Dagskrá:
1. Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús - E2411007
Lagðar fram uppfærðar tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Leifsstaði II vegna uppbyggingar á svæðinu. Upprunalegar tillögur voru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í vor þar sem athugasemdir bárust m.a. frá nágrönnum og var málinu frestað á fundi skipulagsnefndar 27. apríl sl. Með uppfærðum tillögum er komið til móts við hluta þeirra athugasemda sem bárust við auglýsingu fyrri tillaga, m.a. með fækkun gistirúma og minnkuðu hámarks-byggingarmagni.
Skipulagsnefnd telur að með uppfærðum skipulagstillögum sé verið að bregðast við þeim athugasemdum sem bárust við auglýsingu fyrri tillaga með því að minnka umfang uppbyggingar á svæðinu. Nefndin telur því að ekki sé um breytingu á auglýstum tillögum í grundvallaratriðum að ræða sbr. 1. mgr. 32. gr og 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og þ.a.l. ekki ástæða til að auglýsa tillögurnar aftur skv. 31. og 41. gr. sömu laga. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærðar aðal- og deiliskipulagstillögur fyrir Leifsstaði II verði samþykktar eins og fram kemur í afgreiðslu nefndarinnar á athugasemdum skv. 32., 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna að gildistöku skipulaganna og senda það til HMS til staðfestingar.
2. Núpá og Þormóðsstaðaá - beiðni um breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsaflsvirkjana - E2604002
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing, dags. 22. október 2026, sem COWI vann fyrir Arctic Hydro hf. Hún varðar breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags fyrir tvær vatnsaflsvirkjanir í Sölvadal og er unnin í framhaldi af afgreiðslu sveitarstjórnar 16. apríl 2026. Þá heimilaði sveitarstjórn málsaðila að vinna skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin á aðalskipulagi felst í því að landnotkun á virkjanasvæðunum verði breytt úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði, þar sem gert verði ráð fyrir stíflum og lónum. Fyrirhugað er að vinna deiliskipulag fyrir báðar virkjanir samhliða aðalskipulagsbreytingunni og að framkvæmdirnar fari í umhverfismat.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagslýsingin verði samþykkt til kynningar skv. 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Bringa L152577 - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku á svæði E10 - E2610028
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn frá Bringu ehf. þar sem sótt erum að taka 15.000 rúmmetra af efni á svæði E10 sem er á áreyrum Eyjafjarðarár í landi Bringu.
Reynir Sverrir Sverrisson vék af fundi við þennan lið.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku 15.000 rúmmetra af efni á svæði E10 á áreyrum Eyjafjarðarár í landi Bringu. Efnistaka er ekki heimiluð frá byrjun maí til loka október né efnistaka úr árfarveginum sjálfum. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi
4. Finnastaðaá - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku 2023 - E2302010
Sölvastaðir ehf. óska eftir að fá að framlengja framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Finnastaðaá á svæði E17 sem rennur út 30. október nk. Samkvæmt upplýsingum frá leyfishafa á eftir að taka 11.719 rúmmetra af efni af þeim 20.500 rúmmetrum sem framkvæmdaleyfið heimilaði. Óskað er eftir að framlengja leyfið til 1. apríl 2027.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að óskað verði eftir umsögn vegagerðarinnar vegna athugasemda í fyrri umsögn.
5. Umsagnarbeiðni - Vaðlaborgir B - deiliskipulag íbúðarsvæðis - E2606018
Svalbarðsstrandarhreppur óskar umsagnar sveitarfélagsins á deiliskipulagstillögu fyrir íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B en tillagan er í auglýsingu skv. 1 mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 21. nóvember nk. Sveitarstjórn veitti umsögn um vinnslutillöguna 20. ágúst sl. þar sem ekki voru gerðar athugasemdir en þó lagt til að kanna möguleikann á að tengja íbúðarsvæðin með göngustíg.
Skipulagsnefnd fagnar því að bætt hafi verið við göngustíg milli íbúðarsvæða í tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við auglýsta deiliskipulagstillögu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30