Skipulagsnefnd

456. fundur 12. október 2026 kl. 08:30 - 10:45 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Dagný Linda Kristjánsdóttir
  • Reynir Sverrir Sverrisson
  • Heiðdís Pétursdóttir
  • Friðrik Karlsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Tekin fyrir að nýju tillaga að endurskoðuðu Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025/2037, að lokinni auglýsingu. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 20. ágúst 2026 að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. 23 umsagnir og athugasemdir bárust og eru þær til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir framkomnar umsagnir og athugasemdir og boðar til aukafundar mánudaginn 19. október til áframhaldandi yfirferðar umsagna og athugasemda.
 
2. Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812 - E2512022
Lagt fram bréf frá Minjastofnun Íslands vegna skemmda á friðlýstum fornleifum við Granastaði í Eyjafjarðarsveit við framkvæmdir vegna lagningar vegslóða og efnistöku í landi Tjarna en Arctic Hydro hf. var veitt leyfi fyrir framkvæmdinni 13. mars sl.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjóri og skipulagsfulltúi fundi með fulltrúa Minjastofnunar og fari yfir erindið.
 
3. Hrafnabjörg L235978 - Breyting á DSK fyrir frístundarhús - E2509029
Tekin fyrir að nýju skipulagslýsing vegna deiliskipulags frístundasvæðis F6 í landi Höskuldsstaða og Jódísarstaða, unnin af Ívari Ragnarssyni, dags. 11.06.2026. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 20. ágúst sl. að lýsingin yrði kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsingin var kynnt frá 27. ágúst til 17. september 2026 og bárust sjö umsagnir á kynningartímanum. Nefndin fjallar um innkomnar umsagnir.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir framkomnar umsagnir. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að koma umsögnunum á framfæri við skipulagsráðgjafa og að unnið verði áfram að tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið með hliðsjón af þeim.
 
4. Sveinsbær L208354 - beiðni um heimild til deiliskipulagsbreytingar - E2608015
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hrafnagilshverfis þar sem afmarkaður yrði 546 fermetra byggingarreitur fyrir verslunar- og þjónustuhús á lóðinni Sveinsbær L208354 en lóðin er verslunar- og þjónustulóð í deiliskipulaginu. Á byggingarreitnum yrði heimilt að byggja allt að 100 fermetra hús þar sem hámarksvegg-/þakhæð yrði 5,0 m.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkt verði að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Hrafnagilshverfis skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem tekur til Sveinsbæjar L208354.
 
5. Vogar íbúðarbyggð - staðföng - E2608056
Fyrir fundinum liggur ábending frá íbúum í Vogum í landi Syðri-Varðgjár þar sem óskað er eftir að settur verði upp vegvísir að Vogum við Eyjafjarðarbraut eystri. Jafnframt er óskað eftir hraðamerkingu á götuna. Óskað var umsagna HMS og Vegagerðarinnar um staðföng og staðvísa á svæðinu og fylgja þær fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðföng í Vogum verði samræmd þannig að allar fasteignir með aðkomu um veginn að Vogum fái staðvísinn Vogar ásamt húsnúmeri 1-9. Tillagan er tilkomin til að skýra aðkomu neyðaraðila. Skipulagsfulltrúa er falið að útbúa tillögu að staðföngum í samræmi við leiðbeiningar HMS, kynna hana eigendum og gefa þeim kost á að gera athugasemdir. Tillagan verði lögð fyrir nefndina að nýju ásamt þeim athugasemdum sem berast.
 
6. Holt - Umsókn um byggingarheimild - E2610006
Byggingarfulltrúa hefur borist umsókn frá eigendum Holts L236419 um byggingu stakstæðs 196 m² bílskýlis suðaustan við núverandi íbúðarhús á lóðinni. Óskað er umsagnar skipulagsnefndar um áformin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
7. Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2601009
Fyrir fundinum liggur uppfærð tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár L152799, dags. 9. október 2026, unnin af Landslagi ehf. Tillögunni hefur verið breytt eftir umfjöllun skipulagsnefndar 14. september 2026.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45
 
Getum við bætt efni síðunnar?