Skólanefnd

284. fundur 18. mars 2026 kl. 12:15 - 13:30 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Hafdís Inga Haraldsdóttir
  • Sóley Kjerúlf Svansdóttir
  • Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson
  • Sigurgeir Sveinn Gíslason
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjór
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
  • Erna Káradóttir skólastjóri Krummakots
  • Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri Hrafnagilsskóla
  • Konný Bjargey Benediktsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Inga Vala Gísladóttir áheyrnarfulltrúi
  • Dagmar Þóra Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Lena Tómasdóttir áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Anna Guðmundsdóttir formaður
 
Dagskrá:
 
1. Leikskólinn Krummakot - Skóladagatal 2026-2027 - E2602011
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Krummakots veturinn 2026-2027 verði samþykkt. Auk þess leggur skólanefnd til við skólastjóra Hrafnagilsskóla og Krummakots að nýta sameiginlegan starfsdag til samvinnu milli skólanna.
 
2. Hrafnagilsskóli - Skóladagatal 2026-2027 - E2602010
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Hrafnagilsskóla veturinn 2026-2027 verði samþykkt. Auk þess leggur skólanefnd til við skólastjóra Hrafnagilsskóla og Krummakots að nýta sameiginlegan starfsdag til samvinnu milli skólanna.
 
3. Skólanefnd - Vistunartími yngstu barna í leikskóla - E2603014
Skólanefnd er hlynnt því að reynt verði að stytta vistunartíma yngstu barna. Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að rætt verði við foreldraráð Krummakots um tillögur stjórnunarteymis Krummakots um vistunartíma fyrir börn á aldrinum 12 - 24 mánaða og börn sem eiga foreldra í fæðingarorlofi. Lögð verði áhersla á að hagsmunir barnanna verði hafðir að leiðarljósi.
Einnig samþykkir skólanefnd að beina því til sveitarstjórnar að gjöld fyrir vistun utan skráðs vistunartíma verði uppfærð í samræmi við aukinn launakostnað sem af þessu hlýst.
 
4. Hrafnagilsskóli - Ósk um viðbótartíma til tónmenntakennslu - E2603015
Skólanefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að heimila að auka við stöðugildi í tónmenntakennslu í samræmi við minnisblað skólastjóra Hrafnagilsskóla. Þannig verði komið til móts við öfluga tónmenntakennslu og tónlistaruppeldi, bæði í Hrafnagilsskóla og Krummakoti.
 
5. Skólanefnd - Lesfimi, niðurstöður 2020-2025 - E2603016
Skólanefnd þakkar kynningu á Lesferli og niðurstöðum nemenda Hrafnagilsskóla. Jafnframt kallar skólanefnd eftir því að lokið verði við gerð lestrarstefnu Hrafnagilsskóla og að þar verði meðal annars gerð grein fyrir áherslum í lestrarkennslu í öllum árgöngum, jafnt fyrir þá sem ekki fylgja jafnöldrum sem hinna sem standa vel að vígi í lestri.
 
6. Hrafnagilsskóli - Kynning á mati á kennslu - E2603017
Ólöf Ása skólastjóri kynnti vinnu við innlit og mat gæðaráðs á kennslu.
 
7. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að teikningar verði yfirfarnar með tilliti til þess sem fram kemur á minnisblaði.
 
8. Skólanefnd - Ytra mat á Hrafnagilsskóla - E2602012
Fyrir liggur svar Mennta- og barnamálaráðuneytisins þess efnis að ráðuneytið sé ekki lengur með reglubundið ytra mat á grunnskólum eins og stendur. Hins vegar er í gangi vinna innan ráðuneytisins sem felst í að skýra betur ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga gagnvart ytra mati á leik- og grunnskólum. Vonast er til þess að eitthvað fari að skýrast í þeim málum þegar líður á árið.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30
 
Getum við bætt efni síðunnar?