Dagskrá:
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Lögð fram að nýju tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037, að lokinni auglýsingu. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og athugasemdir. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 19. októver sl. þar sem farið var yfir athugasemdir og viðbrögð við þeim og er nú áframhald á þeirri yfirferð.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra skipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna umsagna og athugasemda. Að lokinni uppfærslu verði tillagan send aftur fyrir nefndina til afgreiðslu.
2. Aðgerðir í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar 2028-2033 - E2611011
Erindi frá Umhverfis- og Orkustofnun þar sem óskað er eftir athugsemdum sveitarfélagsins fyrir 23. nóvember vegna álagsgreiningu vatnshlota.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að sveitastjóra verði falið að vinna í málinu áfram og niðurstaða kynnt á næsta fundi nefndarinnar.
3. Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812 - E2512022
Lagt fram minnisblað frá fundi sveitarfélagsins og Minjastofnunar Íslands um skemmdir á fornleifum við Granastaði.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að verklag við útgáfu framkvæmdaleyfa verði uppfært þannig að óskað verði umsagnar Minjastofnunar Íslands áður en endanleg afstaða er tekin til leyfisveitingar á svæðum þar sem minjaskráning hefur ekki farið fram.
4. Sjöan L152852 - Merkjalýsing - E2606001
Lögð fram merkjalýsing dags. 17.09.2026 unnin af Hákoni Jenssyni þar sem verið er að afmarka lóðina Sjöuna en lóðin er skv. meðfylgjandi deiliskipulagsbreytingu Þórustaða 2 sem samþykkt var í sveitarstjórn 08.04.2021. Lóðin Sjöan er til í fasteignaskrá og hefur sama landnúmer og Þórustaðir 2 en með merkjalýsingu þessari er lóðin hnitsett og fær aðskilið landnúmer. Innan lóðar er einbýli F2160000, mhl.nr. 12.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að dagsetning deiliskipulagsbreytingar í texta merkjalýsingar og texta uppdráttar verði leiðrétt úr 28.03.2020 yfir í 08.04.2021 en það er sú dagsetning sem deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar. Jafnframt leggur nefndin til að bætt verði inn kvöð í merkjalýsinguna um að aðkoma að lóðinni verði tryggð í gegnum landeignina Þórustaði 2 L152852. Að öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemdir við framlagða merkjalýsingu og leggur til að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
5. Hlíðarhagi L152633 - fyrirspurn um byggingu vélageymslu - E2611002
Lögð fram fyrirspurn frá Páli Gísla Ásgeirssyni þar sem hann óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins til byggingar 160 fermetra vélageymslu á jörðinni Hlíðarhaga L152633 sbr. meðfylgjandi afstöðumynd. Samþykki eiganda jarðarinnar fyrir byggingaráformunum fylgir fundargögnum auk samþykkis eiganda Hlíðarhaga lands L187793.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í byggignaráformin og telur hana falla að nýtingu jarðarinnar. Umsækjandi þarf að sækja um byggingarleyfi með aðaluppdráttum sem verða í framhaldinu grenndarkynntir íbúum í 300m radíus frá byggingareit.
6. Gamla þinghúsið - framtíðarnotkun - E2611003
Umræður um framtíðarnotkun gamla Þinghússins í Hrafnagilshverfi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur 24. nóvember kl. 18:00 um framtíðarnotkun gamla Þinghússins og skipulagssvæðisins þar í kring í Hrafnagilshverfi.
Skrifstofu- og fjármálastjóri kom á fundinn og fór yfir drög að fjárhagsáætlun og svaraði spurningum nefndarmanna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:20