Skipulagsnefnd

460. fundur 23. nóvember 2026 kl. 08:30 - 10:15 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Dagný Linda Kristjánsdóttir
  • Reynir Sverrir Sverrisson
  • Heiðdís Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Inga Vala Gísladóttir
  • Friðrik Karlsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - E2210043
Fyrir liggur tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037, að lokinni auglýsingu. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og athugasemdir. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 9. nóvember sl. þar sem skipulagshönnuði var falið að uppfæra tillöguna í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar á innkomnum umsögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra skipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna athugasemda og leiðréttinga. Að lokinni uppfærslu verði tillagan send HMS til staðfestingar skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ásamt tillögu fylgir rammahluti aðalskipulags - þróun byggðar í Vaðlaheiði með sem viðauki.
 
2. Ytri-Varðgjá deiliskipulag íbúðarsvæðis (0623/2023) - E2308016
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi þar sem mælst er til þess að sveitarstjórn afturkalli deiliskipulag íbúðarsvæðis í landi Ytri-Varðgjár, sem öðlaðist gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 3. júlí 2025, og breyti skipulaginu þannig að það uppfylli ákvæði d-liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn eftirfarandi tillögu:
 
Sveitarstjórn hefur tekið erindið og fyrri athugasemdir Skipulagsstofnunar til efnislegrar umræðu. Sveitarstjórn telur að ágreiningur málsins lúti fyrst og fremst að efnislegri útfærslu deiliskipulagsins og túlkun og beitingu ákvæðis d-liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar, en ekki að formi skipulagsgagnanna sem slíku. Sveitarstjórn fellst því ekki á að um formgalla sé að ræða sem leiði sjálfkrafa til þess að afturkalla beri gildistöku deiliskipulagsins.
Við afgreiðslu málsins lá fyrir að svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018?2030. Þar er landnotkunin sýnd frá um 20 m fjarlægð ofan Veigastaðavegar og því hefur lengi legið fyrir sú stefnumörkun sveitarfélagsins að íbúðarbyggð á svæðinu geti verið nær veginum en 100 m. Þá eru fjölmörg fordæmi á nærliggjandi svæðum um staðsetningu íbúðar- og frístundahúsa innan 100 m frá Veigastaðavegi, meðal annars á Kotru, Eyrarlandi, í Kotabyggð og í Vaðlaborgum A.
Byggingarreitir þeirra sjö lóða sem um ræðir eru staðsettir í 50 m fjarlægð frá Veigastaðavegi. Sú útfærsla tekur mið af ríkjandi byggðarmynstri og sambærilegum skipulagsákvörðunum á nærliggjandi svæðum. Í greinargerð skipulagsins er fjallað um að ekki verð byggt á þessum lóðum nema undanþága frá fjarlægðarmörkum fáist. Sveitarstjórn telur mikilvægt að sambærileg tilvik fái sambærilega meðferð og að landeigendum sé ekki mismunað án þess að fyrir því standi skýr, málefnaleg og staðbundin rök.
Sveitarstjórn horfir einnig til þess að umferð um Veigastaðaveg er takmörkuð og að hámarkshraði hefur verið lækkaður í 70 km/klst. Í gildi er rammahluti aðalskipulags fyrir þróun byggðar í Vaðlaheiði þar sem jafnframt er gert ráð fyrir að hraði á Veigastaðvegi verði lækkaður í 50 km/klst. þar sem byggð er hvað þéttust og þá í samráði við Vegagerðina.
Við skipulag svæðisins hefur jafnframt verið horft til markmiða gildandi aðalskipulags um vernd ræktanlegs lands og hagkvæma nýtingu lands. Með því að nýta beltið milli 50 og 100 m frá Veigastaðavegi er unnt að draga úr þörf fyrir að taka annað og verðmætara ræktarland undir íbúðarbyggð.
Með vísan til framangreinds telur sveitarstjórn að fyrir liggi málefnaleg og staðbundin skipulagsrök fyrir þeirri lausn sem samþykkt var. Sveitarstjórn telur ekki að fram séu komnar fullnægjandi forsendur til að afturkalla deiliskipulag sem þegar hefur öðlast gildi og telur afturköllun jafnframt verulega íþyngjandi úrræði gagnvart þeim hagsmunum sem þegar hafa myndast á grundvelli skipulagsins.
Sveitarstjórn samþykkir því að verða ekki við tilmælum um afturköllun deiliskipulagsins eða birtingu nýrrar auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda um afturköllun þess. Sveitarstjórn staðfestir fyrri afstöðu sína og stendur við samþykkt deiliskipulagsins og gildistöku þess.
Sveitarstjórn áréttar jafnframt vilja sinn til áframhaldandi samtals við HMS og ráðuneytið um túlkun og framtíðarútfærslu reglna um fjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá stofn- og tengivegum, meðal annars með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum, umferðarþunga, umferðarhraða, byggðarmynstri og stefnumörkun sveitarfélaga í aðalskipulagi.
 
