Skólanefnd

285. fundur 01. september 2026 kl. 12:00 - 14:30 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Sóley Kjerúlf Svansdóttir
  • Harpa Friðriksdóttir
  • Þorsteinn Ægir Egilsson
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
  • Sigþóra Oddný Baldursdóttir skólastjóri Krummakots
  • Freydís Erna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri Hrafnagilsskóla
  • Dagmar Þóra Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Anna Guðmundsdóttir formaður
 
Dagskrá:
 
1. Erindisbréf - Skólanefnd - E2608042
Lagt fram til kynningar erindisbréf Skólanefndar.
Skólanefnd kýs Sóley Kjerúlf Svansdóttur sem varaformann nefndarinnar.
 
Skólanefnd beinir því til sveitarstjórnar að uppfæra erindisbréf nefndarinnar.
 
2. Leikskólinn Krummakot - Innra mat - E2608043
Sigþóra Oddný Baldursdóttir starfandi leikskólastjóri Krummakots kynnti niðurstöður innra mats fyrir skólann.
Skólanefnd þakkar fyrir ítarlega og vel unna skýrslu ásamt áætlun um umbætur og þróun starfshátta.
 
3. Leikskólinn Krummakot - Staða í upphafi skólaárs, nemendafjöldi og mönnun - E2608044
Sigþóra Oddný Baldursdóttir starfandi leikskólastjóri Krummakots kynnti stöðuna í skólanum í upphafi skólaárs.
Lagt fram til kynningar.
 
4. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við viðbyggingu Hrafnagilsskóla og Krummakots.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
5. Skólanefnd - Tónmenntakennsla - samvinna skólanna - E2608049
Lagt fram til kynningar minnisblað skólastjórnenda Hrafnagilsskóla og Krummakots um tónmenntakennslu í skólunum tveimur.
Skólanefnd lýsir ánægju með aukna tónlistarmenntun fyrir alla nemendur, frá yngstu nemendum Krummakots til elstu nemenda Hrafnagilsskóla og aukið samstarf skólanna.
 
6. Hrafnagilsskóli - Innra mat veturinn 2025-2026 - E2608045
Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri Hrafnagilsskóla kynnti niðurstöður innra mats fyrir skólann.
Skólanefnd þakkar fyrir ítarlega og vel unna skýrslu ásamt áætlun um umbætur og þróun starfshátta.
 
7. Hrafnagilsskóli - Staða í upphafi skólaárs, nemendafjöldi og mönnun - E2608046
Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri Hrafnagilsskóla kynnti stöðuna í skólanum í upphafi skólaárs.
Lagt fram til kynningar.
 
8. Hrafnagilsskóli - Akstursáætlun 2026-2027 - E2608047
Lögð fram akstursáætlun Hrafnagilsskóla 2026-2027.
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að akstursáætlun Hrafnagilsskóla 2026-2027 verði samþykkt.
 
9. Hrafnagilsskóli - Starfsáætlun 2026-2027 - E2608051
Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri Hrafnagilsskóla kynnti starfsáætlun skólans fyrir veturinn 2026-2027.
Lagt fram til kynningar.
 
10. Hrafnagilsskóli - Breyting á skólaslitum skólans 2026-2027 - E2608052
Lögð fram tillaga skólastjóra Hrafnagilsskóla á tímasetningu skólaslita.
Skólanefnd þakkar fyrir greinargóða samantekt og þá vinnu sem lögð var í könnun meðal foreldra og starfsfólks á tímasetningu skólaslita. Skólanefnd tekur undir tillögu stjórnenda um að skólaslit Hrafnagilsskóla verði færð til kl. 16:00. Jafnframt samþykkir nefndin að síðasta skóladegi verði lokið kl. 12:00 til að skapa svigrúm fyrir undirbúning skólaslita. Frístund verður opin frá kl. 12:00 til 16:00 þann dag.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30
 
Getum við bætt efni síðunnar?