Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri fór yfir lykiltölur í rekstri grunn- og leikskóla í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
Lagt fram til kynningar.
2. Húsnæðismál grunn- og leikskóla - E1901017
Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri fór yfir uppfærða verkáætlun að viðbyggingu Hrafnagilsskóla.
Lagt fram til kynningar.
3. Leikskólinn krummakot - Starfsáætlun 2026-2027 - E2610029
Sigþóra Oddný Baldursdóttir starfandi skólastjóri Krummakots kynnti starfsáætlun skólans fyrir skólaárið 2026-2027.
Skólanefnd samþykkir starfsáætlun Krummakots fyrir skólaárið 2026-2027.
4. Skólanefnd - Merkingar skólanna og umhverfis þeirra - E2610030
Anna Guðmundsdóttir formaður skólanefndar gerði það að tillögu sinni að farið verði í að merkja skólana tvo betur, bæði við innganga og aðkomu að skólunum frá Hrafnatröð. Einnig þarf að bæta lýsingu í kringum skólana.
Skólanefnd tekur undir tillögu formanns og vísar erindinu til framkvæmdaráðs.
5. Skólanefnd - Ytra mat á Hrafnagilsskóla - E2602012
Umræður um ytra mat á Hrafnagilsskóla.
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að gengið verði að tilboði MSHA frá 18. mars og farið verði í ytra mat á Hrafnagilsskóla á árinu 2027.
6. Hrafnagilsskóli - Form og framtíðarsýn á bekkjarnámskrám - E2610032
Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri Hrafnagilsskóla kynnti drög að nýju formi og framtíðarsýn á bekkjanámskrá skólans.
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með verkefnið.
7. Skólaráð Hrafnagilsskóla - Ályktun vegna skólabókasafns - E2610004
Lögð fyrir skólanefnd ályktun skólaráðs Hrafnagilsskóla vegna skólabókasafnsins.
Skólanefnd þakkar skólaráði Hrafnagilsskóla fyrir ályktunina.
8. Ályktun skólanefndar vegna breytingar á námsmati í grunnskólum - E2610019
Þann 7. ágúst síðastliðinn boðaði Mennta- og barnamálaráðuneytið breytingar á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt. Áformin fela í sér að einkunnir verði birtar í tölum í stað bókstafa. Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar gagnrýnir þessa framkvæmd enda var hún boðuð seint og undirbúningur ekki nægjanlegur.
Í ljós hefur komið að boðaður talnakvarði er ólíkur hefðbundnum talnakvarða frá 1-10. Sá kvarði er prósentukvarði og var notaður áður í grunnskólum og er notaður í framhalds- og háskólum á Íslandi. Nýútgefinn talnakvarði frá Menntamálaráðuneytinu er frá 1-10 þar sem
einkunnirnar 1-3 eru ekki notaðir í vitnisburði og birtingu lokamats og einkunnirnar 8-10 vísa til hæfni umfram árgang eða skólastig í tilfelli nemenda í 10. bekk. Þannig er hæfni á bak við einkunnina 8 lýst svo: Hefur náð tökum á matsviðmiðum greinasviðsins og að einhverju leyti sýnt hæfni umfram þau. Einkunnin 9 vísar til þess að nemandi hafi að miklu leyti sýnt hæfni umfram matsviðmið greinasviðsins og einkunnin 10 vísar til framúrskarandi hæfni.
Því má segja að talnakvarðinn sé í raun frá 4 - 7 og mjög óljóst hvað umfram hæfni felur í sér og hvernig á að meta hana.
Breytingarnar voru tilkynntar seint, leiðbeiningar um framkvæmd lágu ekki fyrir þegar skólaárið hófst og nú er langt liðið á haustönn og enn ekki ljóst hver framkvæmdin á að vera. Þessi vinnubrögð auka álag á stjórnendur og kennara og draga úr þeirri áherslu sem þess í stað ætti að vera í skólum, að kenna og efla nám nemenda á allan hátt. Óvissan hefur að auki neikvæð áhrif á nemendur og foreldra þar sem kennarar geta ekki svarað spurningum þeirra um námsmat og einkunnagjöf.
Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar skorar á menntamálaráðherra að fresta fyrirhuguðum breytingum til að meiri tími gefist til að undirbúa þær. Einkunnagjöf þarf að vera í samræmi við þá námskrá sem er í gildi hverju sinni og ef ætlunin er að auka skýrleika í einkunnagjöf
og samræmi milli skóla þarf að horfa til þess og tryggja að þau markmið náist.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:15