Dagskrá:
1. Mötuneyti - útboð 2026 - E2601016
Samningstími vegna mötuneytis Eyjafjarðarsveitar er útrunninn og hefur sveitarstjórn því ákveðið að setja þjónustuna aftur í útboð. Fyrir nefndinni liggur til kynningar útboðslýsing frá því árið 2019 þar sem nefndinni gefst færi á að ræða og koma með ábendingar um fyrirkomulag.
Skólanefnd leggur áherslur á manneldismarkmið, alltaf sé í boði fjölbreytt ferskt grænmeti, aðkeypt unnin matvara verði ekki oftar en í samræmi við ákvæði í eldri samningi, áhersla verði á notkun íslenskra matvæla, hafa skal í huga mat fyrir yngstu nemendur 1-2 ára þegar maturinn hentar þeim ekki og að lokum að þess verði gætt að ekki falli saman matartímar nemenda við matartíma utanaðkomandi aðila.
2. Samningur um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu - E2512002
Fyrir fundinum liggja drög að ráðgjafasamningi um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu við Akureyrarbæ en sveitarstjórn vísaði drögunum til Velferðar- og menningarnefndar og Skólanefndar.
Lagt fram til kynningar. Umræður urðu um einstaka liði en ekki gerðar athugasemdir.
3. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Fyrir fundinum liggur minnisblað um stöðu framkvæmda.
Finnur Yngvi sveitarstjóri fór yfir minnisblað um stöðu framkvæmda við leik- og grunnskólann.
4. Leikskólinn Krummakot - Skóladagatal 2026-2027 - E2602011
Frestað til næsta fundar skólanefndar.
5. Hrafnagilsskóli - Skóladagatal 2026-2027 - E2602010
Frestað til næsta fundar skólanefndar.
6. Leikskólinn Krummakot - Umbótaáætlun í framhaldi af ytra mati árið 2023 - E2404025
Erna Káradóttir leikskólastjóri fór yfir stöðu umbóta samkvæmt ytra mati á starfsseminni sem fram fór í nóvember 2023.
7. Hrafnagilsskóli - Niðurstöður úr starfsmannakönnun Skólapúlsins - E2505029
Í kjölfar niðurstöðu starfsmannakönnunar Skólapúlsins á síðasta ári var farið í markvissa vinnu og fræðslu um samskipti og líðan á vinnustað. Þeirri vinnu er nú formlega lokið og gerir skólastjóri grein fyrir niðurstöðu verkefnisins.
Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri fór yfir niðurstöður fræðslu og vinnu vegna samskipta og líðanar á vinnustað sem farið var í kjölfar niðurstöðu starfsmannakönnunar Skólapúlsins á síðasta ári.
Niðurstöður voru mjög upplýsandi og skólanefnd lýsir yfir ánægju með vinnuna. Æskilegt væri að fá hærra svarhlutfall þegar könnunin verður endurtekin.
8. Skólanefnd - Ytra mat á Hrafnagilsskóla - E2602012
Formaður skólanefndar leggur til að óskað verði eftir ytra mati á starfi Hrafnagilsskóla. Rúmlega 10 ár eru liðin síðan síðast var unnið ytra mat á skólanum.
Skólanefnd samþykkir að óskað verði eftir ytra mati á starfi Hrafnagilsskóla. Skólanefnd felur sveitarstjóra og formanni skólanefndar að vinna málið áfram.
9. Skólahreysti - Ósk um styrk fyrir endurnýjun á keppnisbúnaði o.fl. - E2512008
Skólanefnd vísar málinu til sveitarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00