
Fyrir fundinum liggur að nýju merkjalýsing vegna lóða nr. 1-6 og 9-10 við Jódísartún, þar sem gerð er grein fyrir afmörkun lóðanna til samræmis við stofnskjal og samþykkt deiliskipulag svæðisins. Málið var síðast tekið fyrir á 453. fundi skipulagsnefndar þann 15.06.2026 þar sem afgreiðslu var frestað og óskað eftir frekari upplýsingum frá merkjalýsanda.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
10. Höskuldsstaðir land L186707 og Höskuldsstaðir land L186708 - sameining landareigna - merkjalýsing - E2607007
Tekin fyrir merkjalýsing unnin af Þórhalli Ragnarssyni þar sem verið er að sameina landeignirnar Höskuldsstaði land L186707 og Höskuldsstaði land L186708. Sótt er um að hin sameinaða landeign fái staðfangið Drekasteinn.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir nefndin að sameinaður landskiki fái staðfangið Drekasteinn. Skipulagsnefnd bendir þó á að í endurskoðuðu Aðalskipulagi Eyjafjararðsveitar sem nú er í auglýsingu er landnotkun umræddar landeignar breytt úr frístundasvæði F7 í landbúnaðarsvæði að ósk landeiganda.
 
11. Fellshlíð L152593 - merkjalýsing lóðar - E2609018
Lögð fram merkjalýsing dags. 20.08.2026 þar sem verið er að afmarka nýja 12.176,3 m² lóð á jörðinni Fellshlíð L152593 en innan lóðarinnar yrðu íbúðarhús byggt 1948 (mhl. 02) og íbúðarhús viðbygging byggð 1979 (mhl. 16). Lagt er til að nýja lóðin fái staðfangið Fellshlíð 2.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir nefndin að nýja lóðin fái staðfangið Fellshlíð 2.
 
12. Samband íslenskra sveitarfélaga - Loftslagsstefna Íslands og loftslagsskyldur sveitarfélaga - E2609005
Lagðar fram glærur frá samtalsfundi um loftslagsstefnu Íslands og sveitarfélög.
Vísað til sveitarstjóra til frekari skoðunar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:10
 
Getum við bætt efni síðunnar?