Sveitarstjórn

659. fundur 14. ágúst 2025 kl. 08:00 - 08:30 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Kjartan Sigurðsson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir
  • Sigurður Ingi Friðleifsson
  • Sigríður Bjarnadóttir
Fundargerð ritaði: Linda Margrét Sigurðardóttir

 

Dagskrá:
Almenn erindi

1. E2502023 - Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 - Holtahverfi - ÍB17 og
VÞ17
Akuryrerbær óskar umsagnar Eyjafjarðarsveitar um auglýsingu á tillögu að Aðalskipulagsbreytingu vegna Holtahverfis - ÍB17 og VÞ17.
Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar tók erindið fyrir á 435. fundi sínum.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar gerir ekki athugasemd við auglýsta tillögu Akureyrarbæjar að Aðalskipulagsbreytingu vegna Holtahverfis - ÍB17 og VÞ17.

2. E2508004 - Aðalskipulag Skagafjarðar - Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar umsagnar Eyjafjarðarsveitar um auglýsingu á tillögu að nýju aðalskipulagi Skagafjarðar.
Umsagnarfrestur er til 15. september næstkomandi.
Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar tók málið fyrir á 435. fundi sínum.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar gerir ekki athugasemd við auglýsta tillögu sveitarfélagsins Skagafjarðar að nýju aðalskipulagi.

3. E2506061 - Blöndulína 3 - breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024, nr. 07932024 Kynning tillögu á vinnslustigi

Hörgársveit óskar umsagnar Eyjafjarðarsveitar um kynningu tillögu á vinnslustigi Blöndulína 3 - breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 435. fundi sínum.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við tillögu á vinnslustigi
Blöndulína 3 - breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024.

4. E2508003 - Jódísarstaðir l.nr. 152664 - Merkjalýsing
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing þar sem verið er að Afmarka
landspildu úr landi Jódísarstaða f.nr. F2159011, l.nr. L152664.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 435. fundi sínum.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.

5. E2508001 - Grund I L152609 - Stækkun á byggingarreit
Ljósaborg ehf. sækir um stækkun á byggingarreit vegna stækkunar á fjósi í landi Grundar 1 L152609.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 435. fundi sínum.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Heimilt verður að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.

6. E2507005 - Umhverfis- og orkustofnun - Umsókn um rannsóknarleyfi
Umhverfis- og orkustofnun hefur móttekið umsókn Íslenskra Jarðmálma ehf. um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, er sótt um leyfi til rannsóknar og leitar að málmum á svæði suður af Eyjafjarðardal og í átt að Bárðardal.
Svæðið er á þjóðlendu og að hluta innan Eyjafjarðarsveitar og er því sveitarfélaginu boðið að veita umsögn sína í málinu.
Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar tók erindið fyrir á 435. fundi sínum.

Þar sem svæðið er einungis innan þjóðlenda og umsóknin í meðferð hjá stofnun á vegum ríkisins gerir sveitarstjórn ekki athugasemd við erindið.

7. E2506062 - Norðurorka - Erindi vegna lántöku 2025
Stjórn Norðurorku hf. hefur samþykkt að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga, allt að fjárhæð 300.millj. kr., til 30 ára. Óskar Norðurorka hf, eftir að sveitarfélögin, eigendur Norðurorku, taki ábyrgð á lánum Norðurorku, er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir hitaveitu.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 300.000.000-, í samræmi við lánsumsókn í vinnslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til fjármögnunar á hitaveituframkvæmdum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Sveitarstjórnin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélag selji eignarhlut í félaginu til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er sveitarstjóra, Finni Yngva Kristinssyni, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

8. E2507001 - SSNE - Skipan í starfshóp fyrir Loftslagsstefnu Norðurlands eystra
Eitt af verkefnum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra 2025 - 2029 er að unnin verði sameiginleg loftslagsstefna fyrir landshlutann. Í ljósi þess að vinna við loftslagsstefnu fer vel saman með vinnu SSNE og Eims vegna RECET verkefnisins leggur SSNE til við sveitarfélögin að vinna við sameiginlega loftslagsstefnu verði sett af stað strax í haust.
SSNE óskar eftir því að sveitarfélagið staðfesti vilja sinn til að taka þátt í mótun loftslagsstefnu Norðurlands eystra og skipi jafnframt fulltrúa í samstarfshóp sem mun stýra vinnunni í samstarfi við starfsfólk SSNE og Eims sem mun halda utan um vinnuna. Einnig er gert ráð fyrir samráði við fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.

Sveitarstjórn staðfestir samhljóða vilja til að taka þátt í mótun loftslagsstefnu fyrir Norðurland eystra.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skipa Sigurð Inga Friðleifsson sem sinn fulltrúa í samráðshópnum.

9. E2210013 - Þjónustusamningur um málefni fatlaðra
Með vísan til samnings Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgárbyggðar og Svalbarðsstrandarhrepps um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk skulu sveitarfélögin, önnur en Akureyri, tilnefna sameiginlega einn áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á fundum velferðarráðs Akureyrarbæjar þegar til umræðu eru málefni fyrrnefnds samstarfssamnings. Þegar fyrir liggur að á dagskrá velferðarráðs Akureyrarbæjar er málefni samstarfsverkefnisins um þjónustu við fatlað fólk, þá skal áheyrnarfulltrúi aðildarsveitarfélaganna fá boð um fund á viðeigandi dagskrálið.
Akureyrarbær óskar nú eftir tilnefningu sameiginlegs áheyrnafulltrúa.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fara með málefni sveitarfélagsins er varðar áheyrnafulltrúa í velferðarráði Akureyrarbæjar og að koma á, í samstarfi við samstarfssveitarfélögin, föstu skipulagi á tilnefningu hins sameiginlega áheyrnafulltrúa hverju sinni.
Sveitarstjórn verði gert kunnugt um skipulagið og nafn hins sameiginlega áheyrnafulltrúa þegar það liggur fyrir.

Fundargerðir til kynningar
10. 2508001F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 435
Fundargerð 435. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

11. E2506063 - Norðurorka - Fundargerð 311. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 311. fundar Norðurorku.

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:30

Getum við bætt efni síðunnar?