3. Þórustaðir 2 L152852 - fyrirspurn um breytta landnotkun í endurskoðun aðalskipulags - E2609026
Lagt fram erindi frá Jóni Helga Helgasyni þar sem hann óskar eftir frekari rökstuðningi við höfnun sveitarstjórnar á 1,0 ha byggingarlóð í landi Þórustaða 2. á fundi dags. 17.09.2026.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu erindisins verði frestað og formanni skipulagsnefndar ásamt skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda.
 
4. Áttan L152853 - beiðini um undanþágu frá fjarlægðarmörkum frá vegi - E2611005
Fyrir fundinum liggur erindi frá Landslagi ehf, f.h. landeigenda Áttunnar (L152853). Óskað er eftir undanþágu frá 100 m fjarlægð íbúðarhúsa frá stofnvegum, skv. d-lið gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013, þannig að þrjú íbúðarhús á íbúðarsvæði ÍB21 verði 80 m frá Eyjafjarðarbraut eystri.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að mælt verði með því við ráðherra að veitt verði undanþága frá d-lið gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þannig að þrjú íbúðarhús á íbúðarsvæði ÍB21 megi standa allt að 80 m frá Eyjafjarðarbraut eystri. Skipulagsnefnd bendir þó á að húsnæðisáætlun gefi til kynna að nægilegt magn byggingarheimilda innan deiliskipulaga sé til að anna eftirspurn næstu 10 ára miðað við háspá íbúaþróunar og þannig sé ekki tilefni til að opna á fleiri deiliskipulög á því tímabili.
 
5. Kotra 10 L230566 - fyrirspurn um aðkomuveg að gestahúsi - E2611029
Lögð fram fyrirspurn frá eiganda Kotru 10 um gerð nýrrar innkeyrslu inn á lóðina sem á að liggja að fyrirhuguðu gestahúsi. Uppdráttur og greinargerð deiliskipulags Kotru fylgja fundargögnum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað þar sem fyrirhuguð vegtenging samræmist ekki gildandi deiliskipulagi Kotru. Nefndin telur ekki æskilegt að breyta deiliskipulaginu þannig að heimilaðar verði tvær vegtengingar að sömu lóð.
 
6. Vogar íbúðarbyggð - staðföng - E2608056
Fyrir fundinum liggur tillaga að samræmdum staðföngum í Vogum í landi Syðri-Varðgjár, sbr. bókun sveitarstjórnar 15.10.2026. Samkvæmt tillögunni fá allar fasteignir með aðkomu um veginn staðvísinn Vogar og húsnúmer 1-9, talið frá tengingu við Eyjafjarðarbraut eystri.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við rauðu tillöguna (nr. 1-9) og felur skipulagsfulltrúa að kynna hana eigendum viðkomandi fasteigna. Að lokinni kynningu verði málið lagt fyrir nefndina að nýju.
 
7. Djúpasel L205695 - fyrirspurn um breytta skráningu sumarhúss og breytta aðkomu að húsi - E2609043
Til umfjöllunar eru áform eiganda Djúpasels L205695 um að breyta notkun sumarhússins yfir í íbúðarhús. Húsið er á landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi og er landeignin skráð sumarbústaðaland. Landeigandi áformar jafnframt að breyta aðkomu að Djúpaseli yfir ánna.
Húsið er skráð sem sumarbústaður. Það stendur á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Að húsinu er ekki akvegur sem er fær allt árið og óvissa um aðkomu að lóðinni, sbr. meðal annars umsögn Vegagerðarinnar. Breytt notkun sumarbústaðarins í íbúðarhúsnæði er ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags um íbúðabyggð. Eignin stendur nokkuð úr leið. Húsið er ekki í röklegu samhengi við aðra íbúðabyggð á svæðinu, en engin önnur hús eru sömu megin í Djúpadal og engin föst búseta austan Djúpadalsár. Engin áform eru í aðalskipulagi um íbúðabyggð í Djúpadal.
 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn um að hafnað verði beiðni um að breyta notkun sumarbústaðarins Djúpasel í íbúðarhúsnæði.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15
Getum við bætt efni síðunnar?