Dagskrá:
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 – E2210043
Tekin fyrir að nýju tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025–2037, að lokinni auglýsingu. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 20. ágúst 2026 að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og athugasemdir. Málið var lagt fram á fundi skipulagsnefndar 12. október 2026 og þar var boðað til aukafundar svo fara mætti yfir umsagnirnar og athugasemdirnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:45